Fálkinn - 02.08.1961, Blaðsíða 4
G. Helgason
Hafnarstræti 19
RauSarárstíg 1
TOLEDO
VOGIR OG
KJÖTVINNSLUVÉLAR
útvegum við með
stuttum fyrirvara
svo sem
KJÖTSAGIR
HAKKAVÉLAR
STEIKARVÉLAR
ÁLEGGSSKURÐARHNÍFAR
BÚÐARVOGIR
FISKVOGIR fyrir
verzlanir og frystihús
IÐNAÐARVOGIR og
BIFREIÐAVOGIR
TOLEDO vörurnar eru
heimsþekktar fyrir gæði
& Melsted h.f.
Sími 11644
Látið
EXAKTA
myndavélina varðveita
eíidurminningarnar frá
sumarleyfinu yðar
Fjölvirkasta myndavél heimsins
Mikið úrval alls konar aukatækja
SöluumboS
VERZLUNIN OPTIK
Hafnarstræti 18
EinkaumboSsmenn
G. HELGASON & MELSTED H.F.
Hafnarstræti 19
Sir Alec Guinness hinn
kunni skapgerðarleikari var
nýlega í Japan, þar sem
hann kynnti sér japanskar
siðvenjur, því að hann á að
leika Japana í næstu mynd.
Á meðan hann dvaldist þar
var hann spurður, hvort
honum fyndist mikill mun-
ur á áhorfendum þar og heima í Englandi.
„Nei“, svaraði hann og hló við, „þeir hósta
nákvæmlega eins“.
Sir Alec á vanda til að vera fremur viðut-
an. Einn dag fór hann að heiman og snéri
hatturinn öfugt. Athugull strákpatti kom
auga á þetta og sagði:
„Sir Guinness, hattur yðar snýr öfugt“.
Sir Alec svaraði ofur rólega:
„Hvað veizt þú um það, þú hefur ekki
hugmynd um í hvaða átt ég ætla að fara“.
★
Ferðamenn, sem koma til
Vínarborgar munu ef til vill
reka í roga stanz yfir því að
þar finnast hvorki meira né
minna en þrjú hús, sem.
kölluð eru hús Beethovens
og er skrautlegt skilti á
hverju húsi, er gefur það til
kynna. Þetta er síður en svo
undarlegt, þar sem tónskáldið bjó ekki í
færri íbúðum en 29 á meðan hann dvaldist
í þessari háborg lista. Orsökin er hinsvegar
sú, að tónskáldinu kom ekki allskostar vel
saman við húsráðendur sína.
Hinn franski milljónamær
ingur og listmálari Bernard
Buffet, sem frægur er fyrdr
að mála aflangar og angur-
værar fígúrur. ætlar nú að
gerast kvikmyndaframleið-
andi.
Hann telur listmálara
hafa sérstaka hæfileika til
þess að gera góðar litmyndir. Eins og mönn-
um er kunnugt um. er hann kvæntur mjög
fagurri konu, Annabelle að nafni, og hefur
hún oftar en einu sinni verið fyrirsæta hans.
Forvitnir franskir blaðamenn spurðu hann
því, hvort hann hefði ætlað sér að láta konu
sína leika aðalhlutverkin í myndum sínum.
Buffet svaraði þessu svo:
„Kæru vdnir, Annabelle leikur aðalhlut-
verkið í lífi mínu, það hlýtur að vera nóg
fyrir hana“.
★
í næsta syndaflóði munu menn drukka í
pappír, en ekki vatni eins og forðum.
Somerset Maugham.