Fálkinn - 02.08.1961, Page 31
frá bágum kjörum og vanlíðan sam-
fara kúgun og harðrétti.
Hér hefur aðeins verið stiklað á fáu
varðandi drykkjuskap á íslandi framá
næstliðna öld. Núlifandi fólki eru nær-
tækar heimildir um söguleg mál kríng-
um áfeingið á þeim tíma sem síðan er
liðinn: Bindindishreyfingar, vínbann,
bruggun, — fyllirí — og meira fyllirí.
Enn er drukkið ótæpt á íslandi, þó með
nokkuð öðrum hætti sé en fyrrum var.
Réttaslark er enn við lýði þó breytt sé,
enn bergir alþýða manna vín á glaðn-
íngastundum, og stórmenni skála við
kónga á hinum hærri stöðunum.
Skáld vor hafa laungum mært vínið
í ljóðum sínum með margvíslegum
hætti. Ort lýsingar á atferli drykkju-
manna (Ólafur Einarsson: Krúsarlög-
ur ■—•), súngið því verulegt lof (Kristján
Jónsson), barmað sér útaf vínneyzlu eða
vínleysi (Páll Ólafsson, Sigurður Breið-
fjörð), bölvað víninu í sand og ösku
(Þorlákur Þórarnsson, höfundur Dans-
lilju), ort um góðra vina fund þar sem
vín ej- drukkið (Jónas Hallgrímsson) o.
s. frv. Allir þekkja hinn algeinga sam-
runa drykkjuskapar, kvennaásta og
hestamennsku í íslenzkum alþýðukveð-
skap, t. d. hjá Páli Ólafssyni eða Jóni
Ásgeirssyni á Þíngeyrum.
Og hér eru að lokum þrír kveðlingar.
Hallgrímur Pétursson kvað:
Yndi er að sitja öls við pel
og gamna sér;
en fallegt er að fara vel
þótt ör sé sá sem á skeinker.
Kristján Jónsson er samur við sig:
Framar einginn maður má
minni gleði raska:
trú þér festi ég einni á
allíknandi flaska.
Og Sigurður Breiðfjörð er að yrkja
Líkafrónsrímur og er þurrbrjósta:
Von er andinn veiklist hér
og verði þraungir gómar,
flöskur standa framan í mér
fyrir laungu tómar.
(Heimildir: Ýms fornrit, s. s. Snorra-
Edda, Egils saga, Jómsvíkinga saga
(Flat.), Sturlúnga saga o. f 1.; Sigurjón
Jónsson læknir: Sóttarfar og sjúkdóm-
ar á íslandi 1400—1800; Tímarit hins
isl. Bókmenntafélags 1898; Annálar
1400—1800; Jón Þorkelsson: Þjóðsögur
og munnmæli; Öldin sem le;ð; o. fl.).
Fólkið er -
Framh. af b!s. 7.
bundinn og hefur litla möguleika.
— Strönd Adríahafsins er mjög vog-
skorin með mörgum eyjum fyrir utan.
Þær liggja allar frá norðvestri til suð-
austurs. Sumarið er heitt, og veturinn
er mildur. sérstaklega sunnan til. í ná-
grennj Privlaka, einkum hjá Zadar, eru
frægir baðstaðir.
Og þegar við athugum staðinn á
landakortinu, sjáum við að hann er á
sömu breiddargráðu og Monaco og
franska Rivieran.
—- Innar í landinu segir Ante, er
meginlandsloftslag, og veturinn er
kaldari og úrkomusamari. í Dalmatíu
er jarðvegurinn mestmegnis kalk, og
árnar koma upp og hverfa á víxl. Gróð-
ur er lítill. Annars er Júgóslavía eitt
skógauðugasta land í Evrópu, skógur
þekur tæpa 80 þúsund ferkílómetra eða
nær % hluta landsins. (Það þýddi 44
hluta íslands). Aðaltrjátegundin er eik,
Sjá næstu síðu
Kæri Astró.
Ég er fædd 29. júlí 1943, kl.
