Fálkinn - 12.12.1962, Qupperneq 43
Jclahjalwr úr pappaApjalcti
í jólahjálminum, sem þið sjáið á mynd 1, notið þið kringl-
ótt pappaspjald, 4 sentimetra í þvermál. Þið dragið hring
á spjaldið, 1 sentimetra frá jaðrinum og annan einum senti-
meter innar, sjá mynd 2. Með stórri stoppunál gerið þið sex
göt á hvorn hring með sem jöfnustu millibili.
Svo útvegið þið ykkur 12 litlar perlur og eina stóra, og
klippið tólf engla úr glanspappír eftir fyrirmyndinni á teikn-
ingunni (3). Englarnir eru festir svona:
Þræddu svartan tvinna á nál, hnýttu hnút á endann og
stingdu gegnum höfuðið á englamyndinni. Þræddu perlu á
tvinnann og stingdu nálinni tvívegis í gegnum hana, svo að
hún renni ekki til á þræðinum (mynd 4). Stingdu síðan
nálinni gegnum eitt gatið á pappaspjaldinu og loks gegnum
stóru perluna. Þannig ferðu að með alla hina englana, en
hefur litlu perluna misjafnlega langt frá þeim, svo að þeir
hangi ekki allir jafnhátt. Það á að líta svo út sem þeir séu
allir fljúgandi í hóp. Svo hnýtir þú hnút á alla endana fyrir
ofan stóru perlurnar, en gætir þess að spjaldið verði lárétt
þegar það er hengt upp. Ef þú vilt hafa myndir af einhverju
öðru en englum, geturðu klippt út jólasveina, stjörnur eða
hjörtu, sem þú sérð neðst á myndinni til hægri. En þú verður
að stækka myndirnar.
£krítlur
Jclaþrautirnar Aem Cirík litla dtei^ttuji
— Hvers vegna held-
urðu, að jólasveinninn
hafi hvítt skegg, Pétur?
— Það er víst til þess að
ég skuli ekki þekkja þig,
pabbi.
★
Pétur var í heimsókn
hjá frænku sinni uppi í
sveit, og var þessi frænka
mjög trúboðssinnuð og
siðavönd. Til dæmis lagði
hún ríkt á við Pétur, að
hann mætti ekki leika sér
á sunnudögum. Það væri
vanhelgun á hvíldardegin-
um. Samt vildi nú svo til
eitt sunnudagskvöld, að
Pétur freistaðist til að láta
lítinn bát sem hann átti
sigla á Tjörninni. Varð
frænka reið Pétri fyrir
þetta.
— Veiztu ekki, Pétur
litli, sagði hún ávítandi,
að það er óguðlegt að láta
bátinn sigla á sunnudegi?
— Heyrðu frænka, sagði
Pétur þá. — Ég skal segja
þér, að þetta er engin
skemmtisigling. Þetta er
trúboðaskip sem er á leið
til Afríku.
★
\
Móðirin: Hvers vegna
ertu að gráta, Lísa litla?
Lísa (4 ára): Af því að
hann Pétur litli snikkar-
ans vill endilega giftast
mér. Og ég, sem hef ekki
gert honum neitt.
Eiríkur litli liggur í rúminu sínu og hann er að dreyma um jólin. Þá birtist honum
allt í einu jólasveinn — í drauminum auðvitað — og lofar honum því, að jólaóskir hans
skuli rætast, ef hann geti ráðið þessar fimm þrauir. Kannke þú viljir reyna við þær líka?
1. Reikningsþrautin:
Ef þú athugar reikningsdæmið vel, þá sérðu, að rangt er lagt saman. En ef þú dregur 1
frá ákveðnum tölustaf, þar sem hann kemur fyrir í dæminu, verður útkoman rétt. Hvaða
tölustafur er það, sem þú átt að draga 1 frá?
2. Náttúrufræði:
Geturðu fundið þrjár villur í teikningunni af grísnum?
3. Landafræði:
Hvað er rangt í uppdrættinum, sem þú sérð þarna af Englandi og írlandi?
4. Söngur:
Hérna er horn af nótnablaði. Hvaða þrjár villur eru í því?
5. Flagg.
llérna sérðu franska, svissneska og bandaríska flaggið. En ekkert þeirra er rétt. Hvað
er rangt við þau?
Svörin við þrautunum
eru á bls. 68.
FÁLKINN
39