Fálkinn - 16.12.1933, Blaðsíða 13
F Á L K I N N
11
jíólalhtigvekja tíl
foreldrði*
Foreldrar:
Vitið þið hvað þið eruð að gera
þegar þið gefið börnunum ykkar
ógerilsneydda nýmjólk? Hvað
skeður, ef kýrin er sjúk af berkl-
um eða öðrum smitandi sjúk-
dómum, sem berast í mjólkinni
til barnsins? Eða ef mjaltakon-
an er lialdin af sömu veilci,
mjólkursalinn eða einhver sem
við mjólkina fæst?
Þið foreldrar!
Vitið þið ekki að heilbrigð mjólk
er það einasta næringarefni, sem
gefur börnunum ykkar alhliða
næringu? Og vitið þið það, að
mjólkin er sú eina fæða, þar
sem börnin fá fullkominn fjör-
efnaskamt? En ríkuleg fjörefna-
neyzla gefur barninu heilbrigði
og þrótt til að standast árásir
hinna margvíslegu sjúkdóma.
En um leið og það er nauð-
'synlegt, að barninu sje gefin ger-
ilsneydd nýmjólk, þá er ekki
sama, á hvern hátt hún er geril-
sneydd. Rannsóknir síðari ára
liafa leitt í ljós, að allar eldri
gerilsneyðngaraðferðir skemma
fjörefni mjólkurinnar og draga
þannig úr áhrifum liennar til að
hlaða barnslíkamann fjörefnum,
sem gefur aðal-mótstöðuaflið til
að yfirvinna berkla og aðra
liættulega sýkla, sem herja á
hinn veikbygða barnslíkama. Sú
eina aðferð, sem enn þá er þekl
lil að gerilsneyða mjólk án þess
að skemma fjörefni hennar, er
sú aðferðin sem bygð er á upp-
finningum próf. Stassano. Ó-
lirekjanlegar skýrslur frá viður-
lcendum erlendum vísindastofn-
unum sanna að mjólkin heldur
öllum sínum fjörefnum.
Unglingar
og fnllorðið fólk:
Mjóíjdn er ekki aðeins fæðu-
tegund lianda ungbörnum, hún
er sú fæðutegund, sem ungir
sem gamlir eiga að neyta, og
það í ríkum mæli.
Viljið þið lieyra um eina
uppfinninau hins yamla
«0 viðurkenda hnyvits-
manns, Edisons.
Þegar hann sat álútur yfir við-
fangsefnum sínum á nóttunni
og þreytan gerði vart við sig,
drakk hann eitt glas af mjólk,
af því að hann hafði með reynslu
sinni fundið, að mjólk gaf lion-
um nýjan kraft. Hann vissi hvað
það er nauðsynlegt að sainan fari
heilbiúgð sál og hraustur líkami.
0y hvað segir bila-
köngurinn um mjólkina?
Ford drekkur sjálfur mjólk, og
frá verksmiðjum sínum hefir
liann lika góða þekkingu á mjólk
inni. Hann skrifar Jjannig til
dæmis:
„Við höfum glöggar sannanir
fyrir því, að mjólk er eitt af þeim
bestu næringarefnum sem til
eru. Hún liressir verkamennina
upp þegar þeir finna sig þreytta.
Þegar þreytan fer að gera vart
við sig, er ágætt að drekka
mjólk. Nálægt kl. 9 árdegis fá
verkamennirnir hvöt til að líta á
klukkuna, af því að þeir eru
þreyttir og svangir. Þeir liætta
þá augnablik og fá sjer teig af
mjólk, og lialda svo áfram. Um
4-leylið byrjar þreytutímabil, en
mjólkin afstýrir því. I mörgum
tilfellum tekur verkamaðurinn
mjólkurflöskuna upp oft á dag,
og mjólk sem nærandi hressing
hregst aldrei“.
Leyndardómur
mjólkurinnar:
Undir þessari fyrirsögn mætti
skrifa marga dálka, og það væri
liægt að bregða upp margri
mynd, sem flestum er ókunn,
einnig mjólkurframleiðendum.
Ef menn til dæmis setja orðin
gigt og mjólk hvort við annars
iilið, mun flestir án efa vera á
þeirri skoðun, að þetta sje hvort
öðru allsendis óviðkomandi. En
það er það ekki.
Látum okkur — fyrst við liöf-
um leyndardóm mjólkurinnar að
fyrirsögn — gera nokkru nánari
grein fyrir sambandinu milli
mjólkur og gigtar.
Mikið af mat þeim, sem við
liorðum, hefir ekki aðeins góð
efni inni að halda. I mörgum
fæðutegundum eru m. a. hin svo-
kölluðu purinefni; það eru efni,
sem líkaminn hefir enga þörf
fyrir, en geta þvert á móti haft
ýms skaðleg áhrif, ef svo mikið
er af þeim í matnum.
Þessi efni ummyndast nefni-
lega í líkamanum i þvagsýru,
og þegar hún siast út í líkamann,
getur það leitt til ýmissa trufíana
Gigtsjúkdóm má þánnig að miklu
leyti rekja til þessara efna. Þau
eru svo að segja jarðvegur gigt-
arinnar, þessa óvinar lieilsu og
vellíðunar mannsins.
Ef nú ýmsar fæðutegundir eru
bornar saman að þessu leyti,
kemur í ljós, að mjólk, rjómi,
skvr, smjör og ostur er alveg
laus við þessi eiturefni. Einmitt
Jiess vegna stuðlar mjólk einnig.
að þessu leyti að þvi að bæta
matinn.'
Or^tækið um að mjólkin vinni
á móti gigtinni, er þess vegna
ekki úr lausu lofti gripið. Það
liefir sína alveg eðlilegu skýr-
ingu.
rs
Hvað á jeg að gefa barninu mínu í jólagjöf ?
Það er sjálfsagt, að gleðja barnið á jólunum, með því að gefa því eitthvað
fallegt, sem vekur jólagleði þess. En það er ennþá nauðsynlegra, að gefa barn-
inu annað, og sú gjöf brotnar ekki eins og leikfangið eftir nokkra daga. En þessi
jólagjöf á að vera í því fólgin, að þú ákveðir, og lofir barninu þínu því, a.ð frá
þessum jólum og hjeðan í frá skuli það aðeins fá stassaniseraða nýmjólk frá
Mjólkurfjelagi Reykjavíkur.
Af hverju á mjólkin að vera stassaniseruð, og af hverju á hún að vera frá
Mjólkurfjelagi Reykjavíkur, munuð þið spyrja?
Mjólkin á að vera stassaniseruð af því, að það er sú eina óbrigðula trygg-
ing fyrir því, að barnið fái þá mjólk, er veitir því fullkomið öryggi. í fyrsta
lagi gegn því, að mjólkin sje hlaðin hættulegum gerlum og geti á skemri eða
lengri tíma tekið heilsuna frá barninu, eins og mörg ógerilsneydd mjólk gerir.
Og stassaniseruð á mjólkin að vera af þeirri einföldu ástæðu, að það er viður-
kent að Stassano-aðferðin er sú eina gerilsneyðingaraðferð, sem býður neytend-
um það öryggi, að mjólkin innihaldi öll bætiefni óskert að stassaniseringunni
lokinni
Og ástæðan til þess, að hún endilega verður að vera frá Mjólkurfjelagi
Reykjavíkur, er sú, að Mjólkurfjelag Reykjavíkur er sú einasta stofnun hjer á
landi sem hefir þessar vjelar, og því einasta stofnunin, sem getur boðið slíka
tryggingu.
— En um fram alt kaupið mjólkina eingöngu á flöskum og hafið það hugfast, að við sendum hana heim
til hvers sem óskar, honum að kostnaðarlausu.
Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og heilbrigði og farsældar á komandi árum.
MJÓLKURFÉLAG REYKJAVÍKUR.
J