Fálkinn - 02.08.1961, Síða 33
og einbeitni, var henni leyft að halda
áfram með lestinni.
Frá landamærunum tókst henni að
komast með múldýralest til Wangcheng,
og einn morguninn stóð hún dauðþreytt
eftir hrakningana og starði á skilti yfir
innkeyrslunni að stóru, gömlu og hrör-
legu húsi í þessu afskekkta fjallaþorpi.
Á skiltinu stóð: „Kristniboðshúsið í
Wangcheng“. í augu ungu stúlkunnar
kom glampi eins og sæi hún inn í hið
fyrirheitna land.
Frú Lawson, lítil og þrekin, röggsöm
og roskin kona með hvítt hár valds-
mannslegan, en þó góðlegan svip, stóð
á hrörlegum pallinum. sem var með-
fram endilöngu húsinu. Gladys stanz-
aði fyrir framan. hana og spurði: —
Eruð þér frú Lawson?
-—■ Já, og þér eruð Gladys Aylward,
býst ég við! Þér eruð yndislegar! Aldrei
hélt ég að þér kæmust alla leið!
Hún flýtti sér niður tröppurnar, tók
ferðatösku Gladys og sagði um leið og
hún kastaði höfðinu snöggt til: — Kom-
ið! Og velkomin til framtíðarheimilis
yðar! Og nú skuluð þér fyrst af öllu sjá
okkar reikula og rykuga einka-hof! Eg
ætla að biðja yður að missa ekki kjark-
inn. Með yðar hjálp ætla ég mér að
koma því í lag.
— En hvað hér er rúmt á fyrstu hæð-
dnni! hrópaði Gladys upp yfir sig frá
sér numin.
— Já, það var í rauninni þess vegna,
sem ég keypti þennan hjall. Uppruna-
lega var þetta veitingakrá, og það á það
að verða núna. Við komum öllu í lag
og opnum svo krána, þér og ég og kokk-
urinn hann Yang!
Frh. á næstu síðu.
Húsavík -
Frh. af bls. 19.
Maður sér það ekki fyrr en allt er
komið í tunnurnar. Eitthvað hlýtur það
nú að vera skárra en venjulega.
— Koma margir bátar hingað?
— Það eru fyrst og fremst heima-
bátarnir, sem landa hér hjá okkur. Þeir
eru tryggastir. Hinir koma, þegar þeir
komast ekki annars staðar að.
— Hefur þú ekki verið lengi á síld?
— Jú, blessaðir verið þið. Ég hef ver-
ið í síld og fiski síðan ég fæddist, —
síðan ég fór eitthvað að geta!
★
Það er óneitanlega illa viðeigandi að
standa lengi eins og glópur uppábúinn
og aðgerðarlaus innan um allt þetta
starfsama fólk. Þvert um geð troðum
við okkur inn í fólksvagninn og þar sem
við brunum aftur um fegurð og gróður-
líf Þingeyjarsýslu er aðeins eitt, sem
rúmast í hug okkar:
Síld og aftur síld .. .
STJÖRNUSPÁIN
Hrútsmerkið: .............
Þessi vika verður fleytifull af skemmtilegum at.vikum,
þér munuð upplifa það, sem þér hafið aldrei reynt áður
og verða mjög hrifinn qf því. í vikulokin er möguleiki á því,
að þér lendið í rómantísku ástarævintýri. Ennfremur munuð
þér fá tilboð frá óþekktum aðila, sem þér getið ef til vill
hagnast á.
Nautsmerkið • .... .....
Þér skuluð reyna að greina örlítið á milli raunveru-
leikans og hugmyndaflugsins. Yður er nefnilega lítil bót að
veltast í dagdraumum sýnkt og heilagt í stað þess að vinna
einhvern tíma ærlegt handtak. Þér skuluð því reyna að
setja yður eitthvert takmark og keppa að set.tu marki.
Tviburamerkið: .......
