Fréttablaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 30
24. SEPTEMBER 2009 FIMMTUDAGUR
Ingólfur Kolbeinsson, eigandi
verslunarinnar Vesturrastar,
telur gæsaveiðina hafa gengið
vel það sem af er tímabili.
„Það hefur viðrað ágætlega til
veiða á hálendi og nú er farið að
kólna og þá eykst veiðin á lág-
lendinu. Þegar snjór kemur í fjöll
fer heiðagæsin af landi brott,
sem þýðir að í upphafi tímabils
veiða menn heiðagæs en færa sig
svo yfir í grágæsina enda er hún
lengur á landinu, jafnvel út nóv-
ember.“ Ingólfur segir grágæs-
ir veiðast mest á ökrum. „Akur-
yrkja eykst ár frá ári og kornakr-
ar finnast um land allt. Grágæsin
er þar sem henni líkar að borða og
henni finnst korn gott enda fær
hún miklu meiri orku úr korni en
grasi.“
Ingólfur segir gæsastofnana
fara stækkandi og að veiðar hafi
greinilega engin áhrif þar á enda
séu gæsir duglegar að koma upp
ungum. Hann bendir einnig á
nýja landnema. „Kanadagæs er
farin að sjást hér oftar og verpa
líka. Ef hún nær fótfestu á henni
eftir að fjölga mikið.“ En er
munur á veiði eftir gæsategund-
um? Ingólfur segir svo vera þar
sem heiðagæs sé veidd aðallega á
hálendi, en grágæsin verpi og sé
skotin á láglendinu. En hvað þá
með bragðið? „Heiðagæs er minni
og lifir á heiðargróðri en grágæs-
in lifir á grasi, rótum og korni svo
það er minna villibragð af henni.
Mér finnst heiðagæs betri,“ viður-
kennir Ingólfur og bætir við að
hann snæði gæs yfir veturinn og
þá einkum til hátíðabrigða. „Mér
finnst að villibráð eigi að vera til
hátíðabrigða og vera sérstök en
ekki hversdagslegur matur. Rjúpu
borða ég einu sinni um hátíð-
ar, enda eru tilmæli til manna að
veiða hóflega og miða við að hafa
einu sinni í matinn.“ Ingólfur segir
veiðimenn hafa farið eftir tilmæl-
um um að veiða hóflega enda sé
lykilatriði í veiði að bera virðingu
fyrir náttúrunni. „Ég ber mikla
virðingu fyrir dýrum sem ég veiði,
það eru forréttindi að fá að veiða
í sínu heimalandi og skilyrðin eru
að menn gangi vel um bæði landið
og veiðidýrin.“
Ber virðingu fyrir náttúrunni
Ingólfur Kolbeinsson hjá Vesturröst umgengst náttúruna með virðingu enda telur hann það frumskilyrði fyrir því að fá að veiða.
MYND/ÚR EINKASAFNI
www.hlad.is
Hlaðskotin
Íslensk framleiðsla
fyrir íslenska bráð
Vatnsheldur galli með öndunarfilmu, ynnri jakka,
poka á baki og hólf fyrir skot í vösum.
Sterk vatnsheld taska fyrir skot og aukaútbúnað
Benelli Super Black Eagle II í felulitum
Zabala tvíhleypa 12 ga., yfir/undir.