Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1946, Side 65

Andvari - 01.01.1946, Side 65
andvari Ferð til Bandarikjanna 1944—46 61 Enn þá hefur ekki verið rannsakað til neinnar hlitar, hvaða grastegundir gefa bezta raun á íslandi. Mjög er lildegt, að nú séu til nytjagrös, sem gefa meiri og verðmætari uppskeru heldur en þau, sem reynd hafa verið. Aðkallandi er að fá rannsakaða sem fyrst gróðrarhæfni islenzks jarðvegs, bæði í heild og í einstölcum landshlutum. t*að þarf að flokka jarðveginn. B. Kornrækt. Undanfarin tuttugu ár hafa staðið yfir til- raunir og athuganir á möguleikum kornræktar á íslandi. Að- alstöð kornyrkjunnar er og hefur verið á Sámsstöðum í Fljóts-. hlíð. Tilraunastjórinn þar mun telja góðan árangur af kornrækt sinni og dæmir rétt vera að hefjast skuli lianda l|ni kornrækt á íslandi. Tilraunastjórinn við Gróðrarstöðina é Akurevri liefur álvktað kornvrkiu álíka árvissa þar og kartöflurækt. Reynsla undirritaðs á kornrækt hér á landi er á þann veg, að ég tel ekki hyggilegt fyrir íslenzka bændur að hefja korn- rækt í ^tórum stíl, a. m. k. ekki í því formi, sem kornyrkja er rekin í öðrum löndum. Sú skoðun mín byggist meðal ann- ars á eftirtöldum staðreyndum: a) Veðráttan er í flestum sumrum of köld og vot fyrir korn- rækt. Einkanlega er tíðarfarið oft óhagstætt að haustinu til, rigningar, rok og jafnvel snjóar, áður en nokkur tök eru á því að ná korninu undir þak. h) Vélar þær, sem nauðsynlegar eru til kornyrkjunnar, svo sem sjálfbindari, þreskivél, kvörn o. fl., eru dýrar og verða ekki notaðar við önnur störf búskaparins. °) Með aukinni og bættri grasrækt lel ég eklti milda þörf á mnflutningi og notkun korns til fóðurs, heldur skyldi nota 1 þess stað meira af síldarmjöli og öðru fiskimjöli til hjarnfóðurs. Á tilraunastöðvunum, bændaskólunum og víðar, hefur á siðustu áratuguin verið nokkur sáðskiptiræktun, sem er aðal- ^e§a í því fólgin, að skipt er um jurtir frá ári til árs. T. d. er eitt árið ræktaðir hafrar, oft sem grænfóður, þá bygg, svo mrtöflur eða rófur, ])á gras um fleiri eða færri ár. Sáðskipti-

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.