Fálkinn - 31.05.1961, Page 37
Undir sumarsól -
Frh. af bls. 26
Það kom í ljós, að þessir tveir gestir,
sem fyrst höfðu kynnzt hér á sumar-
gistihúsinu, skildu hvort annað mæta-
vel. Það var víst hinu heilnæma lofts-
lagi að þakka.
— Hvað kemur þér frú Anderson við,
kæri, sagði frú Milde.
— Ég þoli það ekki, svaraði etatsráð-
ið. Maður verður að hafa frið á nótt-
unni.
Frú Milde grét og kastaði sér í faðm
hans og bað hann að hugsa bara um
sig eina. Annars gæti hún ekki lifað.
— Svona, svona, sagði etatsráðið.
Auðvitað hugsa ég ekki um neina aðra
en þig.
En frú Milde grét ennþá meira og á-
sakaði hann fyrir það, að hann léti
hvern daginn líða eftir annan, án þess
að hitta hana. Og hún sagði:
— Þú hugsar ekki um annað en þessa
ókunnu konu og lætur þér vera sama
um mig.
— Geturðu sagt mér, hver þessi
labbakútur er, sem er að heimsækja
hana á nóttunni? sagði etatsráðið hugs-
andi.
Þá hrópaði frú Milde:
— Sko til, þarna hugsaðirðu um hana
aftur. Nei, ég lifi þetta ekki af.
Etatsráðið varð að vera hjá henni í
rúman hálftíma til þess að hugga hana.
Áður en hann fór, sagði hann:
■— Ég held að reki að því, að við
verðum að umgangast hvort annað eins
og systkini.
Og þó að einkennilegt mætti virðast,
var frú Milde orðin svo hamingjusöm,
að hún gat hlustað á orð hans án þess
að tárast. Hún sat eftir á legubekknum
og sofnaði værum svefni.
En etatsráðið fór til aðalræðismanns-
ins með leyndarmál sitt. Það var nú
líka meiri heimskan að snúa sér til
kvenmanns með svona vandamál.
— Ég hef yður ekki grunaðan um að
vera þessi maður, sem ég sá í nótt, sagði
hann við aðalræðismanninn. — Og þér
grunið mig vonandi ekki heldur?
— Nei, aldrei, sagði aðalræðismaður-
inn og varð skáldlegur.
Og þeim vöknaði báðum um augun
af þessu gagnkvæma trausti.
Þeir ræddu málið og gátu upp á hetj-
unni Oxenstand. Etatsráðið var gerður
út til þess að líta eftir gluggum frúar-
innar eftirleiðis.
— Það er nú reyndar sorglegt, að
þessi Oxenstand skuli fá að heimsækja
hana á nóttunni, sagði etatsráðið. —
Það vorum þó sannarlega við, þú og ég,
sem vorum henni vinir í raun.
— Ef það er Oxenstand, þá skal ég
tala við veitingakonuna, sagði aðalræð-
ismaðurinn. Hann skal út úr húsinu.
Ég þoli þetta ekki.
Etatsráðið1 svaraði:
VeitiwqakúA + (ZeAtaurantA
Þúrscafé
Dans- og veitingahús. Opið á hverju kvöldi.
Þúrscafé
Brautarholti 20 . Reykjavík . Sími 23333
Veitingahús — Samkomuhús.
Snorrabraut 37 . Simi 19611, 18457.
Framkvæmdast. Sigurgeir Jónasson, sími 11378.
Félög, starfsmannahópar, fyrirtæki og einstaklingar: Við lánum út sal, sem tekur
150 manns í sæti, til eftirfarandi afnota:
Dansleikja — Árshátíða — Fundahalda o. fl.
Enn fremur tökum við aö okkur alls konar veizlur. Hringið í síma 19611 milli
kl. 2 og 4 og þér fáið allar upplýsingar, sem þér óskið.
Gömlu dansarnir verða í sumar á föstudögum, laugardögum og sunnudögum
Bingó verður á þriðjudögum.
SÍLFURTUNGLIÐ
Reykjavíks
mest
exclusive
restaurant
Shem,mliJ) yllur í Sfálpitœ&ióhú
uótnu.
SJÁLFSTÆÐISHÚSIÐ
TJARNARCAFÉ, Restaurant
1 hjarta bæjarins. — Miðstöð samkvæmanna.
Salir leigðir út fyrir samkvæmi og fundahöld.
TJARNARCAFÉ, Restaurant
ODDFELLOWHÖLLINNI, Reykjavík.
FÁLKINN 37