Fálkinn - 31.05.1961, Qupperneq 40
NÝJAR TEGUNDIR AF POND S
Pond’s snyrtivörur eru við allra liæfi. Pond’s snyrti-
vörur eru ódýrar og góðar vörur og fást í öllum snyrti-
vöruverzlunum og lyfjabúðum um allt land.
EINK AUMBOÐSMENN:
G. HELGASON & MELSTED H'F
40
FALKINN
tryggja sig, en konurnar snerust á sveif
með Anderson agent og létu í ljós sam-
úð sína með honum. í gleði sinni yfir
því að þessi hættulegi keppinautur
þeirra var horfinn af leikvanginum,
gengu þær meira að segja svo langt, að
þær hugguðu Anderson í raunum hans.
— Hún kemur áreiðanlega aftur,
sagði frú Milde. Hún kemst að því ein-
hvern daginn, að þrátt fyrir allt, eruð
þér eini maðurinn í heiminum. Þannig
er það um mig og manninn minn.
Og jafnvel frú Trampe, fegurðar-
drottningin, sem hinn dökkeygði lækn-
ir hafði leikið á, lýsti því yfir að hún
hagaði sér eins við sinn mann.
En Anderson agent leit á málið frá
annarri hlið.
— Auðvitað kemur hún aftur, sagði
hann. Ég vonast eftir henni, því að hún
er svo dugleg að líftryggja. En ef hún
hleypur einu sinni enn burtu með premí-
urnar, þá verður hún mér nokkuð dýr.
Þrem vikum seinna kom líka bréf
frá hinni brotthlaupnu konu. Nú kraup
hún við hlið manns síns. Og það voru
tár í augum hennar, stóð í bréfinu. Og
spurðu mig ekki eftir lækninum. Hann
er farinn, sína leið.
Anderson agent kinkaði kolli.
— Hvað sagði ég. Kom hún ekki aft-
ur. En ef hún gerir þetta einu sinni enn
og tekur kassann, þá lýsi ég eftir henni.
Og Anderson agent fór heim til sín.
Sama kvöldið gekk frú Trampe um
og neri saman höndunum. Hún var svo
heilbrigð. Hún hafði haft tíma til að
gleyma lækninum og var aftur farin að
líta á hetjuna Oxenstand. Og þar sem
hetjan Oxenstand var líka orðinn svo
heilbrigður af útiloftinu, þá urðu þau
aftur ástfangin hvort í öðru.
Hann tók utan um hana og sagði:
— Nú er ekki hægt að flýja örlögin
lengur.
Hún hafði ekkert synjandi svar á
reiðum höndum. Hún brosti og hvíslaði:
— Undir sumarsól.
Og hún gat ekki sagt nei.
Adami etatsráð varð aftur að flýja á
náðir frú Milde. En frúin hefndi sín fyr-
ir það, að hann hafði viljað einu sinni
umgangast hana sem bróður. í tvö
kvöld talaði hún ekki um annað en hinn
skáldlega aðalræðismann.
En þriðja kvöldið sagði hún:
— Til reynslu . .
Og allt féll í ljúfa löð milli hennar og
etatsráðsins.
Ljósaskipti -
Frh. af bls. 27
Smávaxin, samanhnipruð mannveran
var aðeins talandi tákn mikillar og á-
takanlegrar fátæktar.
Blöðin höfðu runnið úr handarkrika
hennar og lágu á gangstéttinni fyrir
framan hana.
í myrkrinu undir súðinni voru tvö
rúm. Annað var mannlaust og óumbú-