Fálkinn - 31.05.1961, Qupperneq 41
ið, í hinu lágu tvö lítil börn og sváfu.
Þau hjúfruðu sig hvort að öðru. Minna
barnið, lítill drengur, hafði rjóða hnef-
ana á lofti kreppta um dýrlegan,
dreymdan fjársjóð.
Þetta var í gráma aftureldingarinnar.
Glugginn sat fölur í svörtum veggnum,
og eyrinn, óráðinn dagur seytlaði inn
um fátækleg gluggatjöldin.
Á rósóttum vaxdúknum á borðinu
stóð diskur með tveimur þykkum brauð-
sneiðum með smjöri og mysosti ofan á.
Þar stóðu líka tveir smeittir blikkbollar
með bláleitri mjólk.
Annars var ekki stássinu fyrir að
fara í stofunni. Á þilinu var mynd úr
heimilisriti, nakin kona með sporði, —
það var hafmey. Á dragkistunni stóðu
tveir kettir úr bláu gleri og ljósmynd
af ungri stúlku í dökkum fermingar-
kjól og með fölt, sviplaust andlit. Þetta
var líklega móðir barnanna og meira
vissu þau sennilega ekki um hana.
Nú tóku þau að láta á sér bæra yfir
í rúminu. Litli snáðinn greip í fléttuna
á systur sinni og kippti duglega í hana.
Hún fór á fætur og hjálpaði honum að
klæðast. Hún var smáleit, andlitið fölt
og umburðarlyndi og seigla í svipnum,
augun alvarleg og framkoman hæglát,
ráðsett og fullorðinsleg — eins og jafn-
an er um litlu, eldri systurnar í skugga-
legu og óvistlegu súðarherbergjunum,
sem liggja norðan í móti. Hún þvoði
honum og áminnti hann og greiddi hon-
um. AS því búnu settust þau að snæðingi.
Þau voru búin að gefa guði þökkina,
og Nils sat nú og talaði lágt og kump-
ánlega við blikkdósina Kolumbus. En
Kristín sat auðum höndum, því að nú
var sunnudagur.
Kolumbus hafði upphaflega verið
málaður fögrum litum, rauður og blár
og gulur og grænn, — en nú var máln-
ingin því sem næst alveg dottin af.
Hann var beyglaður og illa farinn. En
bak við hið óbrotna og tilkomulitla út-
lit leyndust sjaldgæfir kostir, sem Nils
einn kunni skil á. Það hafði einu sinni
verið brjóstsykur í dósinni. Hún var
hnöttótt eins og kúla, þess vegna hét
hún Kolumbus.
En að lokum hafði Nils heldur ekkert
til þess að taka sér fyrir hendur, og það
var grafkyrrð í stofunni. Þau voru orð-
in svöng aftur, en amma kom ekki. Þau
sátu og biðu. Það varð löng bið. Nils
settist hjá Kristínu og fór að kjökra.
— Fer ekki amma að koma heim?
— Jú, nú fer amma alveg að koma,
sagði Kristín. En sjálf var hún líka
smeyk. Þetta var svo undarlegt. Tíminn
var svo hræðilega lengi að líða, jafnvel
ennþá lengur en í kirkjunni, og hvergi
hafði Kristín vitað hann silalegri en þar.
Myrkrið skall á. Börnin sátu grafkyrr
hvort við annars hlið á stóra skemlin-
um. Það dimmdi æ meira, og þau hjúfr-
uðu sig æ fastar hvort að öðru. Þau
sátu þarna og horfðu í áttina til glugg-
ans, sem smám saman sogaði alla birtu
úr stofunni. Loks varð hann ekki annað
en dauf, hvít tafla með svörtum krossi.
I
J!
:
|
I i< í
—
STJÖRNUSPÁIN
Hrútsmerkið.
Vikan verður góð og skemmtileg. Þér hittið sérstaklega
mikið af gömlum kunningjum og sömuleiðis eignizt. þér
nokkra nýja og trausta vini. Útgjöld, sem þér þurfiö að
greiða um miðja vikuna, virðast há í fyrstu, en síðar kemr
ur í ljós, að þeir peningar renta sig vel.
Nautsmerkiö.
Þetta verður dálítið einkennileg vika og það er skynsam-
legast fyrir yður að segja sem minnst. Fæst orð bera minnsta
ábyrgð, segir máltækið. Margir af þeim, sem þér þurfið að
umgangast daglega, verða slæmir á taugum, og eitt lítið
orð getur valdið mikilli sprengingu.
Tvíburamerkið.
