Fálkinn - 31.05.1961, Síða 6
INGER LARSEN, sem var bú-
sett hér á landi um sex ára
skeið, en starfar nú við sjón-
varpið danska, kom hingað til
lands fyrir nokkru ásamt fleiri
sjónvarpsmönnum til þess að
taka upp efni um ísland. Þau
dvöldust hér í fjórtán daga og
tóku upp 5000 metra filmu af
efni og úr því verða fimm dag-
skrár. Sú fyrsta hefur þegar
verið flutt, en hinar munu
fylgja í kjölfarið á næstunni.
Ein dagskráin verður eingöngu viðtal við
Halldór Kiljan Laxness, sem Inger Larsen
hafði við skáldið. Laxness segir í viðtalinu
frá ritstörfum sínum, menningarlífi almennt
á íslandi og minnist meðal annars á hættuna
á „ameríkaniseringu“ vegna Keflavíkurflug-
vallar.
★
EIGINKONA söngvarans
fræga, Lauritz Melchiors, var
nýlega að gera innkaup í
Hollywood. í einum búðar-
glugga kom hún auga á næf-
urþunna, gagnsæja náttkjóla í
ýmsum litum. Hún keypti einn
fyrir sjálfa sig og annan, sem
hún ætlaði til gjafar. Hún
sendi hann vinkonu sinni í
Þýzkalandi, sem hún hafði
ekki séð nokkur ár. — Sér til
mikillar furðu, móttók eigin-
kona söngvarans, frú Kleinchen, þakkarbréf
frá vinkonunni nokkru síðar. í bréfinu stóð:
— Ég er því miður orðin of gömul til að ganga
í svona kjólum. En ég gaf frænku minni kjól-
inn og hún gerði mikla lukku í honum á
balli í gærkvöldi!
★
FRANSKA greifynjan Berna-
dotte, ættingi sænsku kon-
ungsfj ölskyldunnar, hefur á-
kveðið að taka tilboði upp á
milljón gamla franka, — á að
gizka 750 000 krónur — fyrir
einn einasta kjölturakka. Það
er Bandaríkjamaður, sem vill
kaupa einn af kjölturökkum
greifynjunnar fyrir þetta yfir-
gengilega verð. Greifynjan
hefur lengi háft mikið dálæt.i
á hundum og á nú sem stend-
ur rúmlega 50 hunda. Hvuttinn, sem seldur
var, er af sérstaklega góðu kyni og hefur ver-
ið alinn upp á hávísindalegan hátt.