Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1946, Side 47

Andvari - 01.01.1946, Side 47
andvari ,í lundi nýrra skói'a" 43 inenn mikla áherzlu á skjól. Jafnvel í því sólríka landi kemur i ljós, að trjáplöntur, sem eru áveðurs í skógarjaðri, ná ekki iiema takmörkuðum þroska, en lilífa trjánum inni í skóginum móti aðsteðjandi kulda. Erlendi víðirinn virðist vera öruggasta trjáplantan til að mynda limgirðingu hér á landi. Hann er auk þess einhver þroskamesta trjáplanta, sem völ er á, rnjög greinamargur, og er til hóta, einkum ef hann á að ná nokkurri hæð, að klippa oían af lægri og veigaminni greinum á haustin. Afskornar víðigreinar eru bundnar í knippi og grafnar í jörð, þannig að þær hallast mikið, og skal leggja grunnt jarðlag ofan á efri enda kvistanna. Með þessum hætti geymast viðiangarnir óskemmdir yfir veturinn, þó að jörð sé frosin í kring um þá. Næsta vor Wná gróðursetja þessa kvisti. Meslur hluti víðisins er þá hul- inn í jörð til að verja plöntuna of mikilli utgufun, ineðan hún er að mynda rætur. Þegar fólk í sveitum fer að lást við skógrækl á liverju heimili, mun mönnum reynast, að það er hæði auðvelt og kostnaðarlitið að ala upp nægilega mikið al hirki og reyni af fræi til heimilisþarfa. Og um víðiteinungana má segja, að þeir kosta ekki neitt. VI. Pram að þessu hefur fólk í sveitum oftast látið sér nægja að rækta trjáplöntur í skjóli við hæina. Það er góð byrjun, en okki heldur nieira. Sá trjálundur, sem veitir menningu heim- ilisins skjól, þarf að ná utan um öll hæjarhúsin. Ég held, að þegar farið verður að sinna þeim málum fyrir alvöru, verði að leggja undir trjálundinn og bæjarhúsin ekld minna en þriðja hlut úr dagsláttu á meðal heimili í sveit. Og sá blettur þarf að vera svo vel girtur, að þangað komi engin sauðkind eða geitfé, hvorki að sumri né vetri. Nokkuð mikið af þessum algirta reit verður jafnan tún og það betra tún en áður, því að trjágróðurinn veitir túngrösunum slcjól og aukinn þroska. En jafnvel þó að túnið minnkaði lítið eitt, er ekki eftirsjón að því. Með þeirri rældunartækni, sem íslenzkir bændur liafa nú fengið, er yfirleitt mjög auðvelt að bæta parti af dagsláttu

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.