Fálkinn


Fálkinn - 12.12.1962, Page 17

Fálkinn - 12.12.1962, Page 17
 Já, þakka, sál mín, þú, þakka og lofsyng nú fæddum friðargjafa, því frelsari er hann þinn, seg þú: hann skal hafa æ hjá mér bústað sinn, vinur velkominn. Ó, guðs hinn sanni son, sigur, líf og von rís með þér og rætist, þú réttlætisins sól, allt mitt angur bætist, þú ert mitt ljós og skjól. Ég held glaður jól. Á hæstri hátíð nú hjartafólgin trú honum fagni og hneigi, af himni er kominn er, sál og tunga segi með sælum englaher: Dýrð sé, Drottinn þér. Björn Halldórsson frá Laufási. FALKINN 13 Sjá, himins opnast hlið, heilagt englalið, fylking sú hin fríða úr fagnaðarins sal, fer með boðun blíða og blessun lýsa skal yfir eymdadal. í heimi er dimmt og hljótt, hjarðmenn sjá um nótt ljós í lofti glæðast, það ljós Guðs dýrðar er, hjörtu þeirra hræðast, en Herrans engill tér: Óttist ekki þér. Með fegins fregn ég kem: fæðzt í Betlehem blessað barn það hefur, er birtir Guð á jörð, frið og frelsi gefur og fallna reisir hjörð. Þökk sé Guði gjörð.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.