Fálkinn - 12.12.1962, Page 65
IÐUNNARSKOR Á ALLA FJÖLSKYLÐUHA
Hrútsmerkið (21. marz—20. apríl).
Þetta verður sannarlega góð vika fyrir yður. Allt
mun leika í lyndi og vandamál, sem hafa valdið yður
áhygffjum, munu leysast á farsælan máta. Þér ættuð
hó að varast að reikna með hví hér eftir, að allt
muni veitast yður jafnlétt ok í hessari viku.
Nautsmerkið (21. apríl—21. maí).
Einn af meðlimum fjölskyldunnar hefur mikla hörf
á hví að vera í nánari tengslum við yður en hingað
til hefur verið. Þér ættuð ekki að slá hendinni á móti
vinsemd hans, heldur sýna honum há alúð, sem hér
eigið til að bera.
Tvíburamerkið (22. maí—21. júní).
Þér hafið farið heldur gáleysislega með tíma vðar
og fjármuni um skeið og hetta kemur yður ábreifan-
leo*a í koll síðari hluta vikunnar. Mjög óvænt atvik
kemur fyrir á laugardag. Það mun kitla hégómagirnd
yðar svolítið.
o
KrabbamerkiH (22. júní—22. júlí).
Það gerist ekkert stórfenglegt eða sérstaklega
spennandi í vikunni. Fjármálin verða erfið eins og
fyrri daginn, en með örlitlum klókindum og heppni
mun yður takast að kippa þeim í lag um stundar-
sakir. En munið aðeins um stundarsakir.
Ljðnsmerkið (23. júlí—23. ágúst).
Fjölmargir óheillavænir aðilar munu leitast við
að draga yður á tálar í þessari viku. Yður skal því
ráðlagt að beita öilum viljastyrk yðar og skapfestu
til þess að koma í veg fyrir margs konar vitleysu.
Þriðjudagurinn getur orðið hættulegur.
Jómfrúarmerkið (2i. ágúst—23. september).
Fyrri hluti vikunnar verður heldur erfiður og
leiðinlegur, en þegar líöur á vikuna mun rofa til, og
gleðin verður ríkjandi. En í allri þessari gleði, megið
þér ekki gleyma vinum yðar heldur gefa þeim hlut-
deild í yðar ánægju.
VogarskálamerkiS (2j. september—23. október).
Þér eruð allt of dulur og láfcið ekki nógu oft uppi,
hvað yður býr í brjósti. Þetta orsakar oft og tíðum
leiðan misskilning, sem veldur töluverðum vandræð-
um í einkalífinu. Ennfremur eruð þér of durtslegur
á vinnustað og bitnar það illa á félögum yðar.
SporSdrekamerkiS (2í. október—22. nóvember).
Þetta verður ósköp hversdagsleg vika og ekki neit.t
óvænt mun koma yður úr jafnvægi. Þó er ýmislegt,
sem ber að varast. Einkum skuluð þér forðast allt
baktal og róg. í vikulokin munuð þér öðlast gott tæki-
færi, sem þér megið ekki láta renna yður úr greipum.
Bogamann8merkiS (23. nóvember—21. desember).
Þér skuluð ekki skirrast við að beita ákveðna
persónu hörku, enda ríður á, að þér hopið hvergi
á hæl. Persóna þessi er yður mjög nákomin, og yður
tekur ef fcil vill sárt að þurfa að beita þessum örþrifa-
ráðum, en annað er ekki hægt eins og sakir standa.
SteingeitarmerkiS (22. desember—20. janúar).
Þér hafið verið einum of bjartsýnn í fjármálunum
upp á síðkastið, en ekki líður á löngu, unz reiknings-
skil verða og þá eruð þér ekki vel á vegi staddir. Þér
getið ef til vill unnið þetta upp með því að beita
yður ströngum aga og einbeitingii.
VatnsberamerkiS (21. janúar—-19. febrúar).
Að undanförnu hafa tímarnir verið yður erfiðir,
en sennilega rofar eitthvað til í þessari viku. Breyt-
inga er'að vænta. Hvort þær verða til góðs eða ills er
algerlega komið undir yður sjálfum. Happatala í þess-
ari viku er 6.
Fiskamerkið (20. febrúar—20. marz).
Ekki skuluð þér taka of nærri yður, þótt persóna
nokkur, sem hingað til hefur verið hlynnt yður,
snúist gegn yður í ákveðnu máli. Þér ættuð að taka
þessu með heimspekilegri ró og reyna að gleyma
þessu eða að minnsta kosti erfa það ekki.
FALKINN
61