Fálkinn - 31.05.1961, Qupperneq 13
konungs, og voru þó báðir lýðveldis-
sinnar í gamla daga.
„Ditt löfte, Alt for Norge,
det har Du trofast holdt.
Mens vi stod fram pá torget
og ropte pá revalt, —“
segir Överland í sínu konungskvæði.
Ljósari sannanir fyrir hinum dæmafáu
vinsældum verða ekki fengnar. í upp-
hafi konungsdæmis sína var Hákon
konungur sjöundi virtur og vinsæll, en
þegar hann skildi við þennan heim, eft-
ir 52. ára ríkisstjórn, 21. sept. 1957, var
hann dáðari og elskaðri en nokkur
þeirra fimmtíu Noregskonunga, sem á
undan honum voru gengnir. Og aðeins
einn þeirra, Kristján IV., ríkti lengur
en hann.
Maud drottning andaðist í London 20.
nóvember 1938.
ÓLAFUR KONUNGUR FIMMTI, sem
nú heimsækir ísland ■—■ og er fyrsti
Noregskonungur, sem stigið hefur hér
fæti á land, — hefur alizt upp með þjóð
sinni frá blautu barnsbeini, því að hann
var aðeins rúmlega tveggja ára er hann
kom á norska grund, á handlegg föður
síns, haustið 1905. Hann er því sam-
gróinn þjóðinni frá öndverðu og þekkir
allar stéttir manna út í æsar. Frá barns
aldri hefur hann verið ástmögur þjóð-
arinnar. Hann gerðist fljótt afreksmað-
ur í skíðagöngum og skemmtisiglingum
og eignaðist vegna íþróttanna fjölda
vina. Lagði stund á hermennsku og
stjórnfræði og fór þegar eftir myndug-
leikaaldur að taka þátt í ríkisráðsfund-
um með föður sínum og var því orðinn
gagnkunnugur stjórnarathöfninni löngu
áður en hann tók ríki.
Þann 21. marz 1929 gekk hann að
eiga Marthu Svíaprinsessu, dóttur
Carls hertoga og Ingeborg Danaprin-
sessu. Mártha krónprinssessa var fædd
í Stokkhólmi 28. marz 1901. Þeim Ólafi
konungi varð þriggja barna auðið.
Ragnhild Alexandra fæddist 9. júlí 1930
í höllinni í Osló. Hún giftist 14. maí
1953 Erling Sven Lorentzen forstjóra og
eiga þau heima í Suður-Ameríku. Næst
er Astrid Maud Ingeborg, fædd 12. febr.
1932, og giftist 12. janúar s.l. John
Martin Ferner stórkaupmanni. Þó að
báðar systurnar séu giftar mönnum úr
borgarastétt halda þær prinsessutitlin-
um eftir sem áður. Þriðja barn Ólafs
konungs er ríkiserfinginn, Haraldur
Noregsprins, fæddur 21. febrúar 1937.
Hann er enn ókvæntur og stundar nám
í Oxford.
Mártha krónprinsessa andaðist 5. ap-
■
mmm
. \i ...
, v: . .' '..■■■. ; v
> : - S
:
ríl 1954. Var þá þjóðarsorg í Noregi, því
að krónprinsessan var vinsæl svo af
bar, fyrir ljúfmennsku við alla og frá-
bæran áhuga fyrir ýmsum nytsemdar-
málum, ekki sízt því, sem miðaði að
því að bæta kjör þeirra sem bágt áttu
og hlúa að sjúku fólki. í þeim anda
starfar stofnun, sem við hana er kennd:
Kronprinssesse Mártha Minneford.
Krónprinsessan varð að flýja land til
Ameríku á stríðsárunum ásamt börn-
um sínum, og starfaði þar ótrauðlega
að bæta hag norskra manna, sem
dvöldu þar um stundarsakir.
Norskur höfðingi, Wedell Jarlsberg
gaf Ólafi þáverandi krónprins óðalsetr-
ið á Skógum (Skaugum) í brúðkaups-
gjöf. Þar bjó krónprinsinn lengstum
meðan hann var krónprins, en síðan í
konungshöllinni í Osló. Þriðji konungs-
bústaðurinn er Bygdö kongsgárd, en
þar dvaldi Hákon konungur að sumar-
lagi. í Bergen er og konungsbústaður
fyrir utan borgina, gefinn af stjórn-
málaforingjanum Chr. Michelsen.
Ástsæll er Ólafur konungur, ekki síð-
ur en faðir hans. Hann er maður glögg-
ur og víðsýnn, frjálslyndur í skoðunum
og þýður í samvinnu við stjórn sína.
Hann gerir sér mikið far um að halda
sem beztum tengslum og kynnum við
þjóðina og ferðast því mikið og er ólat-
ur að verða við óskum víðsvegar að,
þegar vígja skal mannvirki eða reisa
minnismerki. En honum er lítið gefið
um ytri viðhöfn. Þannig lét hann ekki
krýna sig til konungs í Niðarósi, svo
sem gert höfðu næstu konungar á und-
an honum, en fór hins vegar til Niðar-
óss og lét signa sig í dómkirkjunni þar,
og í sambandi við það fór hann um
marga staði sunnan Þrændalaga. Og
aðra ferð fór hann síðar, alla leið norð-
ur á landsenda ríkis síns.
— Þó að Ólafur konungur sé fyrsti
Noregskonungur, sem til íslands hefur
komið, kemur hann þó ekki á ókunnar
slóðir er hann heimsækir íslenzku þjóð-
ina. Sem krónprins kom hann hingað í
júlí 1947 og afhjúpaði líkneski Snorra í
Reykholti 20. júlí. — „Minnismerkið er
til þess gert og þess vegna afhjúpað hér
í dag, að við Norðmenn viljum lýsa á
varanlegan hátt, í hve mikilli þakkar-
skuld við teljum okkur vera við þenn-
an ódauðlega sagnaritara,“ mælti hann
þá.
íslendingar fagna komu þessa æðsta
manns þjóðar þeirrar, sem okkur er
skyldust allra. Mætti koma konungsins
verða til þess að styrkja þau vináttu-
bönd, sem eru milli þjóðanna, og stuðla
að auknum kynnum og samstarfi.
Sk. Sk.
Á Eiðsvelli, sem er 65 km norður
frá Osló, var í febrúar 1914 hald-
inn fundur 112 fulltrúa, sem kosn-
ir voru af kjörmönnum í sveitum og
borgum. Fundurinn lýsti því yfir,
að Noregur skyldi vera algerlega
sjálfstætt ríki.
FÁLKINN
13