Fálkinn - 16.12.1933, Side 39
F Á L K I N N
37
Skölinn og leikfimishúsið.
sem fyrstur ljet reisa kirkju á
Hólum, og var hún vandaðri en
títt var um islenskar ltirkjur þá,
en hún brann eftir skamma
stund. Hina fyrstu biskupakirkju
þar Ijet Jón helgi reisa og stóð
hún þangað til á dögum Jörund-
ar biskups (1267—1313), en
hann ljet byggja aðra stærri, 50
álna langa og stóð hún um 100
ár, en hrundi 1394 i tíð Pjeturs
biskups Nikulássonar, er reisti
bina næstu kirkju, er staðið mun
hafa rúm 200 ár, eða þangað til
á dögum Guðbrands, en brotn-
aði á ellidögum hans, svo að eklci
varð hringt á staðnum. Næsta
kirkjan stóð svo til 1754 er liún
var rifin og þá'reist kirkja sú,
sem enn stendur á staðnum og
telja má með merkustu bygging-
um landsins. Var hún hlaðin úr
sandsteini úr Ilólabyrðu og kalk-
húðuð. Iíirkja þessi er að með-
talinni forkirkjunni 41 alin á
lengd en 15 á breidd. Aðaldyr
voru um forkirkjuna á vestur-
gafli, en auk þess dyr á suður-
hlið, kallaðar frúardyr, en um
þær gengið inn í „frúarstúkuna"
sem var undir prjedikunarstóln-
um. Há milligerð var á milli
kórs og kirkju en utanvið hana
norðan megin var biskupsstúk-
an. Innri gerð kirkjunnar hefir
verið breytt á ýmsan hátt frá
því, sem upprunalega var og
flestir hinna góðu gripa sem
kirkjan átti eru horfnir; tóku
Danir suma, en aðrir hafa lent í
þjóðminjasafninu í Reykjavík
og má þar nefna kápu Jóns bisk-
ups Arasonar, sem enn er notuð
við biskupsvígslur.
Iíaþólskir biskupar á Hólum
munu jafnan eða nær altaf hald-
ið skóla á stólnum, þó ekki sje
þess getið nema um suma þeirra.
En eftir siðaskiftin voru settar
fastar reglur um skólahald á
Hólum og í Skálliolti og lijelst
Hólaskóli til 1800, að hann var
lagður niður eins og prentsmiðj-
an, þegar hiskupsdæmið var af-
numið. Nemendur skólans skyldu
vera 24 en kennarar tveir en
yfirumsjón skólans var i hönd-
um biskups og galt liaim kostnað
við skólahaldið af tekjum stóls-
jarðanna. Skólameistarinn fjekk
i árslaun 60 rikisdali i smjöri,
fiski, vaðmáli og peningum en
til fæðis fjekk hann eitt naut,
fjóra sauði fullorðna, 6 malt-
tunnur, eina smjörtunnu, eina
tunnu af salti en þrjár af mjöli,
260 fiska og svo mjólk og skyr
eftir þörfum. En heyrarinn eða
konrektorinn fjekk 20 dala laun
auk fæðis. Piltum var skift í tvo
flokka eftir stærð, og fengu þeir
stærri meiri skamt og 10 álnir
vaðmáls til fata, en hinir smærri
ekki nema 7. —■
Sú námsgreinin sem langmest
rækt var lögð við var vitanlega
latínan, áttu skólasveinar eigi að-
eins að geta skilið latínu á bók
heldur lika geta talað hana og
ritað. Gríska var einnig lesin og
Nýja testamentið notað við nám-
ið, einnig áttu þeir að kunna að
lesa og skrifa íslensku og dönsku
og læra svolítið í hebresku, þeir
sem færastir voru. Aðrar náms-
greinar voru trúfræði, siðfræði,
saga og söngfræði. Skólanámið
var tvö ár, að því loknu gátu
stúdentarnir orðið prestar.