Ýmsar hindranir verða á vegi yðar í þessari viku, en
yður mun takast að sigrast á þeim öllum og leysa öll verk-
efni vel og farsællega.----Þetta verður viðburðarík vika
hjá ungu fólki, sérstaklega í málum hjartans. Nýr elskhugi
kemur fram á sjónarsviðið og varpar skugga á alla fyrri
slíka.
K'rabbamerkið.
Vikan verður góð, en krefst mikils af yður. Þér verðið
að leggja yður allan fram, taka á öllum kröftum yðar.
Gætið þess þó að ofgera ekki bæði heilsu yðar og heimilis-
lífi. Reynið að sinna hvorttveggja í senn: hinni ábyrgðar-
miklu og erfiðu vinnu og einnig skyldum og kröfum einka-
lífsins.
Ljónsmerkið.
Þér fáið meðvind strax í byrjun vikunnar og eins og ævin-
lega þegar vel gengur, skuluð þér vera varkár. Lofið ekki
meiru, en þér getið staðið við og eyðið ekki meiri pening-
um, en þér hafið ráð á. Þér lendið í þeirri aðstöðu, að sann-
leikurinn verður óhagstæður fyrir yður. Fallið þó ekki fyrir
þeirri freistingu, að grípa til hvítu lyginnar.
Jómf rúarmerlcið.
Vikan verður sérstaklega góð fyrir yður. Það bókstaflega
gengur ekki á öðru en góðum fréttum og glæsilegum tæki-
færum. Verið aðeins varkár, þegar um er að ræða skoðun
yðar á ákveðnu máli. Ef þér látið hana allt of hörkulega
í ljós, snýst einn af vinum yðar öndverður gegn yður.
V o gars kálarmerkið.
Upphaf vikunnar verður heldur skuggalegt, en það létt.ir
til, þegar á líður. Fáizt ekki við verkefni, sem þér hafið
enga þekkingu eða getu til þess að leysa sómasamlega af
hendi og hættið yður ekki út í neitt fjármálarævintýri, að
minnsta kost.i ekki í þessari viku.
Sporðdrekamerkið.
Hjá þeim, sem fæddir eru í nóvember, er útlitið sérstak-
lega gott í þessari viku. Reynið að nota meðvindinn til þess
að koma í gegn máli, sem lengi hefur verið látið sitja á hak-
anum. Sýnið einkalífi yðar sértstaklega mikla umhyggju
og alúð, ef þér viljið komast hjá óþægindum á því sviði.
B o gmannsmerlcið.
Þér eruð sérstaklega vel upplagður um þessar mundir og
mikill hugur í yður til stórræða. Gætið þess þó vel að of-
reyna yður ekki. Nokkrir af starfsfélögum yðar eru öfund-
sjúkir og bera yður á brýn smjaöur gagnvart húsbændunum.
Takið því með mestu ró og haldið áfram á sömu braut.
Steinpeitarmerkið.
Skapið hefur verið með lakara móti að undanförnu, og
þess vegna mál til komið að hrista af sér drungann og líta
örlít.ið hýrum augum á tilveruna. Þér hafið lent í margs
konar erfiðleikum, en engan veginn svo miklum, að þér
hafið ástæðu til þess að leggjast í ævarandi þunglyndi.
V atnsberamerkið.
Það er uggur og kvíði í yður, en það er ástæðulaust að
mestu. Útlitið virðist dökkt í svipinn, en allt er þetta á bata-
vegi og rætist ótrúlega vel úr hlutunum, þegar allt kemur
til alls. — Þaö hleypur snurða á þráðinn hjá elskendum,
en sættir takast í vikulokin.
Fis kam e r kið.
Margvísleg vandamál verða á vegi yðar í þessari viku
og yður mun ekki takast að leysa þau öll upp á eigin spýt-
ur. Dragið ekki of lengi að leita aðstoðar annarra. Þér þurf-
ið engan veginn að skammast yðar fyrir það. Allir munu
fúslega rétta yður hjálpandi hönd.
IHíliílfBIfflMfflHB
21. MARZ —
20. APRlL
21. APRlL —
21. MAl
22. MAl —
21. JÚNl
22. JÚlH —
22. JÚLl
23. JÚLl —
23. AGÚST
24. AGÚST—
23. SEPT.
24. SEPT. —
23. OKT.
24. OKT. —
22. NÓV.
23. NÓV. —
21. DES.
22. DES. —
20. JAN.
21. JAN. —
19. FEBR.
20. FEBR. —
20. MARZ