Fálkinn


Fálkinn - 19.12.1936, Blaðsíða 22

Fálkinn - 19.12.1936, Blaðsíða 22
MARIE HAMSUN: k AIIPSTA » A IRFF.IRftlN Þessi saga fjallar um Pjetur þann, sem kallaður var Fjósa- Pjetur, en œttarnafn lians vissi enginn, því að það var aldrei notað. Hann hafði vistast þarna á hænum þegar hann var lítill, sem niðursetningur á sveitinni cg snemma var hann látinn fara að hjálpa til við gegning- arnar. Og árin liðu. Nú var liann stór og fermdur og fjekk eigi aðeins föt og fæði heldur Iíka kaup, þó ekki væri það liátt, heldur lítil uppörvun. Hann fjekk eitt ullarreifi og venjulega finrm krónur fyrir jólin; svo átti hann eggin, sem svarta hænan verpti í tunnuna í fjósgöngunum. Fjósa-Pjetur var orðinn mað- ur með mönnum og ýms trún- aðarstörf voru honum falin. Það var hann, sem sendur var í kaupstaðinn á Þorláksmessu til þess að sækja vörurnar, sem húsmóðirin hafði beðið um í símanum. Þaði var.ekki á hverjum degi, sem Pjetur ók í húsbóndasleð- anum með bjarnarfeld á linján- um. En svo er heldur ekki Þor- láksmessa á liverjum degi, og Pjetur tók upphefð sinni með stillingu. Hann hafði vanist því frá bernsku að taka flestu með stillingu og þessvegna misli hann ekki jafnvægið svo hann færi að hoppa eða syngja, þegar Brúnka var komin fyrir sleðann með finu bjölluaktýgin hús- hóndans. Húsbóndinn kom út með slásslegan yfirfrakka og sagði, að Pjetur gæti fengið hann í dag, það væri betra upp á sam- ræmið. Pjetur fór í frakkann utan yfir sparijakkann sinn og hnepti að sjer. Hann var ferðbúinn. Prr .... Brúnka! .... stattu kyrr! Haltu snöggvast í tauin- ana fvrir mig, sagði hann við eitt af börnunum, sem stóð hjá. Jeg gleymdi dálitlu! Hann fór inn í hesthúsið, hnepti frá sjer frakkanum og náði með erfiðismunum eld- spítustokk og sígarettuöskju úr huxnavasa sínum. Hann opnaði öskjuna og tók sígarettu úr henni. Þessa öskju hafði hann fundið uppi i skógarkofa um haustið. Nokkrir veiðimenn höfðu legið þar við og þeir höfðu skilið eftir öskju með al- veg heilli og óbrúkaðri sigar- ettu. Merkilegt að nokkur mað- ur skyldi gleyma slíku. Pjetur undraðist það ríkidæmi og eyðslu, sem það lýsti að skilja svoleiðis eftir. Ríkur var hús- bóndinn og frúin rausnarleg, en aldrei hafði það komið fyrir, að þau fleygðu frá sjer heilli sig- arettu. Pjetur hafði geymt sígarett- una síðan, en honum fanst hann geta leyft sjer að kveikja í henni í dag og reykja af henni eins og hálfan þumlung. Og þess- vegna tók hann nú upp öskjuna og eldspíturnar, setti hvort- tveggja í húfuna og húfuna á höfuðið. Þá gæti liann náð til sígarettunnar á rjettum tíma. Og rjett á eftir gátu allir, sem langaði, sjeð þegar Pjetur ók í kaupstaðinn. Og marga langaði til þess. Allstaðar ])ar sem Pjetur fór framhjá, voru andlit í gluggun- um. Fólk varð að skoða, hvaða stórmenni það var, sem ók út veginn með bjöllur á aktygj- unum. Já, glápið þið bara, hugsaði Pjetur og var háleitur og fann til sín. Hann kærði sig ekkert um alla þessa glugga, það var aðeins einn gluggi á allri leið- inni, sem honum var ekki sama um og það var langt þangað ennþá, því að sá gluggi var rjett fyrir utan kaupstaðinn. Ja, herra minn! Ef það vildi nú svo vel til, að hún liti út um gluggann í dag og sæi hver væri á ferð í fina sleðanum! Hann hafði eiginlega ekki sjeð hana síðan í sumar, þegar hún sat yfir kúnum í nágranna- selinu. Þegar rigndi hafði hann svo oft hjálpað henni og leitað uppi kálfana fyrir hana og því um líkt. Hann liafði líka lagt líf sitt i hættu til að ná í hindber lianda henni. Nú man hann steikjandi heit- an sólskinsdag. Þau sátu í mjúk- um mosa í skrælþurri mýrinni og hún var svo ósegjanlega vær og alúðleg í hitanum að hún lagði sig endilanga með höfuðið á hnjánum á honum. Svo hló hún og gat ómögulega hætt að hlæja og því siður gat hún risið upp aftur. Hann er að hugsa um þetta og honum liýrnar um allan lík- amann. Hann hrettir frakka- kragann niður og andvarpar þungt. I sama bili hleypur Brunka út undan sjer, eins og hún væri að skjótast úr vegi fyrir ein- hverjum. En það var nú ekki mikið að láta,’það var bara hún lialta Maren, sem átti heima þarna á næstu grösum. Og þó Brunka hrykki við þá hrökk Maren enn meira við; hún hrökk svo eftirminnilega við að hún datt og lá eins og skata á vegarbrúninni. Hvernig fórstu að þessu?sagði Pjetur og staðnæmdist. Æ, sagði hún, og stóð upp með mestu erfiðismunum, — það