Mannmargt hefir oft verið á
Hólum í þá daga og liefir heim-
ilisfólk sjálfsagt oft verið um
hundrað og auk þess var mikið
um farandfólk á staðnum í sum-
um árum. En það var af miklu
að taka. Kringum 1660 er talið
að stóllinn hafi liaft afgjald af
318 jörðum, sem honum höfðu
gefist og landskuldir um 370
hundruð auk eftirgjalds fyrir
1435 kúgildi. Telst til að þessar
landskuldir hafi numið um
40.000 krónum ó ári, með því
verðlagi sem var fvrir stríð. En
þó var Hólastóll miklu auðugri
en þetla síðustu 100 árin fyrir
aftöku Jóns Arasonar.
Þegar biskupsstóllinn var lagð-
ur riiður voru Hólar seldir —
fvrir 2400 dali og komust nú
aftur í einstaks manns eign. í
bvrjun 19. aldar var almennur
skortur á byggingarefni um land
alt, m. a. af samgönguteppu
þeirri er fylgdi Napóleonsstyrj-
öldunum og því var það, að hin-
ir nýju eigendur Hóla seldu
staðarhúsin til niðurrifs og voru
þau flutt til næstu bæja. Þarna
hafði áður verið fjöldi húsa, til-
heyrandi biskupsstólnum, skól-
anum og prentsmiðjunni og er
talið að þau liafi verið alt að
60 með útihúsum. En alt þetta
hvarf, að kalla mátti eftir að
Hólar urðu bændaeign, nema
dómkirkjan. Ilún var úr steini
og varð ekki rifin. Eitt hús var
það á Hólum, seni mikill sökn-
uður var að missa, en það var
Auðunnarstofa svonefnd, reist
af Auðunni biskupi Þorbergssyni
ig orðin 500 ára er hún var rif-
in fyrir rúmuin 100 árum og
snemma á 14 öld. Var hún þann-
hafði verið svo ósködduð, að
sennilegt er að liún gæti staðið
enn i dag, ef sæmilega liefði ver-
ið haldið við.
Árið 1882 hefst nýtt tímabil i
sögu Hóla. Þeir höfðu nú lifað
við lítinn orðstír í 80 ár, en þetta
ár kaupir sýslunefnd Skagfirð-
inga jörðina fvrir 14.000 krónur
í þeirri tilgangi að stofna þar
búnaðarskóla. Sá skóli liefir nú
staðið í fimtiu ár og hafa marg-
ar breytingar orðið lil hins betra
á þeirri hálfu öld.
Hólar mega teljast með hestu
jörðum landsns, en jörðin liefir
ekki tekið öðrum eins stakka-
skiftum allan þann tíma sem
biskupsstóll var á Hólum eins og
á þessu siðasta tímabili. Þar
hafa verið gerðar jarðarbætur
miklar og jörðin húsuð vel, svo
að nú er ærið staðarlegt heim
að lita til Hóla, eins og mynd-
irnar, sem hjer gefur að líta
hera vott um. Ber nú einna liæst
á hinu nýja skólahúsi, sem er
stórbygging á íslenskan mæli-
kvarða. En það er kirkjan sjálf,
sem er og verður gimsteinninn
meðal þessara bygginga, svo
lengi sem hún stendur. Og ]iað
er sennilegt, að hún eigi eftir að
standa af sjer flest nýrri húsin,
sem reist hafa verið á Hólum í
tíð liins nýja skóla.
Og Ilólar hafa fengið biskup
aftur, þó nokkuð sje með öðrum
hætti en fyr. Þegar lög voru setl
um vígslubiskup á Alþingi 1909,
var annar þessara nýju auka-
biskupa kendur við Skálholts-
stifti eu liinn við Hóla. Geir
Sæmundsson prófastur á Akur-
eyri var liinn fyrsti vígslubiskup
Hóla en Hálfdán prófastur á
Sauðárkróki annar, var liann
vígður í Hólakirkju að viðstödd-
um fjölda fólks. Og prestar liafa
nokkrir verið vígðir þar.
Þannig liafa Hólar enn i dag
hæði biskup og skóla. Skólinn er
að vísu búnaðarskóli og biskup-
inn vígslubiskup en ekki starf-
andi yfirmaður allrar kristni i
Hólastifti. En tímarnir hreytast.
Og þó munu þeir aldrei breytast
svo, að eigi verði bundnar við
Hóla flestar dýrustu minningar,
sem Norðlendingar eiga.
Ilúlar. í baksýn frá v.: Hólabyrða, Ifagafjall og lieykjahyrna.