Ef þér getið læknað yður af þeirri smámunasemi, sem
háir yður í daglegu starfi, munuð þér komast langt og ná
miklum frama í starfi. Einhver misklíð hefur brotist. út
milli yðar og ástvinar yðar, en úr þessu getið þér bætt,
ef þér viljið.
Krabbamerkið: ..........
Þér megið búast við, að allt, sem þér takið fyrir hendur
í vikunni muni heppnast með afbrigðum vel. Hinsvegar
ríður á því, að þér grípið gæsina meðan hún gefst og látið
ekki tækifærin renna yður úr greipum. Gæt.ið þess að
forðast orðasennur við náin vin.
Lj ónsmerkið: .............
Þér skuluð hætta að leggja fæð á mann nokkurn, sem þér
hafið séð í sinni aumustu niðurlægingu, því að viðkomandi
maður hefur fyrir löngu gleymt atburði þessum og auk
þess var þetta ekki hans sök heldur annarra. Happasæll
verður föstudagur fjárhagslega.
Jómfrúarmerkið:
Góður vinur mun gefa yður ágætt ráð í vikunni, sem
þér skuluð notfæra yður t.il hins ítrasta. Þér hafið góða
möguleika til þess að hækka í tign í starfi yðar, ef þér
hafið bara nóga þolinmæði til að bera. Happatala yðar í
vikunni er talan 9.
Vogarskálamerkið:
Þér skuluð þakka yðar sæla fyrir hvern rólegan dag, sem
þér faið í þessari viku. Ef til vill munu einhver vandræði
eiga sér stað í vikunni, en með svolítilli lagni getið þér
leyst þau. Að föstudag loknum get.ið þér tekið hlutunum
með ró.
Sporðdrekamerkið:
Þér skuluð ekki láta freistast af lokkandi tilboðum, því
að það mun geta haft örlagaríkar afleiðingar fyrir pyngju
yðar. Síðar getur þó verið gott að þiggja þetta t.ilboð,
einkum ef þér hlýðið ráðum fjarlægs ættingja, sem mikla
reynslu hefur í þessum efnum.
B o gmannsmerkið:
Fjárhagsörðugleikum yðar virðist nú lokið og útlit er
fyrir að yður fari nú að græðast fé. Ástalíf yðar mun
blomstra meir en nokkru sinni fyrr og loksins munuð þér
komast. á réttan kjöl, hvað snertir starf yðar. Varið yður
á ljóshærðri 1 ítilli konu, hun kann að leggja snörur fvrir
yður.
Stcingeitarmerkið:
Verið ætíð minnugir 'þess, að gæfa yðar og gengi er mest-
megms komið undir yður sjálfum, bess vegna ætti það að
vera yður í mun að afreka sem mestu, en gætið þess að
reisa yður ekki hurðarás um öxl, þannig að þér náið aldrei
settu marki.
Vatnsberamerkið: ..........
Þér skuluð halda fast við þá ákvörðun, sem þér hafið
þegar tekið. Því að ef þér farið að breyta nokkru þar um,
getur svo farið, að allt lendi í ruglingi og vitleysu. Þér
ættuð að reyna að nota öll tækifæri, sem yður gefast til
þess að koma reglu á fjárhaginn.
Fiskmerkið: .............
St.j.örnurnar segja, að þér komið til með að leysa af hendi
mjög ábyrgðarmikið starf, sem mun ef til vill valda yður
nokkrum kvíða. Samt skuluð þér ekki vera neitt hræddur
við að taka þetta að yður, því að þér munuð leysa það
óvenjuvel af hendi. Verið ekki of hreinskilinn við ókunnuga.
©21. MARZ -
20. APBlL
©21. APRlL
21. MAl
®22. MAl -
21. IÚN1
o
o
22. JÚNl —
22. FÚLl
23. lÚLl —
23. AGÚST
24. AGÚS1
23. SEPT.
24. SEPT. —
23. OKT.
24. OKT. —
22. NÓV.
23. NÓV. —
21. DES.
22. DES. —
20. IAN.
21. IAN. —
19. FEBR.
20. FEBR
20 MAR2