Fréttablaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 4
4 24. september 2009 FIMMTUDAGUR
LÖGREGLUMÁL Þrír Íslendingar sem
handteknir voru í sumar og sátu
um tíma í gæsluvarðhaldi, Ársæll
Snorrason, Gunnar Viðar Árnason
og Sigurður Óla-
son, voru tald-
ir tengjast einu
stærsta fíkni-
efnamáli sem
upp hefur komið
í heiminum. Í
málinu lagði lög-
reglan í Ekvador
hald á um 600
brúsa af mel-
assa, eins konar
dökku sýrópi,
sem búið var að blanda í tæplega
30 tonnum af hreinu kókaíni. Efnin
voru á leið til Evrópu og voru metin
á hundruð milljónir dollara.
Málið, sem gekk undir vinnuheit-
inu Landamærafellibylurinn hjá
lögreglu, kom upp í maí síðastliðn-
um og vakti gríðarlega athygli ytra.
Málið teygði anga sína til Hollands,
Lettlands, Bahamaeyja, Þýska-
lands og Íslands og vel á annan
tug manna var handtekinn vegna
þess. Í Ekvador voru fimm hand-
teknir, þrír Ekvadorar, einn Rússi
og alræmdur lettneskur glæpamað-
ur, Vladimir Mitrevics, sem kallað-
ur er Sólblómið og er talinn einn af
höfuðpaurunum.
Sex voru handteknir í Hollandi,
meðal þeirra Hollendingurinn
Ronny Verwoerd og Ísraelsmað-
urinn Erez Zizov. Sagt hefur verið
frá því að þeir tveir hafi haft sam-
skipti við þremenningana íslensku.
Ársæll hafi komið þeim í samband
við Sigurð, sem aftur hafi hjálpað
þeim að stofna fyrirtæki á Íslandi
til að kaupa vörubíla.
Þessi tengsl leiddu til handtöku
Íslendinganna. Í rökstuðningi lög-
reglu fyrir gæsluvarðhaldsúrskurð-
um yfir þeim voru þeir sagðir grun-
aðir um aðild að tilraun til að smygla
17 af tonnunum 30 til Evrópu.
Aðalmeðferð hefst í dag í máli
Gunnars Viðars, sem einn er ákærð-
ur fyrir innflutning á sex kílóum af
amfetamíni til landsins með póst-
sendingu í vor, sem send var frá
Hollandi af Roel nokkrum Knopp-
er. Knopper var einnig handtekinn
í kókaínmálinu risavaxna. Sigurð-
ur og Ársæll eru ekki ákærðir í því
máli, en ríkissaksóknari hefur enn
til meðferðar ásakanir á hendur
þeim um peningaþvætti og tengsl
við alþjóðlegan glæpahring.
stigur@frettabladid.is
www.ob.is
-5kr.
VIÐ FYRST
U NOTKUN
Á ÓB-LYKL
INUM
OG SÍÐAN
ALLTAF -2K
R.
TB
W
A
\R
EY
K
JA
VÍ
K
\
SÍ
A
Sæktu um ÓB-lykilinn á www.ob.is eða í síma 515 1141.
ÓB-lykilhafar geta safnað Vildarpunktum Icelandair.
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
26°
19°
22°
19°
15°
20°
18°
23°
16°
17°
26°
21°
28°
32°
15°
22°
28°
14°
9
6
4
6
6
6
13
12
14
10
5
5
5
4
3
5
8
8
5
9
8
4
86
Á MORGUN
Víða hvasst með morgninum en
síðar 15-25 m/s sunnan og
austan til, annars hægari.
LAUGARDAGUR
8-15 m/s
8
4 7
13
10
6 5
9
Í DAG KLUKKAN 15
VATNSVEÐUR
Núna í nótt gekk
efnismikið úrkomuloft
yfi r landið og núna
með morgninum er
víða rigning. Um há-
degi styttir upp vestan
til og um miðjan dag
annars staðar. Þá léttir
víða til þó hætt sé við
smáskúrum hér og
hvar. Í kvöld kemur
annað úrkomukerfi
upp að landinu, einn-
ig efnismikið en með
miklum vindi í nótt
eða 13-20 m/s.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
EFNAHAGSMÁL Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, segir
íslensku bankana hafa farið eftir
þeim reglum sem þeim voru
settar í útrásinni. Efnahags-
hrunið hafi verið vegna ónógs
regluverks miðað við umfang
fjármála starfseminnar.
