Andvari - 01.01.1946, Blaðsíða 54
50
RunóJfur Sveinsson
ANDVARI
8. Ég skoðaði i'áeina bændaskóla, meðal annarra i Morris
og St. Poul, Minnesota.
9. Ég heimsótti allmörg mjólkurbú bæði úti um sveitirnar
(vinnslubú) og í borgunum (sölustöðvar).
10. Á ferðalagi mínu uin 36 af fylkjum Bandaríkjanna lieiin-
sótti ég fjölda af bændum, sem ráku bæði stór og smá bú.
Meðal annars heimsótti ég stærsta mjólkurbú heimsins, sem
er í Californíu, skammt fyrir utan Los Angeles. Þar eru um
10000 kýr. Þá skoðaði ég Walker-Garden-búið í New Jersey,
sem hefur um 1600 kýr og einhverja fulllcomnustu uppsetn-
ingu og útbúnað á mjaltavélum og mjöltun, sem þekkist.
III. Það sem ég sá og heyrði í búnaðarmálum
Bandaríkjanna.
1. Náttúruskilyrði til buskapar í U. S. A.
Bandaríkin eru geysi-víðáttumikil að flatarmáli, eða uni
75 sinnum stærri en ísland. Þau liggja að mestu leyti á milli
30° og 45° n. br., á vesturhelmingi jarðar. Veðráttan er um
mikinn meiri hluta landsins meginlandsloftslag. Þó eru úr-
komur allmiklar vestur við Kyrrahaf og á austurströndinni,
er út að Atlanzhafinu veit. í heild er veðráttan hagstæð land-
búnaði og sums staðar ágæt.
Jarðvegurinn er á stöku stað sendinn og gróðurlaus, en
mjög víða ágætur, leirborinn moldarjarðvegur og sunis
staðar einhver sá bezti sem þekkist til hvers konar ræktunar.
Landið er mjög auðugt af námum, svo sem málmum ýmiss
konar, kolum, olíu, timbri o. fl. Þessi og önnur náttúrugæði
og auðsuppsprettur eru undirstaða undir mjög umfangsmikl-
um og fullkomnum iðnaði í U. S. A.
Bandaríkjaþjóðin er framsækin og dugleg. Hún mun nu
vera með auðugustu þjóðum í heimi.
2. Búnaðarfræðslan.
í nær öllum fylkjum Bandaríkjanna eru einn eða flen1
landbúnaðarháslcólar. Eru þeir ýmist einkaeign, sjálfseignar-