Fálkinn


Fálkinn - 12.12.1962, Page 61

Fálkinn - 12.12.1962, Page 61
að hafa það til sýnis, allra sízt síðustu dagana. Við áttum frí — hugsið þið ykkur — frí — og þess vegna er ekki að vita nema við....... — Já það er ekki að vita...., segir Lási. — Og ég, Lási, segir Marta, — ég. .... Nú kemur titringurinn í röddina aftur. — Manstu hvað ég sagði þegar við stóðum saman og sáum norsku og ensku hermennina ganga um göturnar 10. maí og heimvarnarliðið var í fullu fjöri — manstu það? — Já, svarar Lási, — þú sagðir eitthvað á þá leið .... „hefði það ekki verið gaman fyrir þig, Lási, að vera í þessu heimavarnarliði, þá værir þú þarna í fylkingunni núna“. Jú ég man það vel, og þú varst víst líka vonsvikin af mér? — Já, svaraði Marta, — og ég spurði þig meira að segja hvort þú hefðir ekki slæma samvizku. Æ, því líkt .... og ég, sem...... — Það gerir ekkert til, Marta — því að ég man líka hverju ég svaraði: — Nei, í rauninni hef ég ekki slæma sam- vizku, svaraði ég. Og það er víst fyrir mestu. Á slóðum . . . Framhald af bls. 23. nálega 200 árum síðar og til þess tíma hafði kóngur ekkert vald til að skipa prestum þrauð á íslandi. Slíkir smá- munir eru þó léttir á voginni þegar þjóðsögur verða til. Það ágæta fólk er nú löngu komið undir græna torfu, sem trúði þjóðsög- um og ævintýrum. Fyrir þessu fólki var Kölski og árar hans jafn raunveru- legt afl og rafmagn og útfjólubláir geislar eru í augum okkar sem nú lif- um. Dvöl Sæmundar í Svartaskóla. ferð hans heim á selnum og glettur hans við Kölska í Odda voru þeirra tíma sann- fræði í augum almennings. Þótt nú sé öldin önnur, þá mun það almenn trú manna að Sæmundur hinn fróði Sigfússon hafi verið nemandi í Sorbonne, og eru ekki alþýðumenn ein- ir um þá trú. íslenzkir sagnfræðingar hafa ekki svo kunnugt sé haft tíma eða tækifæri til að rannsaka Frakklands- dvöl Sæmundar fróða svo verðugt sé, enda mun óhægt um vik. Hartnær tíu aldir eru liðnar frá því þessi íslending- ur dvaldist þar einn síns liðs í ókunnu landi og er ekki vitað um aðra Norður- landabúa þar samtíma honum. En það eru fleiri en sagnfræðingar íslenzkir og alþýða manna hér á landi, sem hafa látið sér títt um Sæmund. í sumar komst ég í kynni við franska húsmóður sem býr ásamt manni sínum og dóttur í Latneska hverfinu í Parísar- borg og hún hefur gert sér far um að rýna undir þann hulduhjúp sem um- vefur þennan forna íslending og nytja- mann kristninnar. Konan heitir Giselle og er gift landa Sæmundar, Sigurði Jónssyni náttúrufræðingi sem búið hef- ur í Frakklandi frá því 1947, lokið þar löngu námi og starfar nú við vísinda- stofnun þar í borg auk þess sem hann hefur nýlega lokið doktorsprófi hinu meira, hinn þriðji íslendingur sem lýkur því þar í landi. Giselle Jónsson er ættuð úr suður- hluta Frakklands og lagði um eitt skeið stund á lögfræði unz hún giftist manni sínum og ól honum dóttur er Solveig heitir. Lagði frúin þá námið á hilluna en hefur haldið áfram ýmsu grúski. Hún fékk fljótlega pata af tilvist Sæ- mundar og meintri dvöl hans við Sor- bonne og tók sér fyrir hendur að rann- saka hvað hæft væri í því. Hún komst fljótlega að raun um að það væri fjar- stæða að Sæmundur hefði stundað nám við Sorbonne, af þeirri einföldu en veigamiklu ástæðu að Sorbonneháskól- inn hafði ekki enn verið stofnaður á dögum Sæmundar. En Giselle lét sér ekki nægja að svipta Sæmund þeim hróðri að hafa svelgt úr menntabrunnum Sorbonne, hún gerði sér far um að rannsaka hvar lík- legt væri að Sæmundur hefði stundað Sjá næstu síðu. .HÚN Eft BÚIIV At> HAFA Mlkl® FYftlR lióOINU. KRAkKARIYIR FÁ HATTA o Gr l-ÚÐRA. FALKINN 57

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.