Andvari - 01.01.1946, Blaðsíða 47
andvari
,í lundi nýrra skói'a"
43
inenn mikla áherzlu á skjól. Jafnvel í því sólríka landi kemur
i ljós, að trjáplöntur, sem eru áveðurs í skógarjaðri, ná ekki
iiema takmörkuðum þroska, en lilífa trjánum inni í skóginum
móti aðsteðjandi kulda.
Erlendi víðirinn virðist vera öruggasta trjáplantan til að
mynda limgirðingu hér á landi. Hann er auk þess einhver
þroskamesta trjáplanta, sem völ er á, rnjög greinamargur,
og er til hóta, einkum ef hann á að ná nokkurri hæð, að klippa
oían af lægri og veigaminni greinum á haustin. Afskornar
víðigreinar eru bundnar í knippi og grafnar í jörð, þannig að
þær hallast mikið, og skal leggja grunnt jarðlag ofan á efri enda
kvistanna. Með þessum hætti geymast viðiangarnir óskemmdir
yfir veturinn, þó að jörð sé frosin í kring um þá. Næsta vor
Wná gróðursetja þessa kvisti. Meslur hluti víðisins er þá hul-
inn í jörð til að verja plöntuna of mikilli utgufun, ineðan
hún er að mynda rætur. Þegar fólk í sveitum fer að lást við
skógrækl á liverju heimili, mun mönnum reynast, að það er
hæði auðvelt og kostnaðarlitið að ala upp nægilega mikið al
hirki og reyni af fræi til heimilisþarfa. Og um víðiteinungana
má segja, að þeir kosta ekki neitt.
VI.
Pram að þessu hefur fólk í sveitum oftast látið sér nægja að
rækta trjáplöntur í skjóli við hæina. Það er góð byrjun, en
okki heldur nieira. Sá trjálundur, sem veitir menningu heim-
ilisins skjól, þarf að ná utan um öll hæjarhúsin. Ég held, að
þegar farið verður að sinna þeim málum fyrir alvöru, verði
að leggja undir trjálundinn og bæjarhúsin ekld minna en
þriðja hlut úr dagsláttu á meðal heimili í sveit. Og sá blettur
þarf að vera svo vel girtur, að þangað komi engin sauðkind
eða geitfé, hvorki að sumri né vetri. Nokkuð mikið af þessum
algirta reit verður jafnan tún og það betra tún en áður, því
að trjágróðurinn veitir túngrösunum slcjól og aukinn þroska.
En jafnvel þó að túnið minnkaði lítið eitt, er ekki eftirsjón
að því. Með þeirri rældunartækni, sem íslenzkir bændur liafa
nú fengið, er yfirleitt mjög auðvelt að bæta parti af dagsláttu