Fálkinn - 31.05.1961, Síða 39
hver annan. En Anderson agent frá ná-
grannalandinu beit á vörina og var
þungur á brúnina.
Og hann hýrnaði ekki, þegar veit-
ingakonan kallaði hann inn á skrifstofu
sína og tilkynnti honum, að hann hefði
sézt stökkva út um glugga hjá frú And-
erson.
— Hvað um það? sagði Anderson.
— Herra framkvæmdastjórinn verð-
ur að fara, sagði veitingakonan, — Ég
þoli þetta ekki í mínum húsum.
Anderson tautaði:
— Það er nú ekki það versta.
— Ég hef gert boð eftir vagni handa
yður.
— Það versta er það, að þau eru far-
in, hélt Anderson áfram. Og getið þér
sagt mér hvert þau hafa farið?
— Nei það get ég ekki sagt yður.
Anderson tautaði við sjálfan sig:
— Ég hef grunað þau lengi. En ég
vonaði í lengstu lög að hún hefði höml-
ur á sér á framandi stað.
— Mér kemur það svo fyrir sjónir, að
það séuð þér, sem ekki hafið hömlur á
yður.
Anderson fór að ýfast og svaraði:
— Ég varð að fara inn til hennar til
að undirskrifa vátryggingaskjölin.
Skiljið þér það ekki?
— Hvað komu vátryggingaskjöl
hennar yður við? Ókunnrar konu?
— Ókunnugrar? Hún er nú reyndar
konan mín.
— Konan yðar, spurði veitingakonan
efagjörn.
— Hún var konan mín þá, öskraði
Anderson agent. Ég var hér og fékk
engan til þess að líftryggja sig, svo að
ég skrifaði henni og bað hana að koma.
Og nú er hún farin með lækninum. Þau
hafa prettað mig. Þau fóru með alla
peningana.
Þá þagði veitingakonan í mínútu og
hugsaði málið. Hún var ekki laus við
efasemdir ennþá.
— Konu sína getur maður heimsótt
á daginn, sagði hún.
— Má maður þá ekki heimsækja kon-
una sína á nóttunni? spurði Anderson
sárgramur.
Nú urðu allir í sumargistihúsinu stór-
lega undrandi. Þeim fannst frúin hafa
leikið á þá. Anderson agent lagði fram
skjöl, sem sönnuðu að frúin væri kon-
an hans. Það var ekki hægt að efast um
það framar. Þau voru búin ag líftryggja
gestina. Hetjan Oxenstand vildi helzt
ógilda trygginguna sína, en hann varð
að þegja, því að hann hafði sjálfur sam-
ið skeytið. Adami etatsráð og aðalræð-
ismaðurinn hótuðu Anderson kæru.
— Gerið þér svo vel, sagði Anderson.
— Þið hafið líftryggt ykkur hjá mér. Ég
hef skrifað undir skjölin og þau er
ekki hægt að véfengja.
Og það fór svo að Anderson flýtti sér
ekki eins mikið í burtu og upphaflega
var til ætlazt. Allir karlmennirnir for-
dæmdu þetta verzlunarbragð, að láta
konu sína lokka menn til þess að líf-
Je/'iaJkriptcjfur + 7cuhM Kunauá
De beste turist arrengementer man kan kjöpe i Island.
TOURIST BUREAU
Hverfisgata 4, Reykjavík, teh: 16400
Po. box: 1162. Telegr. adr.: Vikingtravel.
SílaAtctoar + 7axi £tatichJ
BSR
heiur 40 ára reynslu. — Vanir og gætnir ökumenn.
BIFREIÐASTÖÐ REYKJAVÍKUR
Reykjcavík . Sími 11720
STEINDÓRS-bílar
í stuttar og langar ferðir. — Langferðabílar, — Hópferðir.
Innanbæjarbílar, símar 11580 og 24100.
Langleiðabílar, símar 11585 og 11586.
Bifreiðastöð STEINDÖRS
REYKJAVÍK
Notið TALSTÖÐVARBlLA BÆJARLEIÐA
hvert sem þér farið.
BÆJARLEIÐIR
Langholtsvegi 115 . Reykjavík
Sími 33500
Um borgina
nt úi* lioi'giimi
í lúliiin frá
♦
FALKINN 39
(/j)omcirl>íló töÉi
>orcj,art
Simi 22440
mm