Fálkinn - 02.08.1961, Side 23
Steikt egg í brauðhringum.
4 þykkar hveitibrauðsneiðar
30 g smjör
4 lítil egg
Spínat, grænkáls- eða steinselju-
jafningur.
Skerið hringi úr hveitibrauðsneiðun-
um, brúnið smjörið á pönnu, steikið
brauð hringina gulbrúna á báðum hlið-
um. Brjótið eggin, látið þau í hringina.
Látin stífna við vægan hita. Renni eitt-
hvað af hvítunni út fyrir, er það skorið
af áður en eggin eru borin fram. Bor-
ið fram í einstaklingsskömmtum. Heit-
um jafningi ausið á heita diska, eggin
í brauðhringunum látin í miðjuna.
Brauðsneiðarnar, sem voru stungnar út,
steiktar í smjöri og bornar með.
Hnetu-ábœtiskökur.
100 g sykur
100 g smjör
50 g malaðar hnetur eða möndlur
150 g hveiti
2 egg
% tsk. hjartarsalt.
Smjörið haft lint. Öllu hrært saman í
3—5 mínútur, eða þar til deigið er létt.
Deigið sett með teskeið á smurða og
hveitistráða plötu, ef vill má strá dálitlu
af söxuðum hnetum og grófum sykri á
kökurnar. Bakið við 200° í nál. 12 mín-
útur. Þegar kökurnar eru kaldar, eru
þær lagðar saman 2 og 2 með þeyttum
rjóma og góðu aldinmauki eða hlaupi.
í staðinn fyrir rjóma má nota smjör-
krem t. d. með súkkulaði- eða kaffi-
bragði.
Sardínubrauð.
200 g smjörlíki
250 g hveiti
4 msk vatn eða rjómi
2 sardínudósir
2—3 tómatar
Steinselja
Smjörlíkið mulið í hveitið með hníf,
vætt í deiginu með vatninu og deigið
hnoðað lauslega. Látið bíða á köldum
stað. Flatt út í kringlótta köku nál. 25
cm í þvermál og 1 cm þykka. Deigið
smurt með eggi og bakað þar til það
er gulbrúnt nál. 25 mínútur við 225°.
Útskorinn tómatur settur á miðja
kökuna, sardínunum raðað í hring, olí-
unni í dósinni hellt yfir. Sett í ofninn
á ný, þar til sardínurnar eru orðnar
heitar í gegn
Saxaðri steinselju stráð yfir, skreytt
með tómötum. Gott er að rífa dálítið
af osti yfir sardínurnar, áður en þeim
er stungið inn í ofninn.
Borið fram með grænu salati.
Hnetu-ábætiskökur (að ofan), sardínu-
brauð (að neðan). Steikt egg í brauð-
hringum (efst til hægri).