Þetta sagði forsetinn við blaða-
menn í New York, en þar er hann
staddur til að sitja ráðstefnu um
loftslags-, orku og alþjóðamál.
Ólafur ræddi við fréttaveituna
Bloomberg og einnig Forbes. Hann
sagði fréttamönnum Bloomberg að
öðrum þræði væri tilgangur farar
hans til New York að „miðla þeirri
lexíu sem Íslendingar hafa lært,
með ærnum tilkostnaði, til alþjóða-
samfélagsins“.
Bloomberg vitnar í Gunnar F.
Andersen, forstjóra Fjármálaeftir-
litsins, um að 20 dæmi hafi fundist
um möguleg brot á reglum um fjár-
málastofnanir og að 20 önnur séu
til rannsóknar. Þá er vitnað í orð
Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis-
ráðherra um að fáránleg misnotk-
un á reglum um bankaleynd hafi
stuðlað að ósiðlegri hegðun.
Ólafur Ragnar telur bankana hins
vegar hafa fylgt reglum. „Hvað sem
um íslensku bankana má segja, þá
störfuðu þeir innan evrópsks reglu-
verks um banka og fjármál,“ hefur
Bloomberg eftir honum. - kóp
Ólafur Ragnar Grímsson í samtali við blaðamenn í New York:
Bankarnir hafi fylgt reglum
FORSETINN Ólafur Ragnar sagði banda-
rískum fjölmiðlum í gær að íslensku
bankarnir hefðu starfað eftir þeim
reglum sem um þá giltu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
30 tonn af kókaíni í sýrópinu
Ársæll Snorrason, Gunnar Viðar Árnason og Sigurður Ólason voru handteknir í sumar grunaðir um að tengj-
ast einu stærsta fíkniefnamáli sem upp hefur komið í heiminum. Hverjum dettur þetta í hug? spyr Sigurður.
VLADIMIR
MITREVICS, EÐA
SÓLBLÓMIÐ
Sigurður Ólason, sem sat í gæslu-
varðhaldi um þriggja vikna skeið
vegna málsins, segir algjörlega
fráleitt að
einhver skuli
láta sér detta
í hug að „eitt-
hvað lítið peð
á Íslandi sé
tengt í þetta
risastóra mál.
Það er alveg
yfir brúnina
að ímynda sér
eitthvað slíkt,“ segir hann í samtali
við Fréttablaðið.
Hann gagnrýnir lögregluna fyrir
að hafa notað meint tengsl hans
við málið til að halda honum í
gæsluvarðhaldi, enda sé ekkert
sem tengi hann við það. Hann
hafi einu sinni verið spurður um
það í yfirheyrslum hvort hann
þekkti til málsins. Hann hafi sagt
svo ekki vera og þar hafi verið
látið við sitja. Hvergi sé minnst á
málið í málsgögnum um hann,
nema í rökstuðningi lögreglu fyrir
gæsluvarðhaldsvistinni, þar sem
hafi verið sagt að gagna væri að
vænta að utan um aðild hans að
málinu. Þau hafi hins vegar aldrei
litið dagsins ljós.
Meint peningaþvætti Sigurðar
fyrir Verwoerd og Zizov, auk
meintra tengsla hans við alþjóð-
lega glæpahringi, liggur enn á
borði ríkissaksóknara sem á eftir
að taka ákvörðun um ákæru eða
niðurfellingu málsins. Hann var
ekki ákærður fyrir amfetamíninn-
flutninginn líkt og Gunnar Viðar,
þótt hann hafi upprunalega verið
talinn tengdur því máli líka.
YFIR BRÚNINA
AÐ ÍMYNDA SÉR
SVONA
SIGURÐUR ÓLASON
Ronny Verwoerd, einn þeirra sem
handteknir voru vegna málsins í
Hollandi, segist saklaus. Hann hefur
að eigin sögn verið ákærður fyrir að
reyna að smygla 17 tonnum af þess-
um tæpu 30 til Evrópu, og auk þess
fyrir aðild að sex kílóa amfetamíns-
myglinu til Íslands.
Hann mun gefa símaskýrslu við
réttarhöldin yfir Gunnari Viðari, líkt
og Johannes Dielissen, annar maður
sem handtekinn var í Hollandi
vegna kókaínmálsins risastóra.
Í tölvupósti til Fréttablaðsins
skýrir Verwoerd svo frá aðild sinni
að máli Gunnars Viðars að hann og
Erez Zizov hafi notað Gunnar sem
millilið í gjaldeyrisbraski.
