Fálkinn


Fálkinn - 12.12.1962, Blaðsíða 28

Fálkinn - 12.12.1962, Blaðsíða 28
Heimkoma.it Þegar kvöldaði, jókst norð-vestan stormurinn, og þung ský fóru lágt yfir heiðinni. Þau voru grá, líkt og fé í vorbyrjun, áður en það er rúið, og úr þeim féllu fáein snjókorn.Maðurinn nam staðar andartak og leit hugsandi til himins. Hann þefaði nokkrum sinnum, líkt og hann vildi með aðstoð þefskyns síns komast að því, hvað veðurguðirnir hyggðust fyrir. Síðan hélt hann göngu sinni áfram, einbeittur á svip, eftir vegi, sem var ekki annað en fáein ó- greinileg hjólför í iynginu. Hann hafði komið síðdegis með áætlunarvagninum og var nú búinn að ganga 3—4 mílur. með þessu slangrandi göngulagi, sem einkennir hermenn, nautreka og flakk- ara, fólk, sem er vant miklum og löng- um göngum. Og það leit út fyrir að hann gæti auðveldlega gengið annað eins í viðbót, án þess að þreytast. Þegar rökkva tók, jókst stormurinn enn. Hann þrýsti barðabreiða hattinum fastar að höfði sér og greikkaði sporið, líkt og þolinmæði hans væri nú loks á þrotum. Hann var aleinn á heiðinni, langt í fjarska hyllti undir eyðilegt býli, þar sem hlýlegum lyngmó hafði verið hiaðið við leirvegina. Á þessari löngu göngu sinni hafði hann aðeins mætt einni mannveru, bónda, sem stóð við bæ sinn skammt frá veginum. Bónd- inn hafði varla tekið undir kveðju hans en starað undrandi á þennan ókunna mann, sem gekk áfram inn í heiðina klæddur stórum kragastígvélum og skikkju, sem líktist helzt hermanna- skikkju, erlendri að sniði. Það var orðið dimmt og snjórinn féll þéttar, þegar hjólförin urðu að öng- vegi, sem lá niður bratta brekku. Maðurinn var augsýnilega á velþekkt- um slóðum, því að hann hélt hiklaust áfram unz hann fann að hann gekk á mjúku engi. Þá gekk hann hægt niður að ánni. í myrkrinu greindi hann hið gráa, streymandi vatn. Hann dró öndina léttar, eins og sá, sem eftir langa leit nær loks takmarki sínu. Maðurinn gekk eftir árbakkanum, unz hann kom að lítilli trébrú. Henni hafði verið lokað með fjöl, sem var bundin við handriðin með reipi úr hrísi. Hann hugsaði með sér, að þetta ætti að vera aðvörun við að fara út á brúna — hún hlaut að vera brotin einhvers- staðar. En hann ætlaði nú samt að reyna að komast yfir. Hann var ekki vanur að skeyta mikið um aðvaranir. og það var jú atvinna hans að bjóða hættunni byrginn. Hann kippti fjölinni úr, og lét hana detta. Eitthvað, sem gaf frá sér syngj- andi málmhljóð, slóst við handlegg hans. Það reyndist vera plógjárn, sem hafði verið hengt á handriðið ásamt broti úr vagnhömlu. Hann vissi vel, hvað þetta þýddi, en rumdi aðeins ó- þolinmóðlega og gekk út á brúna. Hún ruggaði geigvænlega, en hann hélt á- fram. í myrkrinu og hríðinni gat hann aðeins séð fáein skref fram fyrir sig. Skyndilega var ekkert áframhald af handriðinu. og þegar hann steig feti framar gein hið dimma hyldýpi við hon- um. Það brakaði og brast í brúnni, þar sem brotin lágu ofan í djúpið. Hann fikraði sig aftur á bak og snéri varlega við. Þegar hann stóð aftur á árbakkanum,, tók hann' vagnhömluna og sló þrjú þung högg á plógjárnið. Hljóðið barst nötrandi gegnum þokuna, yfir ána. Hann sá, að ljós var kveikt á hinum árbakkanum, lengra niður frá. Hann gat sér til, að þessu ljósi hefði verið komið fyrir í glugga fiskimannshúss ins. Eftir nokkra stund heyrði hann 24 FALKINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.