Fálkinn - 17.01.1962, Blaðsíða 4
Steinaldarboð í Bandaríkjunum
í Bandaríkjunum eru menn fyrir löngu orðnir leiðir á hinuni
svokölluðu náttfataboðum. í stað þeirra hafa samkvæmismenn
fundið upp á því að bjóða til svokallaðra steinaldar-kvölda. Til
þeirra koma gestir klæddir sem steinaldarmenn og hegða sér sam-
kvæmt því. f boðum þessum snæða menn án diska og sitja á beru
gólfinu. Maturinn er eingöngu kjöt, sem gestir stýfa úr hnefa og
síðan drekka þeir úr stórri skál, sem allir súpa á. En því miður
hafa gestgjafarnir orðið að viðurkenna þá staðreynd, að íbúðirnar,
þar sem gestirnir leika hellismenn, hæfa ekki búningum þeirra.
Og til þess að hjálpa þeim, fann veggfóðurverksmiðja í Englandi
upp á því, að búa til ósvikið steinaldarveggfóður. Veggfóður þetta
var sýnt í fyrsta skipti í London. Bandarísk ljósmyndafyrirsæta
var fengin til þess að vera í herbergi. sem klætt var slíku vegg-
fóðri. Var hún klædd sem Neanderdalskona í búningi úr hlébarða
skinni og til þess að gera þetta allt sem raunverulegast varð hún
að narta af og til í kjötlæri.
INlýr listmálari úr hópi apa
Fyrir nokkrum árum vöktu simpansar, sem máluðu, mikla at-
hygli í Englandi og Bandaríkjunum. Dýrasálfræðingar og sérfræð-
ingar í nútíma málaralist fengu nokkrum þeirra pensla og liti í
hönd. Og hið furðulega gerðist. Fyrst var það apinn Kongó, simp-
ansi frá London, sem varð umtalaður vegna afstrakt málverka
sinna. Sömuleiðis varð apynja frá dýragarðinum í Baltimore fræg.
Nú hefur Beauty, þriggja ára gömul apynja af simpansategund sett
allt á annan endann með verkum sínum. Á sýningu, sem haldin var
fyrir skemmstu á verkum hennar á Manhattan, seldust málverk
eftir hana fyrir hvorki meira né minna en fimmtíu þúsund dali!
Ekki alls fyrir
öngu tók Jóhannes
páfi XXIII. í mót
á fæðingardegi sín-
iim tilboði um nýja
oáfakórónu. Tilboð
þetta kom frá fæð-
ingarþorpi hans
Bergamo.
Með tilboðinu
fylgdi uppkast af
kórónunni. Var það
mjög skrautlegt og
var kórónan skreytt
meðal annars vínviðarlaufi og vínþrúgum.
En hans heilagleiki hristi bara höfuðið og
brosti góðlátlega. Hann hafnaði þannig hinu
góða boði.
— Þessi kóróna, sagði hann, er alltof
fögur og áberandi fyrir hlédrægan mann og
gamlan sem mig. Og auk þess munu öll
þessi vínviðarlauf og vínþrúgurnar gera það
að verkum, að ég líkist ekki yfirmanni
kristinnar kirkju, heldur hinum gamla róm-
verska guði, Bakkusi.
★
Hafið þið nokk-
urn tíma heyrt, að
forseti lands léki
hlutverk í kvik-
mynd?
En það hefur
Kasvubu forseti
Kongó gert. Hinn
ítalski leikstjóri,
Ferzetti hefur feng-
ið hann til þess
arna. Og á forset-
inn að leika [ mynd,
sem heitir „Congo
vivo“ eða lifi Kongó, sem brátt á að fara
taka upp í þessu órólega landi.
Kasavubu hefur þegar reynst ágætlega
við hina fyrstu prófraun og kvað hafa leikið
bara ágætlega.
★
Tánungarnir í
Bandaríkjunum
hylla enn þá rokk-
kónginn Elvis Pres-
ley. Nálgast þessi
hrifning og aðdáun
stundum móður-
sýki. Daglega aka
svo margir tánung-
ar fram hjá húsi
hans við Mempis-
Tennessee, að þeir
trufla ekki einungis
umferðina í götunni
heldur er stöðugt verið að gera við holurnar.
Fyrst í stað var vandinn leystur með því
að setja möl í þær, en það þýðir ekkert
lengur, því að ungar stúlkur hafa tekið upp
á því að fara burt með smásteinana sem
dýrmæta minjagripi.
Og nú á að fara að malbika götuna.