Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1946, Side 86

Andvari - 01.01.1946, Side 86
82 Jóhannes Áslcelsson ANDVAIU Mað það er (1). Sumarið 1917 kannaði Guðmundur G. Bárð- arson, að tilhlutun ríkisstjórnarinnar, surtarbrand við Stein- grímsfjörð og víðar. Hann safnaði miklu af steingervingum, sem munu ekki enn vera ákvarðaðir til hlítar, en suma þeirra sendi hann til prófessors A. G. Nathorsts í Stocholmi, þar á meðal steingervinga frá Hrútagili í Mókollsdal. Prófessor Nathorst ákvarðaði tvær beykitegundir frá þessum stað, fagus antipofii Heer og fagus macrophylla Heer. Höfðu ekki áður fundizt greinilegar menjar af beyki i surlarbrandslögunuin islenzku (2). Svo virðist sem fagus antipofii haí'i verið allútbreidd um hin norðlægari lönd á öndverðu tertiertimabili. Hennar er aetið úr jarðlögum þess tímabils frá Japan, Sakhalin, Siberíu, Grænlandi og Alaska (3). Nánustu núlifandi ættingjar virð- ast vera amerísku beykitrén, fagus ferruginea Ait. Næst algengast af steingervingunum í Þórishlíðarfjalli er blað það, sem sýnt er á 3. mynd. í aðalatriðum líkist það blað- inu af fagus antipofii Heer, því sem að ofan er lýst, og verið getur, að hér sé um blað sömu tegundar að ræða. Þó er nokkur munur á. Blaðka j)essa síðarnefnda mjókkar ekki eins ört niður að stilknum eins og hún gerir á fyrrnel'nda blaðinu, hún er altennt og tennurnar sltýrari, þó að smáar séu. Hliðar- strengirnir eru færri og allir stakstæðir á miðrifinu. Við samanburð á þessu blaði og þeim lýsingum og myndum af tertierum plöntusteingervingum, sem ég hef aðgang að, virðist samræmið bezt við fagus deucalionis Heer. t þessu samband: er rétt að benda á, að sjöundi hliðarstrengur blaðsins, hægra megin á myndinni. er tvíklofinn. Sennilega cr hér ekki um tegundar- eða afbrigðiseinkenni að ræða, en merkilegt verður að teljast, að blöð, sem talin eru af þessari beykitegund, bæði frá Grænlandi (3) og Alaska (3), sýna sama einkennið, tvíklofinn hliðarstreng. Svo yfirgnæfandi meðal steingervinganna í Þórishlíðar- fjalli eru þessi beykiblöð, að þeirri hugsun verður ekki varizt, að hér sé um menjar allmikils beykiskógar að ræða, sem

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.