Fálkinn - 31.05.1961, Blaðsíða 29
sem er hvít eða gulhvít, lifir í hylkjum
eða púpum, sem bera sama lit og það
efni, sem þær nærast á, þar sem smá-
agnir af efninu þekja púpuna.
Ef föt eru hengd til geymslu, án þess
að þau séu viðruð og burstuð nákvæm-
lega, brotum og vösum snúið við, burst-
að vel í öllum rykkingum og föllum,
getur mölurinn dafnað vel í þeim í hlýj-
um og dimmum skápum. Getur lirfan
á stuttum tíma etið stór göt á efnið
eða nagað burt alla ló af því. Matar-,
fitu. og svitablettir í fatnaði draga möl-
inn að sér, og einnig gamlar skinna-
vörur. Einnig getur bómullar- og alsilki-
fatnaður orðið fyrir barðinu á fatamöln-
um, er þó sjaldgæft.
En hver er þá bezta
vörnin gegn möl?
Hreinlæti fyrst og fremst. Viðrið all-
an fatnað oft og þvoið allan þann ullar-
fatnað, sem hægt er að þvo, áður en
hann er látinn til hliðar. Hreinsið vel
allar fatahirzlur og fataskápa, og getur
verið gott að þvo þá úr salmíakvatni,
sé hætta á, að mölur hafi komizt í þá.
Þá fást í lyfjabúðum ýmis efni, sem
sprauta má í fatahirzlur, einnig undir
teppi og í húsgögn. Bezt er að fara eftir
leiðarvísi, sem fylgir hverri tegund.
Þá er gott að hafa kamfórumola eða
naftalínkúlur til varnar í hirzlur og
ílátum, en þetta kemur því aðeins að
gagni, að hirzlurnar séu loftþéttar, því
að annars gufa þær fljótlega upp. Lykt-
in af þessum tegundum leitar niður, er
þyngri en andrúmsloftið, á því alltaf
að hengja eða leggja þessar kúlur ofan
í ílátin, eigi þær að koma að notum.
Sé hætta á að mölur hafi komizt í
fatnað, er gott að láta hann hanga i
sterku sólskini í nokkra tíma, en það
drepur bæði eggin og lirfurnar. 50,C
vinnur líka á mölnum, og má því nota
heitt strokjárn, pressa fatnaðinn vandl-
lega með því. Þá drepur frost einnig
mölinn, og nægir að hafa hluti, sem
mölur hefur komizt í, í 35° frosti á C
í 1 klst., eða við 0° í þrjár vikur. Er
þetta einkum gott við bólstruð húsgög'n,
sem oft eru mölbæli, og erfitt að kom-
* ast að því að uppræta mölinn í þeim.
Hentugt er að geyma fatnað í plastic-
eða pappírspokum. Viðrið og burstið
eða þvoið allt vel, áður en það er látið
* í pokana. Merkið pappírspokana, en
Púpa af fatamöl.
Brauöterta fyrir karlmenn
Bakið kringlótt brauð úr góðu deigi, kljúfið það í tvennt. Notið bara annan
helminginn. Smyrjið hann með smjöri, ágætt að blanda dálitlu af sinnepi eða
karrý saman við það. Leggið græn salatblöð þar ofan á, síðan bragðsterkan ost,
hann má ýmist rífa eða leggja í sneiðum eins og myndin sýnir. Búið til kram-
arhús úr ,,spegi“pylsusneiðum eða skinkusneiðum, fyllið þau með mörðum ananas
eða eplamauki, festið þeim með trépinnum. í miðjunni er lögð ananassneið, stein-
selju stungið í miðjuna.
plastik er gagnsætt og því mun hent-
ugra. Einnig má vefja fatnaði inn í
pappír og líma fyrir.
Gólfteppi, sem geyma á, skal viðra
og berja vel. Stráið eða úðið á það möl-
eitri og leggið pappír yfir, áður en tepp
ið er vafið þétt saman. Síðan er gott að
vefja um það dagblöðum og líma fyrir.
Um húsgögnin gildir það sama. Viðrið
þau, burstið og ryksugið svo vel sem
kostur er á og geymið þau í kulda, ef
þau þurfa að standa óhreyfð um tíma.
Úðið þau með eitri, sé grunur á möl í
þeim. En hins vegar skulu húsmæður
varast það að þekja aðeins öll teppi og
húsgögn með dagblöðum, áður en farið
er að heiman um tíma. Myndast þá hin
ákjósanlegustu vaxtarskilyrði fyrir möl-
lirfur, sem hafa nægilegt myrkur og geta
því nagað í friði og ró, án þess að koma
nokkurn tíma fram í dagsljósið.
Lyf, sem innihalda DDT, eru mikið
notuð í baráttunni við mölinn. Áhrifa
þess getur gætt allt upp í 2 ár, fer eftir
því hversu mikið er notað af því. Teppi
skal ætíð sprauta að neðanverðu, ryk-
sugan kemst að mölnum á yfirborðinu.
Lyf þessi eru eitruð og þarf því að
þvo sér vel, er lokið er notkun þeirra.
Bezt er að úða fyrir opnum glugga.
Mörg þeirra eru eldfim og því skal ekki
reykt meðan á úðun stendur. Að sjálf-
sögðu mega Þau ekki komast í námunda
við matvæli.
Munið, að myrkur, friður og hiti eru
beztu skilyrðin fyrir mölinn. Birta,
hreint loft, hreyfing og fyrst og fremst
hreinlæti er bezta vörnin gegn möl.
féitJtj* MHMjaná