Fréttablaðið - 24.09.2009, Blaðsíða 44
28 24. september 2009 FIMMTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Jæja!
Ætli það sé ekki
best að fara að...
... byrja! Heyrðu...?
Ætlaðir þú ekki
að skipta um
dekk á bílnum
í dag?
Jú, en
veistu hvað
gerðist...
Finnst þér stund-
um eins og það
sé verið að gera
grín að þér?
Finnst þér ein-
hvern tímann
að svo sé ekki?
Af hverju eru svona
fáar dýrategundir
hér um slóðir?
Látum okkur sjá...
eyðilegging á lifi-
brauði, mengun, sjúk-
dómar, fólksfjölgun...
Hvert ertu að
fara Stjáni?
Ég ætla að
byggja örk!
Af hverju ertu
enn vakandi?
Ég er
ekkert
þreyttur.
Ég get breytt því
með sjö orðum.
Vaknaðu. Þú átt
að fara í skólann.
Virkar alltaf.
Ha,
hvað
geturðu...
Góðar fréttir
elskan.
Læknirinn segir
að ég muni ekki
hrjóta í nótt...
Einu sinni var ég húðskammaður á bloggi fyrir að kalla ungan mann í 10/11 feitlaginn í pistli. Það væri
svo mikil móðgun fyrir unga mann-
inn að vera „kallaður“ feitlaginn að
ég ætti bara að hundskast til að vera
ekki að hreyta slíkum ónotum í
ókunnugt fólk. Sjálfur er ég töluvert
mikið yfir kjörþyngd og hef meira
að segja verið sendur í blóðprufur,
álagspróf á hjartað og kólesteról-
mælingar af æðstu yfirvöldum í
þeirri von að niðurstöður þeirra
mælinga myndu verða til þess að ég
léti af kokkteilsósuáti og kartöflu-
flögufíkn. Ég er feitur og þannig
standa mál í dag.
Ég hef aldrei skilið fólk sem er reiðu-
búið að móðgast fyrir hönd annarra. Í
huga þess fólks má ekki segja hlutina
eins og þeir eru. Þetta fólk er gróðrar-
stía fyrir fordóma þótt það vilji láta hlutina
líta þannig út að það sé opið og frjáls-
lynt og taki öllum opnum örmum. Mestu
fordómarnir felast náttúrlega í því að
reyna að fela staðreyndirnar.
Sjálfur lenti ég einu sinni í þeirri
krísu hvort ég ætti að kalla þekktan
homma „homma“ í frétt um hann og
manninn hans. Ég var hálfpartinn
skammaður af honum fyrir símtal-
ið og spurninguna: „Ég er hommi
og við erum hommapar,“ var auð-
vitað svarið. Hræðsla mín við að
móðga aðra réð þarna ríkjum og
upp frá því hef ég ákveðið að
segja hlutina eins og þeir eru;
sama hvort fólk er feitt eða sam-
kynhneigt. Staðreyndin er nefnilega
sú að það fólk móðgast ekki yfir því
heldur eru það allir hinir sem eru þó
hvorki feitir né samkynhneigðir.
Að móðgast fyrir hönd annarra
NOKKUR ORÐ
Freyr Gígja
Gunnarsson
INGIBJÖRG RAGNHEIÐUR
HITTI FRÆGASTA AUÐMANN
HEIMS Í MISS UNIVERSE:
CLIFF CLAVIN:
„EINTÓMIR STRÁKAR
TALA VIÐ OKKUR
EFTIR TÓNLEIKA —
GLATAГ
RAMMSTEIN FENGU
TYPPIN Í MYNDBANDINU
VIÐ LAGIÐ PUSSY LÁNUÐ
JAY-Z ÆTLAÐI AÐ
DREPA AUTO-TUNE
EN JÓK SÖLUNA Í
STAÐINN
NÝJA MUSE PLATAN GAGNRÝND
HAUKUR Í DIKTU LÆKNAR ÞYNNKU
OG FLEIRA OG FLEIRA OG FLEIRA
NÝTT FYLGIRIT Á MORGUN
MEÐ FRÉTTABLAÐINU