Fálkinn - 17.01.1962, Blaðsíða 31
um hengu nokkur olíumálverk og í
einu horninu gamlar ljósmyndir í gull-
römmum. Á heiðursstaS yfir arninum
hékk vatnslitamynd af prinsinum sem
stúdent.
Cecilia Eckert lét sig falla í einn af
hinum þægilegu hægindastólum og virti
prinsinn fyrir sér, meðan hann tók fram
tvö glös og hellti þau hálffull.
— Þú veizt náttúrlega, að Bettina er
komin aftur, hóf hún máls í léttum tón.
Árangurslaust beið hún eftir, að
undrunarsvipur færðist yfir andlit
prinsins.
— Bettina, endurtók hann hægt,
rétt eins og hann hefði aldrei heyrt
það nafn fyrr á ævinni. — Ó, þú átt
við Bettinu Brandt? Já, er hún komin
aftur? Hvað er að frétta af henni?
Óróleg handlék Cecilia brúnu hand-
töskuna sína.
— Henni virðist líða vel, sagði hún
stuttlega. — En hún hefur að sjálfsögðu
samvizkubit út af því sem gerðist hér
einusinni. Já, ég vona að þetta verði
aðeins okkar á milli...
-o-o-o-
Svo til á sama tíma yfirgaf Bettina
húsið, sem eitt sinn hafði verið bernsku-
heimili hennar og þar sem hún hafði
lifað nokkur hamingjusöm ár sem lyf-
salafrú. Hægum skrefum gekk hún
aftur til gistihúss síns. Allan tímann
var hún gagntekin þeirri óþæginlegu
tilfinningu, að alls staðar væru hulin
augu, sem veittu henni eftirtekt. Alls
staðar sá hún augu sem horfðu á hana
í húsunum báðum megin götunnar og
úti á götunni, sem hafði verið næstum
tóm þegar hún kom en var nú iðandi
af fólki.
Hún fór ekki strax inn í gistihúsið
heldur á bílastæðið, þar sem hún
geymdi bifreið sína, stóra ameríska
bifreið. Hún settist við stýrið og setti
bílinn í gang. Hún leit á klukkuna.
Enn þá var skammt liðið á daginn.
Hún stundi. Enn þá átti hún óralangt
og einmanalegt kvöld fyrir höndum.
Hversu mörg slík kvöld hafði hún ekki
lifað, þar sem hún hafði ekki annað
við tímann að gera en fara í bað,
klæðast einhverjum af hinum ótalmörgu
glæsilegu módelkjólum sínum, sem
ævinlega vöktu aðdáun og öfund ann-
arra kvenna og fara síðan niður til
kvöldverðar og velja tímann þannig,
að kvöldið yrði sem stytzt.
Þannig hafði þetta verið svo lengi
sem hún mundi og þannig mundi það
bersýnilega alltaf verða. Ekki svo að
skilja að hún væri einmana og skorti
félagsskap. Þvert á móti. Hún var fög-
ur og rík, og í því umhverfi sem hún
lifði var nóg af mönnum sem voru
fúsir til að kvænast henni. Hvers vegna
hafði hún ekki tekið einhverjum
þeirra? Ef til vill af því að hana lang-
aði heim, og innst inni hafði hún vonað,
að Julian myndi einhvern tíma. .. .
Nei, Julian átti ekki sökina. Öllu var
lokið þeirra í milli í eitt skipti fyrir
öll. En enginn þeirra manna, sem hún
hafði kynnst þessi ár, hafði fallið inn
í hinn leynda draum hennar, drauminn
um að setjast dag nokkurn að í litla
bænum, hafa börnin sín hjá sér eða
sjá þau að minnsta kosti eins oft og
mögulegt væri, — í stuttu máli sagt:
njóta örlítils brots af því. sem hún
hafði saknað og mátt vera án öll þessi
ár. Hún hafði afsalað sér börnunum
sínum þeirra vegna til þess að þau
gætu átt gott heimili og alizt upp í
umhverfi sem hæfði þeim vel. Og nú
vildu þau ekkert með hana hafa að
gera. Wolfgang hafði greinilega látið
í ljós álit sitt á móður, sem hafði yfir-
gefið mann sinn, heimili og börn....
Og svo hin litla og fallega Doris....
Að hún skyldi aldrei hafa hugsað
um þetta með Doris. Bettina beit á
jaxlinn og kreppti hendurnar um stýr-
ið, meðan hún ók varlega umhverfis
torgið, þar sem umferðin var sérstak-
Kæri Astró!
