Fálkinn - 02.08.1961, Side 20
SAKAMÁLASAGA EFTIR HARALD 0. J
FJÖGUR SKOT
Það virtist sýnt hvernig málið færi.
Böndin bárust hægt og hægt að hinum
ákærða Lloyd Ashley.
Við hlið Ashleys sat verjandinn,
Mark Robinson. Hann virtist annars
hugar og áhugalaus, en í rauninni var
hann vel á verði og leitaði í sífellu að
höggstað á saksóknaranum. Robinson
var álitinn einn skeleggasti lögfræð-
ingur landsins, einkum átti hann gott
með að vinna kviðdómendur á sitt band
í málum, sem virtust fyrirfram vonlaus.
Þeir voru ekki svo fáir, sem áttu Rob-
inson það að þakka, að þeir sluppu við
rafmagnsstólinn.
En í þetta sinn var útlitið ekki glæsi-
legt, og jafnvel Robinson virtist óstyrk-
ur og kvíðinn. Hann sat samt rólegur
og fylgdist með orðum vitnis saksókn-
arans vopnasérfræðingsins James Kell-
er, þegar hann steig í vitnastúkuna.
Þetta var sterkbyggður maður, sem
bæði hugsaði og talaði hægt. Saksókn-
arinn spurði vitnið án tafar nokkurra
spurninga, sem sönnuðu sérhæfni hans.
— Og nú bið ég yður, hr. Keller, að
segja okkur. hvaða tegund byssu þetta
er, hélt saksóknarinn áfram og rétti
Keller litla skammbyssu.
— Þetta er Colt-skammbyssa, sjálf-
virk, kaliber 32
— Hafið þér séð þessa byssu áður?
— Já, mér var hún send og ég beð-
inn um að kanna, hvort banakúlunni
hefði verið skotið úr henni.
— Og hver varð árangur þeirra rann-
sókna?
Keller leit á hina tólf eáðsvörnu
menn, sem einblíndu allir á hann. Með-
al kviðdómenda voru engar konur —
20 FALKINN
Robinson hafði séð fyrir því. Hann
gerði sér vel ijóst, að karlmenn myndu
sýna meiri skilning á málinu, sem fjall-
aði um eiginmann, sem svikinn hafði
verið 1 tryggðum.
Keller svaraði þurrlega, og ekki var
laust við yfirlæti í rödd hans, þegar
hann sagði:
— Ég skaut einu skoti úr byssunni
og bar hana saman við þá kúlu, sem
fannst í líkinu. Síðan rannsakaði ég
þessar tvær kúlur í smásjá, og árang-
urinn varð sá að ....
Robinson greip fram í:
— Getum við ekki hlíft kviðdómend-
um við tæknilegum langlokum. Máls-
verjandi viðurkennir, að banakúlan sé
úr byssu Lloyd Ashleys.
Þetta mál var Robinson óneitanlega
talsvert skylt. Hann hafði þekkt Ashley
í mörg ár, bæði sem vin og viðskipta-
vin. Honum varð hugsað til þess, þegar
Ashley kom til hans fyrir tveimur mán-
uðum og leitaði hjálpar hans. Ashley
grunaði eiginkonu sína um hjúskapar-
brot.
— Hefurðu nokkrar sannanir, hafði
Robinson spurt.
— Nei, en ég er sannfærður um þetta.
Maður finnur þetta á sér. Eva er orðin
svo köld og fráhrindandi. Mig langar
bara til þess að komast að því, hver
maðurdnn er.
— Viltu skilnað?
— Nei. ég elska Evu. En ég vil vita
hver maðurinn er, til þess að binda endi
á þetta. Þekkirðu ekki góðan og áreið-
anlegan einkaleynilögreglumann?
Robinson hafði bent honum á John-
son ,sem hafði strax tekið að kanna
málið, og viku síðar hafði Ashley fengið
fyrstu skýrsluna. Leynilögreglumaður-
inn hafði fylgt Evu til Tom Ward, víxl-
ara, sem sá um verðbréf Ashleys. Þetta
var auðvitað engin sönnun, og Robin-
son hafði aldrei grunað, að Ashley
myndi grípa til örþrifaráða. Honum brá
því illilega í brún, þegar hann frétti,
að lögreglan hefði handsamað Ashley
og sakað hann um morð. Undir niðri
fannst honum hann sjálfur edga ein-
hverja sök á þessu.
Hann hafði reynt að byggja málið að
mestu á vitnisburði Ashleys. Þetta var
ekki morð, heldur slys, hélt Robinson
fram. Ashley hafði verið á skrifstofu
Wards, hafði miðað byssu á hann, en
það þó einungis til þess að hræða hann
og fá hann til þess að slíta samskiptum
sínum við Evu. Ashley hafði vendilega
gengið úr skugga um, að byssan var
læst, áður en hann gekk inn í skrdf-
stofuna. Ward varð hins vegar skelf-
ingu lostinn, hafði rokið á Ashley og
reynt að rífa byssuna úr höndum hans.
Meðan á átökunum stóð hafði byssan
fallið á skrifborðið og skotið r.iðið af.
Þegar einkaritarinn kom þjótandi inn á
skrifstofuna, kom hún að Ashley, sem
stóð álútur yfir Ward.
Saksóknarj ríkisins hafði farið háðs-
legum orðum um þessa sögu. Tilefnið
var augljóst, morðvopnið á sínum stað
— svo að Ashley var sakaður um morð
að yfirlögðu ráði.
Nú höfðu málaferlin staðið í fimm
daga. og saksóknaranum hafði lánazt að
finna veikan blett á skýringu Ashleys