fór eins og búast mátti við, þegar gömul og gigtveik kona mætir höfðingjum, sagði hún og kýmdi. — Það var verst með mjólkina. Já, það var verst með mjólk- ina, það sá hann nú. Fatan hennar lá á hvolfi við veginn og hver dropi hafði farið niður. Sestu upp á sleðann, Maren, sagði hann, ekki skaltu mjólk- urinnar missa, þó svona færi. Jeg skal sjá um, að þú fáir lögg á rnorgun til jólanna. Og jeg skal reyna að koma með liana sjálfur, hætti hann við. Og svo settist Maren glöð og ánægð aftan á sleðann. Jeg á ekki svo langa leið, sagði hún. En það er ekki svo oft sem manni er boðið að aka. Já, nú fara jólin að nálgast, sagði Pjetur, Já, víst er svo, sagði Maren og andvarpaði. Nú, svo hún andvarpaði. Pjet- ur sagði: Hefirðu ekki hugsað þjer fyrir jólamat og þesshált- ar, Maren? Ojæja, það er nú aðallega mjólkin. Hún er vön að koma á sínum tíma, jafn áreiðanlega og jólin koma, sagði hún. Og svo var hún vön að fá fleskbita hjá nágrannanum, það brást heldur ekki. Svo því vafr öllu óhætt. Þú munt ekki hafa eignast hveitibollur? Hveitibollur? Nei, nú ertu að gera að gamni þínu. Ónei, þetta var ekkert spaug. Hann átti hænu. Svarta liænu. Og nú var hann með sleðann fullan af eggjum, sem svarta liænan hafði verpt. Það yrðu einhver ráð að víkja að henni fullum poka af hveitibollum og meira til. Svo ef það væri eitt- hvað sjerstakt, sem liana lang- aði í til jóladaganna skyldi hún hara segja til, sagði Pjetur og var bólginn af velmegun. Já, ef hann væri svo göfug- lyndur að víkja henni einni flösku af steinolíu þá kæmi það sjer vel. Hún skyldi láta liann liafa tóma flösku með sjer, ef hann vildi aðeins hinkra við hjá kofanum hennar. Steinolíu? Datt henni ekkert annað í hug? Ein flaska af steinolíu — það var nú smá- ræði fyrir Fjósa-Pjetur. En Maren gat ekki dottið neitt annað í hug — þetla kom svo óvænt. Langaði hana ekki í eina flösku af saft? Út á jólagraut- inn! Jú-ú. Úr því að hann sagði það, þá — — Nú voru þau komin að Mar- enarkofanum. Hún þakkaði hon- um margsinnis fyrir aksturinn og alt hitt. Aldrei liafði nokkur maður verið eins vingjarnlegur við hana, sagði hún. Og hún fjekk tár í augun. Og Pjetur líka.--------- Hann ók áfram. Beina leið að ákveðnum glugga. Nú var tími til kominn, að gera nauðsynlegan undirhún- ing. Hann staðnæmdist í svo- litlu rjóðri, tók ofan húfuna. náði í sigarettuna og kveikti í lienni. Svo ók hann hægt áfram. Og nú var það í guðs hendi, hvo.rt svo vildi til að hún sæi hann. Hann gat ekki gert svo lítið úr sjer, að snúa höfðinu til lilið- ar um leið og hann færi fram- hjá. En hann gaut hornauga til hússins, og liann fann hlýjan blóðstraum alveg ofan í hæla, þegar hann sá andlitið á henni bak við rúðuna. Drottinn blessi hana, hún var svo falleg! Svona, nú var hann horfinn úr augsýn, svo að nú gat liann slökt i sígarettunni. Hann skirpti á ltana til að slökkva neistann, lagði stuhbinn aftur ofan í öskj- una og slakk svo öllu í húfuna aftur, til þess að tefja sig ekki um of. Pjetu,r fjekk að bíða i búðun- um í dag. Ilvar sem liann kom inn voru einhverjir aðrir fýrir og hvernig sem hann fór að, var hann alstaðar afgreiddur siðastur. Það sópaði að honum meðan liann sat á sleðanum, en í búðunum var hann bara núll og Fjósa-Pjetur. Hver gat líka talað með krafti og myndugleik við svona skrúðbúinn búðar- mann, með liárlokk ofan á enni og gildan gullhring á fingrinum. Pjetur stóð lúðulakalegur úti við dyr í bókaversluninni. Það lá illa á honum, því að tíminn leið og það var farið að skyggja. Þá laukst hurðin upp og einn gesturinn enn kom inn og það var — já það var þá hún hún Amanda. Átti liann að trúa, að hún hefði elt hann þangað. Komið þangað hans vegna? Það kom á hann og hann reif af sjer liúfuna. Og sígar- ettuaskjan og spítnastokkurinn þeyttust fram á gólf .......... Pjetri hefði fundist það há- líð hjá þessu, þó að þakið hefði riðið ofan og marið alla til hana, senr inni voru. En fólkið skemti sjer og tal- aði unr sigarettuliylkið hans. Það væri ekki sjerlega fallegt, fansl því. Og Amanda liló mest af öll- um. Pjelur beygði sig og fór að týna sanran hlutina, og ljet dragast sem lengst að líta upp aftur. En þá loks að hann leil upp var liann orðinn blóðrjóð- ur í frarnan af áreynslunni. Amanda hló enn. Hann var þá eins og hirðfífl, það var ó- mögulegt að hætta, ef maður

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.