Fálkinn - 17.01.1962, Síða 8
8 FÁLKINN
FLESTIR þekkja söguna um karlinn og kerlinguna, sem voru
svo nýtin á tóbak, að orð fór af. Karlinn tók upp í sig, en kerl-
ingin reykti. Þegar karl var búinn að tyggja mesta kraftinn
úr tuggunni, tók kerling þær og þurrkaði og reykti þær svo í
stuttri járnpipu. Síðan tóku þau öskuna úr pípunni í nefið.
Sá siður að taka tóbak í nefið er enn algengur hér á landi og
hefur Iengi verið við lýði. Séra Stefán Ólafsson kvað:
Minn vin, ég gef
þér mæta ráð í kvæði,
hafir þú kvef,
hóstann og þunga mæði,
tóbak er bezt,
tóbak, tóbak, tóbak er bezt
að breyzkja og saxa í nef.
En við skulum nú rekja sögu neftóbaksins aftur í tímann, því
að siður þessi var víða útbreiddur og vinsæll fyrrum í útlöndum.