Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1946, Page 33

Andvari - 01.01.1946, Page 33
andvari Tvö skáld 29 Þetta andvarp frá brjósti bændanna í Breiðuvík fyrir um 350 árum síðan hefur efalaust kveðið við með ýmsum til- bi'igðum bæði fvrr og síðar. Það er ótrúlegt, hvað lítil, af- skekkt sveit, þótt fögur sé og kostagóð, getur rúinað mikið af eymd og basli, er illa er að henni búið og framtak og manndómur íbúanna hneppt í dróma ánauðar og fjárplógs öldum saman. Við lok 19. aldar var búnaðurinn um þessar slóðir með þeim eymdarbrag, að nær þótti einsdæmi. Vitni um þetta eru frásagnir og lýsingar Þorvalds Thoroddsens í Ferðabók hans og ritgerð Þórhalls Bjarnarsonar, síðar bisk- llps, um ferð hans um Snæfellsnes sumarið 1902, er prentuð er í Búnaðarritinu 1903 og vakti óhemjumikla athygli á sinni tið. Sem dæmi má nefna, að þá var hið forna höfuð- setur sveitarinnar, Knörr, í eyði. Og nú hefst svolítið ævintýr. Pátæk hjón austur í Mýrdal fá með nokkrum hætti fregnir af því, að vestur í Breiðuvík sé auðvelt að fá jarðnæði, en heima fyrir var þröngt setinn belckurinn og fátt góðra kosta. Álcváðu þau að freista gæfunnar, þótt misjafnlega væri fyrir þeirri ráðbreytni spáð. Og svo hófust búferlin yfir sjö sýslur, landveg. Búslóðin var víst ekki stór og kvikféð 2 kýr og eitl- hvaíS af hestum. Ung börn voru með í förinni. Allt gekk þetta slysalaust og vonum framar vel. Þegar vestur kom, leið ekki á löngu að þau fengi til ábúðar jörðina Hamraenda, 24 hdr. að fornu mati, þjóðjörð. Þetta var svo sem ekkert kot. Hér höfðu menn búið í þúsund ár, oft meira að segja vel. En ekki sáust þess mikil inerki mi, síður en svo, jörðin var húsalaus að kalla, án teljandi mannvirkja, í órækt og ör- tröð. Ég get ekki lýst hér búskap þeirra Hamraenda- hjóna um rúm 40 ár. Um hitt get ég vitnað, sem fyrir mig har þennan jfilímorgun, er ég dvaldi þarna gestkomandi. Nú eru Hamraendar eitt af fegurstu bændabýlum á lancÞ inu. Hér er mikið, rennislétt og ágætlega ræktað tún. Mannvirki öll, er góðum búskap hæfa, með myndarlegum snyrtibrag, bærinn stórt og vandað steinhús, raflýst. Áliöfn mikil og góð, sem slíku býli sómir. Ég ætla elcki að reyna að gizka á, hvað það hafi kostað Sigmund bónda, konu hans og

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.