Fálkinn - 02.08.1961, Page 5
Jón Pálmason fyrrverandi
alþingismaður mætti eitt
sinn manni á götu. Maður-
inn var að flýta sér og
kvaðst vera að fara að sjá
„Konur annarra", en verið
var að sýna leikrit í Iðnó,
sem bar þetta heiti. Þá varð
Jóni að orði:
Flýti ég mér og fer af stað
fylltur glæstum vonum.
Eg hef keypt mér aðgang að
annarra manna konum.
Ung kona fór til kirkju í
fyrsta sinni með 4 ára gaml-
an son sinn. Sá litli hafði
augun opin og grannskoðaði
allt, svo greip hann í ermi
móður sinnar og spurði:
„Hvar er guð“. Móðir benti
eitthvað upp í loft og sagði:
„Hann er þarna uppi“.
Leið nú nokkur stund,
heyrðist þá bjölluhljómur
ofan frá altarinu og boðaði
hápunkt messunnar. Aftur
greip strákur í ermi móður
sinnar og spurði: „Af hverju
svarar hann ekki í símann
sinn“
Konráð Arngrímsson frá
Ytri-Brekkum orti þessa
skemmtilegu vísu um pró-
fast nokkurn:
Prasa, masa, prisa, bos,
prófastur.inn þarna.
Vasa, gasa visa, tos.
vargurinn sá arna.
Jósep Húnfjörð kvað þessa
vísu eitt sinn er hann fór
austur í Þjórsárdal:
Hugann næra fornhelg föng,
forna æru kynna.
Gildan mæring Gauk á Stöng
gaman væri að finna.
Ólína Jónasdóttir á Sauðár-
króki orti þessa vísu, þegar
leikrit Halldórs Kiljans Lax.
ness, Silfurtunglið, kom út:
Listin oft hjá Laxness bjó,
lýsir enn af blysum nýjum.
Sumum held ég sýnist þó
Silfurtunglið vaða í skýjum.
Að lokum ein vísa, sem
ókunnur höfundur orti til
sinnar ektakvinnu:
Anna mín er leiðinleg,
lumpin mjög og gæðatreg.
Gjálífis hún gekk á veg,
glaptist enginn nema ég.
&y?-77Ao<n/
Á meðan ég var í New
York kynntist ég konu, sem
býr í næsta húsi við sovézku
sendiráðsskrifstofurnar á
Park Avenue. Hún sagði allt
hefði verið svo æsandi þeg-
ar Krúsjéff heimsótti Banda
ríkin og hefði hún fylgst
með öllu út um gluggann á
íbúð sinni og oft verið tím-
unum saman við gluggann.
Dag nokkurn knúði lögreglu
þjónn dyra: „Frú mín, okk-
ur hefur verið tilkynnt, að
í þessari íbúð sé einhver út
í glugga 24 klst. á sólar-
hring“. ,,Nú það er bara ég“,
svaraði frúin. „Þetta er mín
íbúð, ég á rétt á að horfa út
um gluggann. „V.ið ætluðum
aðeins að aðvara yður svar-
aði lögreglumaðurinn um
hæl, því að tveimur vélbyss
um hefur verið beint að í-
búðinni allan tímann, einni
af okkur og hinn.i af Rúss-
unum.
— O —-
ZSA-ZSA GABOR:
Hin fallega kvikmynda-
leikkona, Zsa-Zsa Gabor,
sem ku vera fædd í Ung-
verjalandi, hefur eins og
Eva, systir hennar, verið
gift oft og mörgum sinnum
og þá alltaf einhverjum af
ríkara taginu. Hún hefur
stundum verið k ö 11 u ð
„mesta léttúðarkvendá Ame-
ríku“ og henni þykir það
víst ekkert miður. Eftirfar-
andi gæti því vel verið á
rökum reist:
Ríkur maður bað hennar
eitt sinn með miklum orða-
flaumi, og hún hlustaðj á
með athygli. Eftir ræðuna
sagði hún svo alvarlega: —
Kæri vinur, þetta er það
þýðingarmikil ákvörðun að
þér verðið að gefa mér um-
hugsunarfrest í svona tvær
mínútur.
Árið 1893 sást furðu-
legt skrýmsli um 30
sjómílur undan ströndum
Vestur-Afríku. Sjóskrýmsli
þetta sást frá skipinu Um-
fuli, er var á leið frá Lond-
on til Durban í S-Afríku.
Stýrimaður sá sem á vakt
var, reit um atburð þennan
í dagbók skipsins, en auk
hans sáu skipstjórinn og um
80 farþegar skrýmslið. —
Skepna þessi var allferleg
ásýndum, hún var um 25 m
löng, hafði höfuð líkt og á
ormi, en auðvitað miklu
stærra. Þegar hún sást var
hún með gapanda gini og
oddhvassar tennur þöktu
gómanna. Vafalaust hefði
mörgum íslendingi dottið
Miðgarðsormur í hug, ef
hann hefði séð slíka skepnu.
Það þarf varla að taka fram,
að enginn trúði þessari sögu,
því að sögn skipstjórans
hafði eini maðurinn, sem
átti myndavél um borð
alveg steingleymt að taka
mynd af skrýmslinu í allri
þeirri æsingu sem skapað-
ist þegar það sást.
Árið 1804 var hinn
frægi franski uppfinn-
ingamaður, Philippe Lebon
myrtur af launmorðingja.
Hann er frægastur fyrir að
finna upp Ijósagasið. Hon-
um tókst eftir margar ítrek
aðar tilraunir að vekja at-
hygli yfirvaldanna á þessu
og fékk verksmiðju til sinna
umráða. Á krýningardag
keisarans fundu menn hann
dauðann á Champs-Elysées
völlunum, og hafði hann ver
ið stunginn af þrettán rýt-
ingsstungum. Þess má geta,
að aldrei hafðist upp á
morðingjanum.