Gunnar Viðar hafi svo náðst
á mynd hjá lögreglu skila þeim
aftur hluta fjárins í umslagi. Þessi
viðskipti hafi ekki á nokkurn hátt
tengst fíkniefnum. Sjálfur segir Ver-
woerd ekki einu sinni þekkja Roel
Knopper, sem er skráður sendandi
að amfetamínbögglinum.
Spurður um samskipti sín við
Sigurð Ólason og Ársæl staðfestir
Verwoerd það sem fram hefur
komið að þeir Zizov þekki Ársæl
síðan úr hollensku fangelsi, og hann
hafi komið þeim í samband við
Sigurð. Þeir hafi ætlað að stofna hér
fyrirtæki í desember en enginn banki
viljað þjónusta þá. Þeir hafi því beðið
Sigurð um að gera það fyrir þá. Fyrir-
tækið, Hollís, hafi ekki verið stofnað í
því skyni að þvætta peninga.
Verwoerd segist hafa losnað úr
fangelsi fyrir þremur mánuðum, líkt
og allir hinir sem handteknir voru
vegna málsins í Hollandi.
HOLLENDINGUR SEGIST SAKLAUS
GRÍÐARLEGT MAGN Á myndinni má sjá hluta af sýrópsbrúsunum sem lögreglan í
Guayaquil, stærstu borg Ekvadors, lagði hald á í maí. Fíkniefnafundurinn er með
þeim allra stærstu í sögunni. FRÉTTABLAÐIÐ / AP
STJÓRNSÝSLA Mistök urðu til þess
að töf varð á greiðslu atvinnuleys-
isbóta til 2.400 manns um mánaða-
mótin júní/júlí. Umboðsmaður
Alþingis kannaði málið en telur
ekki tilefni til að grípa til aðgerða.
Eftir samkeyrslu við stað-
greiðslugrunn Ríkisskattstjóra var
sú ákvörðun tekin á Greiðslustofu
Vinnumálastofnunar að senda
2.400 manns bréf um óskráðar
tekjur sem sagðar voru hafa áhrif
á bótagreiðslur. Það átti þó ekki
við í öllum tilvikum. Þar sem ekki
var starfsfólk til að bregðast við
öllum athugasemdum var ákveð-
ið að greiða öllum bætur og höfðu
síðustu fengið þær 7. júlí. - kóp
Vinnumálastofnun:
Mistök töfðu
greiðslur bóta
VIÐSKIPTI Heimsmarkaðsverð á
hráolíu féll um tæp fjögur prósent
og fór undir sjötíu dali á tunnu
í gær eftir að bandaríska orku-
málaráðuneytið birti vikulega
tölur um olíubirgðir í landinu.
Olíubirgðirnar jukust um 2,8
milljónir tunna á milli vikna sem
er þvert á væntingar. Mjög hefur
dregið úr olíunotkun og elds-
neytiskaupum um heim allan
upp á síðkastið og hafa aðildar-
ríki Samtaka olíuútflutningsríkja
(OPEC) því ekki séð ástæðu til að
auka olíuframleiðsluna á næstu
mánuðum, að sögn Bloomberg-
fréttaveitunnar. - jab
Olíubirgðir jukust óvænt:
Verðið lækkar
erlendis
DÆLT Á BÍLINN Dregið hefur úr elds-
neytiskaupum í skugga efnahagsþreng-
inga víða um heim.
SAMNINGUR Öryggismiðstöðin
varð hlutskörpust í útboði Ríkis-
kaupa á blóðsýnatökum fyrir
lögregluna á höfuðborgarsvæð-
inu. Fyrirtækið hlýtur samning-
inn, sem var undirritaður í gær,
í eitt ár en hann má framlengja
þrisvar, eitt ár í senn.
Í tilkynningu Ríkiskaupa segir
að samningurinn muni að öllum
líkindum skila 50 milljóna króna
árlegum sparnaði. Kostnaður
dómsmálaráðuneytisins vegna
þessa liðs hafi verið um það bil
100 milljónir króna á ári á höfuð-
borgarsvæðinu. - kg
Útboð vegna blóðsýnataka:
Skilar 50 millj-
óna sparnaði
GENGIÐ 23.09.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
234,7131
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
123,29 123,87
202,57 203,55
182,10 183,12
24,465 24,609
21,162 21,286
18,053 18,159
1,3492 1,3570
195,63 196,79
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR