Fálkinn


Fálkinn - 16.12.1933, Síða 13

Fálkinn - 16.12.1933, Síða 13
F Á L K I N N 11 jíólalhtigvekja tíl foreldrði* Foreldrar: Vitið þið hvað þið eruð að gera þegar þið gefið börnunum ykkar ógerilsneydda nýmjólk? Hvað skeður, ef kýrin er sjúk af berkl- um eða öðrum smitandi sjúk- dómum, sem berast í mjólkinni til barnsins? Eða ef mjaltakon- an er lialdin af sömu veilci, mjólkursalinn eða einhver sem við mjólkina fæst? Þið foreldrar! Vitið þið ekki að heilbrigð mjólk er það einasta næringarefni, sem gefur börnunum ykkar alhliða næringu? Og vitið þið það, að mjólkin er sú eina fæða, þar sem börnin fá fullkominn fjör- efnaskamt? En ríkuleg fjörefna- neyzla gefur barninu heilbrigði og þrótt til að standast árásir hinna margvíslegu sjúkdóma. En um leið og það er nauð- 'synlegt, að barninu sje gefin ger- ilsneydd nýmjólk, þá er ekki sama, á hvern hátt hún er geril- sneydd. Rannsóknir síðari ára liafa leitt í ljós, að allar eldri gerilsneyðngaraðferðir skemma fjörefni mjólkurinnar og draga þannig úr áhrifum liennar til að hlaða barnslíkamann fjörefnum, sem gefur aðal-mótstöðuaflið til að yfirvinna berkla og aðra liættulega sýkla, sem herja á hinn veikbygða barnslíkama. Sú eina aðferð, sem enn þá er þekl lil að gerilsneyða mjólk án þess að skemma fjörefni hennar, er sú aðferðin sem bygð er á upp- finningum próf. Stassano. Ó- lirekjanlegar skýrslur frá viður- lcendum erlendum vísindastofn- unum sanna að mjólkin heldur öllum sínum fjörefnum. Unglingar og fnllorðið fólk: Mjóíjdn er ekki aðeins fæðu- tegund lianda ungbörnum, hún er sú fæðutegund, sem ungir sem gamlir eiga að neyta, og það í ríkum mæli. Viljið þið lieyra um eina uppfinninau hins yamla «0 viðurkenda hnyvits- manns, Edisons. Þegar hann sat álútur yfir við- fangsefnum sínum á nóttunni og þreytan gerði vart við sig, drakk hann eitt glas af mjólk, af því að hann hafði með reynslu sinni fundið, að mjólk gaf lion- um nýjan kraft. Hann vissi hvað það er nauðsynlegt að sainan fari heilbiúgð sál og hraustur líkami. 0y hvað segir bila- köngurinn um mjólkina? Ford drekkur sjálfur mjólk, og frá verksmiðjum sínum hefir liann lika góða þekkingu á mjólk inni. Hann skrifar Jjannig til dæmis: „Við höfum glöggar sannanir fyrir því, að mjólk er eitt af þeim bestu næringarefnum sem til eru. Hún liressir verkamennina upp þegar þeir finna sig þreytta. Þegar þreytan fer að gera vart við sig, er ágætt að drekka mjólk. Nálægt kl. 9 árdegis fá verkamennirnir hvöt til að líta á klukkuna, af því að þeir eru þreyttir og svangir. Þeir liætta þá augnablik og fá sjer teig af mjólk, og lialda svo áfram. Um 4-leylið byrjar þreytutímabil, en mjólkin afstýrir því. I mörgum tilfellum tekur verkamaðurinn mjólkurflöskuna upp oft á dag, og mjólk sem nærandi hressing hregst aldrei“. Leyndardómur mjólkurinnar: Undir þessari fyrirsögn mætti skrifa marga dálka, og það væri liægt að bregða upp margri mynd, sem flestum er ókunn, einnig mjólkurframleiðendum. Ef menn til dæmis setja orðin gigt og mjólk hvort við annars iilið, mun flestir án efa vera á þeirri skoðun, að þetta sje hvort öðru allsendis óviðkomandi. En það er það ekki. Látum okkur — fyrst við liöf- um leyndardóm mjólkurinnar að fyrirsögn — gera nokkru nánari grein fyrir sambandinu milli mjólkur og gigtar. Mikið af mat þeim, sem við liorðum, hefir ekki aðeins góð efni inni að halda. I mörgum fæðutegundum eru m. a. hin svo- kölluðu purinefni; það eru efni, sem líkaminn hefir enga þörf fyrir, en geta þvert á móti haft ýms skaðleg áhrif, ef svo mikið er af þeim í matnum. Þessi efni ummyndast nefni- lega í líkamanum i þvagsýru, og þegar hún siast út í líkamann, getur það leitt til ýmissa trufíana Gigtsjúkdóm má þánnig að miklu leyti rekja til þessara efna. Þau eru svo að segja jarðvegur gigt- arinnar, þessa óvinar lieilsu og vellíðunar mannsins. Ef nú ýmsar fæðutegundir eru bornar saman að þessu leyti, kemur í ljós, að mjólk, rjómi, skvr, smjör og ostur er alveg laus við þessi eiturefni. Einmitt Jiess vegna stuðlar mjólk einnig. að þessu leyti að þvi að bæta matinn.' Or^tækið um að mjólkin vinni á móti gigtinni, er þess vegna ekki úr lausu lofti gripið. Það liefir sína alveg eðlilegu skýr- ingu. rs Hvað á jeg að gefa barninu mínu í jólagjöf ? Það er sjálfsagt, að gleðja barnið á jólunum, með því að gefa því eitthvað fallegt, sem vekur jólagleði þess. En það er ennþá nauðsynlegra, að gefa barn- inu annað, og sú gjöf brotnar ekki eins og leikfangið eftir nokkra daga. En þessi jólagjöf á að vera í því fólgin, að þú ákveðir, og lofir barninu þínu því, a.ð frá þessum jólum og hjeðan í frá skuli það aðeins fá stassaniseraða nýmjólk frá Mjólkurfjelagi Reykjavíkur. Af hverju á mjólkin að vera stassaniseruð, og af hverju á hún að vera frá Mjólkurfjelagi Reykjavíkur, munuð þið spyrja? Mjólkin á að vera stassaniseruð af því, að það er sú eina óbrigðula trygg- ing fyrir því, að barnið fái þá mjólk, er veitir því fullkomið öryggi. í fyrsta lagi gegn því, að mjólkin sje hlaðin hættulegum gerlum og geti á skemri eða lengri tíma tekið heilsuna frá barninu, eins og mörg ógerilsneydd mjólk gerir. Og stassaniseruð á mjólkin að vera af þeirri einföldu ástæðu, að það er viður- kent að Stassano-aðferðin er sú eina gerilsneyðingaraðferð, sem býður neytend- um það öryggi, að mjólkin innihaldi öll bætiefni óskert að stassaniseringunni lokinni Og ástæðan til þess, að hún endilega verður að vera frá Mjólkurfjelagi Reykjavíkur, er sú, að Mjólkurfjelag Reykjavíkur er sú einasta stofnun hjer á landi sem hefir þessar vjelar, og því einasta stofnunin, sem getur boðið slíka tryggingu. — En um fram alt kaupið mjólkina eingöngu á flöskum og hafið það hugfast, að við sendum hana heim til hvers sem óskar, honum að kostnaðarlausu. Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og heilbrigði og farsældar á komandi árum. MJÓLKURFÉLAG REYKJAVÍKUR. J

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.