2,45 að nóttu, í smáþorpi úti
á landi, en fluttist til Reykja-
víkur 3ja ára. Gagnfræða-
prófi lauk ég í fyrra. Ég hef
unnið á skrifstofu síðan og
líkað ágætlega. Ég er mikið
fyrir böll, og þó einkum
gömlu dansana. Skapmikil er
ég, mjög fljót að rjúka upp,
en fljót að fyrirgefa aftur. Og
nú langar mig til að vita hvað
framtíðin ber í skauti sér hjá
mér í ástamálum og fleiru.
Getur þetta ekki komið
svolítið fljótt, því ég er að
fara af landi burt í tvo til
þrjá mánuði
Viddý.
Svar til Viddý:
Ég mundi ekki taka undir
að þú værir skapmikil, því
það er annað en að geta orðið
mjög reiður stundum. Skap-
miklir menn eru þeir, sem að
staðaldri þjást af geðofsa og
eru helzt ekki öðru vísi en
með einhverja harðneskju eða
spenning, hvar sem þá er að
finna og hvenær sem er.
Hitt er annað mál, að þú
ert mjög tilfinningarík og
fljót til að reiðast, ef þér
finnst þér vera misboðið, eða
gert er á hlut þinn. Eitt það
versta, sem hægt er að gera
þér, er að vantreysta þér, því
það samrýmist ekki þínum
konunglegu hugsjónum. Or-
sökin til þessa er staða Sól-
arinnar í Ljónsmerkinu, en
það kallar frarn virðuleik og
metnað til yfirráða, einnig
vissa tegund göfuglyndis og
rausnar. Það er náttúrlega
ekkert sérstakt, þó -að unga
stúlku langi oft á gömlu dans-
ana, það fylgir þessum aldri
og mun ég því ekki ræða það
frekar
í sambandi við ástamálin
vildi ég benda þér á að þér
mundi ganga bezt í sambúð
við mann sem fæddur er und-
ir Hrútsmerkinu, en einnig
vegnaði þér ágætlega með
manni, fæddum undir merki
Bogmannsins. Það er mjög al-
gengt með þá, sem fæddir eru
undir þínu merki, að verða
fyrir vonbrigðum í ástamál-
um, því fáir hafa eins mikla
ánægju af að . gefa eins #og
þeir, en jafnframt er örðugt
fyrir maka úr öðrum stjörnu-
merkjum að auðsýna jafn-
mikið göfuglyndi, ást og kær-
leika. Þess vegna stafar þessi
óhamingja. Það er því góður
leiðarvísir að hafa hugfast. að
þú skalt ekk.i gera þér of há-
ar hugmyndir um endurgjald
ástar þinnar eða gjafa til
maka þíns eða annarra þeirra,
sem þú kannt að eiga við-
skipti við.
Um ástamálin er það ann-
ars að segja að um tvítugs-
aldurinn hittir þú þinn bezta
,,séns“ á dansleik, en þau
kynni munu síðar leiða til
hjúskapar, en dráttur verður
talsverður á giftingu.
Efnahagur þinn er undir
sérlega hagstæðum afstöðum
og ættirðu að fá meira en
flestir aðrir út úr lífinu hvað
efni snertir. Samt má reikna
með talsverðum þáttaskilum
á þeim sviðum. I því sam-
bandi vildi ég einna helzt
geta ársins 1976 sem happ-
drjúgs árs sérstaklega.
Heilsufarið ætti að verða
með afbrigðum gott og þú
ættir að ná mjög háum aldri.
Árið 2033 markar tímamót
hvað það áhrærir og verður
þér hvað vanskilegast.
Eitt vildi ég vara þig við í
lífinu: að temja þér ekki um
of þröngsýni, og dæma fólk
ekki eftir eigin sjónargleri
um of, því að þér fellur sííkt
ekki nægilega vel úr hendi.
Það eru vissir annmarkar
á hugsanastarfseminni, -sem
þetta gera að verkum. Þegar
á allt er litið, er kort þitt
mjög gott og lífið ætti að geta
orðið þér hið ánægjulegasta.
FALKINN
31