Mig langar til að biðja
þig að lesa úr stjörnunum
um framtíðina. Ég er fædd
20 september 1945, klukkan
tvö síðdegis. Ólofuð en pínu-
lítið ástfangin. Hann er fædd-
ur 4. ágúst 1941.
H. H.
Svar til H. H.
Þú fæddist þegar sólin var
20° 15' í merki Meyjarinnar.
Þú ert því hæglát og íhugul,
og ferð hægt í sakirnar í
hverju sem er. Þú hefur
einnig talsverða tilhneigingu
til að gagnrýna hlutina, en
þú gerir það samt í góðum
tilgangi. Máninn í Fiska-
merkinu bendir til að þú sért
dreymin og þannig álítur
fólk þig einnig vera. Máninn
í þriðja húsi bendir til tíðra
ferða, sennilega í sambandi
við vinnuna. Afstöður plá-
netnanna í áttunda og níunda
húsi benda til þess að þú sért
talsvert dulrænt þekkjandi
manneskja og hafir yndi af
slíku. Ég mundi ráðleggja
þér að leggja rækt við
drauma þína, því þeir munu
oft geta varað þig við hætt-
um.
Ég álít að á annan veg
fari margt, en ætlað er.
Stjörnukort þitt gefur til
kynna að þú munir ekki lifa
og starfa hér á íslandi heldur
eigi fyrir þér að liggja að
ferðast til útlanda, fyrst í
sambandi við nám og síðar
muntu giftast þar og bera að
lokum beinin. á erlendri
grund. Pilturinn, sem þú
gafst mér upp fæðingardag
og ár á mun ekki ganga að
eiga þig, enda er samband
ykkar ekki á traustum grunni
reyst. Þessi breyting á hög-
um þínum mun að öllum
líkindum eiga sér stað um
og eftir tuttugu og fimm ára
aldur og sterkustu og áhrifa-
ríkustu ár ævi þinnar eru frá
25 ára til 45. Samt verður
síðasti tugur ævinnar við-
burðaríkur og þú þarft.ekki
að kvíða einmanaleik, þegar
þar að kemur. Um og eftir
40 ára aldurinn muntu hall-
ast meir og meir að dulræn-
um og sálrænum viðfangs-
efnum. Þú ættir samt sem
áður að vera mjög varkár í
þeim efnum og varast að
falla of sterkt undir, áhrif,
ýmissa, sem telja sig bezt
hafa vit á sáluhjálp mann-
kynsins. Þitt stjörnukort
bendir til að þú eigir að flýta
þér mjög hægt í þeim efnum,
þá ertu viss um að geta
áttað þig á hlutunum og náð
settu marki. Ýmislegt í kort-
inu bendir til að giftingu
þína muni bera nokkuð brátt
að, þetta er einnig hlutur,
sem þú ættir alls ekki að
kasta höndunum að. Sú al-
menna regla gildir að þeir,
sem okkur fellur bezt við,
sem giftingamaka séu fæddir
nálægt tveim mánuðum fyrir
og eftir okkar eigin fæðingar-
dag. í þínu tilfelli er það
fólk sem fætt er undir merki
Krabbans, eða fólk, sem
fætt er á tímabilinu frá 22.
júní til 21. júlí og þeir sem
fæddir eru undir stjörnu-
merkinu Sporðdrekanum eða
á tímabilinu frá 23. október
til 21. nóvember. Þetta gildir
miðað við að aðrar afstöður
stjörnukortsins séu ekki óhag-
stæðar, en bezt er að leita
álits stjörnuspekings um það
hverju sinni. Á hinn bóginn
um fólk, sem fætt er þrem
mánuðum fyrir og eftir fæð-
ingardag okkar, þá ættum
við ekki að hafa mikið saman
að sælda við það að öðru
jöfnu, nema annað í stjörnu-
sjánni bendi í gagnstæðar
áttir. í þínu tilfelli eru það
þeir, sem fæddir eru undir
merki Tvíburans eða á tíma-
bilinu frá 21. maí til 21. júní
eða þeir, sem hafa þetta
taugaspennta, viðstöðulausa
sterkt í kortum sínum. Einnig
þeir sem fæddir eru undir
stjörnumerki Bogamannsins
eða þeir, sem fæddir eru á
tímabilinu 22. nóvember til
21. desember.
FÁLKINN
31