Andvari - 01.01.1946, Blaðsíða 58
54
Runólfur Svcinsson
ANDVARI
að verulegu leyti fóðruð á grasi- og kornbeit úti, sem ekki er
liægt, ef framleiða á 1. floltks „bacon“.
D. Loðdýr. Á síðustu árum hefur orðið byiting i Joðdýra-
rælít Bandarílcjanna. Þar munu nú vera einliver jir beztu refa-
og minkastofnar, sem til eru. Slcilyrði til loðdýraræktar eru
að ýmsu leyti góð, t. d. er verð á hrossakjöti, sem mikið er
notað og er gott til refaeldis, afar lágt, eða ca. 25—30 aura
pr. kg.
Ég sótti loðdýrasýningu, sem haldin var í Michigan-
fylki og stóð í fjóra daga. Þar sá ég bæði refa- og minka-
afbrigði, sem hvergi munu annars staðar til en í U. S. A. og
Canada. Sum þessara afbrigða eru geysi-verðmæt.
6. Kijnbætur búfjár í U. S. A. v
Síðustu 50—75 árin hefur verið varið ógrynni 1 jár til bú-
fjárkynbóta í Bandaríkjunum, bæði af einstaklingum og af
ahnannafé. Yfirstjórn og fagleg stjórn þessara mála er í hönd-
um landbúnaðarráðuneytisins og landbúnaðarháskólanna.
Ráðuneytið rekur fjölda tilraunastöðva, og er tilraunastöðin
að Beltsville í Maryland þeirra stærst og e. t. v. fullkomnust.
Háskólarnir hafa einnig flestir stöðvar og tilraunabú i þjón-
ustu sinni. Ég hygg, að þessir aðilar hafi mildu meira fé til
umráða til þessara hluta en tíðkast í nokkru öðru landi.
Því má ætla, að þar náist meiri og fullkomnari árangur í
þessum efnum en annars staðar.
Það má fullyrða, að með vaxandi tækni og vísinduin er
unnið af vaxandi krafti að kynhótum búfjár í Bandaríkjun-
um. Ég vil hér benda á aðeins tvennt, sem vakti athygl’
inína einna mest og er tiltölulega nýtt. Hið fyrra er skyld-
Jeikarækt og „krossrækt“, sem unnið hefur verið mikið að
síðustu tíu árin, aðallega á svínum og sauðfé. Rannsóknir
þessar, einkanlega á skyldleikaræktinni, hafa kostað offjar,
en svo virðist, að hægt sé að bæta svínin svo með þessum að-
ferðum, að tilraunakostnaðurinn endurgreiðist, jafnvel marg-
falt, í belri svínastofni. Hitt atriðið er það, sem á enskri
tungu er kallað „artificial »insemination“, á Norðurlandamál-