Fálkinn - 02.08.1961, Blaðsíða 22
^notur
Bakkadúkurinn ér fullsaumaður 30X
42 cm (= 173X250 spor) ætlið IVi
cm aukalega með 10 þráðum. Gert er ráð
fyrir að bakkadúkurinn sé saumaður
úr hörlérefti, sem er það þéttofið, að
62 þræðir séu í hverjum 5 cm.
Varpið fyrst efnið allt í kring, svo
að ekki rakni úr því. Saumið síðan kross-
saumsröðina allt í kring 2% cm + 10
þráðum frá brún. Saumið síðan kross-
saumsmynstrið samkvæmt skýringa-
myndinni í báða enda bakkacíúksins,
bezt er að byrja efst í vinstra horni.
Saumað með 2 þráða DMC garni yfir
2 þræði. Að lokum er bakkadúkurinn
faldaður, athugið að hornin fari vel.
..
' :
Hér að ofan sjáum við bakka-
dúkinn, sem lýst er í meðfylgj-
andi greinarkorni. Gert er ráð
fyrir, að dúkurinn sé saumaður
úr hörlérefti, sem er svo þéttofið,
að 62 þræðir séu í 5 centimetrum.
Til hægri: Skýringarmynd. 1 fern-
ingur = tveir þræðir.
Rautt hár lýsist, ef maður vætir
greiðuna daglega í vínanda áður en
maður greiðir sér. Strítt hár, sem ekki
liggur vel, mýkist ef maður ber í það
brilliantin og kembir það með mjúkum
bursta. Gott er að nota hárnet meðan
ver,ið er að venja hárið.
Hárlosi er hægt að verjast með því að
þvo höfuðið vandlega úr tjörusápu, upp
leystri í vatni og er hrært í þangað til
hún freyðir. Eftir höfuðþvottinn úr
þessu baði, er hárið skolað vel úr volgu
vatni. Þegar hárið er orðið þurrt er
hárið og höfuðsvörðurinn nuggaður vel
úr vaselini Þetta er gert þriðja hvert
kvöld.
Flösu er hægt að eyða með því að
þvo höfuðið úr eggjahvítu, sem er
hrærð út í vatni
— O —
Þegar fiskur eða hænsni eru soðin er
ágætt að láta safann úr hálfri sítrónu
í vatnið. Það gefur fyrirtaksbragð.
— O —
Vatnsglös, sem drukkin er úr mjólk,
á ævinlega að skola úr köldu vatni, áð-
ur en maður þvær þau úr volgu vatni.
— O —
Látið súpu aldrei sjóða um of Hún
verður betri ef hún er látin smásjóða í
lengri tíma.
— O —
Ef maður ætlar að hreinsa vel silfur-
skeiðar, gaffla og slíkt er ágætt að láta
þau í sjóðandi vatn með nokkru af
sóda í. Ein matskeið af sóda í 3—4 lítra
af vatni. Látið svo silfrið þorna í
nokkrar mínútur og þurrkið það vel á
eftir.
Kleinuuppskrift.
500 g hveiti
1 egg
1 bréf eggjaduft
50 g smjörlíki
75 g sykur
2 skeiðar gerduft
Vi teskeið hjartasalt.
Blandið gerinu og eggjaduftinu vel
saman. Látið eitt bréf af kardemomm-
um í. Myljið síðan á milli handanna
hveitið, smjörið, sykurinn og eggin.
Þegar þið hafið blandað þessu vel sam-
an, látið þið mjólkina út í, ca. Vz líter.
Þegar mjólkin er komin í, eltið þið
deigið og fletjið það út ca. Vz cm þykkt,
skerið síðan lengjurnar í ca 3 cm löng
stykki. Stingið gat á miðjuna og snúið
kleinunum við. Tólg eða plöntufeiti er
sjóðhituð og kleinurnar brúnaðar í
henni.
22
FALKINN