Andvari - 01.01.1890, Page 39
17
in 1873 að svo miklu leyti, sem menn þekktu það, og
á síðari tímum hafa kelstu forvígismenn stjórnannálsins
vitnað til nýlenduríkja Bretaveldis og horið oss saman
við þau. Benedikt Sveinsson hefur þannig hvað eptir
annað borið fyrir sig stjórnarskipun þessara ríkja. Jeg
skal til færa orð hans á alþingi 1885; þá sagði hann
við fyrstu umræðu í neðri deild um stjórnarskipunar-
málið, eptir að hann hafði tekið upp orð Monrads og
talað um, hvort í frumvarpinu væri gengið of nærri
rjetti konungs: »Jeg skal taka dæmi af drottningu
Engla, ekki álítur hún of nærri höggvið sínum præ-
rogativis (oæinkarjettindum), þótt hún nefni landstjóra
eigi að eins í hinum stærrri nýlendum, lieldur einnig í
smáfylkjunum (o: ríkjunum) í þessum nýlend um, sem
einmitt staðfesta lögin i hennar nafni og umboðic'.
(Alþ.tíð. 1885 B 349 — 350). Yið aðra umræðu sagði
hann: »Um daginn tók jeg til dæmis og samanburðar
nýlendur Englendinga. — f>essi samanburður var á góð-
um og gildum rökum byggður, því stjórnfrelsi það, sem
frumvarpið fer fram á, er einmitt líkt og þó mun minna,
en það, sem á sjer stað í þessum smáfylkjum (o: ríkj.
unum, British Columbia og Manitoba) — hjer má fá
góðan samanburð til þess að sjá, að nefndarfrumvarpið
á sinn líka í sögu kinnar menntuðustu, voldugustu og
stjórnkænustu þjóðar, Englendinga« (s.b. d. 541 og 543).
Hann talaði um hið sama við 3. umræðu (s.b. d. 836).
Síðan 1885 hefur hann einnig á alþingi skýrskotað
til stjórnarskipunar í nýlenduríkjum Englendinga og á
"þingvallafundinum 1888 sagði haun: »Og þó hefur
Englandsdrottning sleppt miklu meiri völdum í hendar
þegnum sínum, en vjer förum framá í stjórnarfrumvarp-
inu«. Jeg tek þetta hjer orðrjett upp vegna stefnu-
1) Englandsdrottning neí'nir ab eins aðallandstjórann í C&nada-
veldi, en liann skipar landstjórana í Bináríkjunum, ein* og »ðra
embættismenn Canadaveldie.
Andvari. XVI.
2