Fálkinn - 09.12.1963, Blaðsíða 26
MÆTVRBEIM
Ekki hún, ég.
Allar hinar mega hrökkva
i kút, þegar vekjaraklukkan
hringir, stökkva fram úr
rúminu, nudda stýrurnar úr
augunum, smeygja sér í
íötin, hella í sig kaffibolla
og hlaupa af stað í kapp-
hiaupi við strætisvagninn.
Allar nema ég.
Ég vakna eldsnemma á
morgnana og tek úr mér
rúllur.
Það veit enginn nema sá
sem reynt hefur, hvað það
er ótrúlega vont að sofa með
rúllum.
En ég verð að líta vel út.
Allar nema ég geta leyft
gér að mæta í vinnunni með
augnskuggana út á kinn og
varalitinn niður á höku.
Ég get það ekki.
Ég elska nefnilega for-
stjórann og forstjórinn elsk-
ar mig.
Þess vegna er ég heima
á kvöldin. Ég pressa pilsin
mín einu sinni enn, set í
mig rúllur og læt lag af
kremi á andlit mitt.
Ég fer líka snemma að
gofa.
Það er ekkert sem jafnast
á við svefninn sem fegrun-
arlyf.
Og ekki væri skemmtilegt
að opna dyrnar íklædd rúll-
um og andlitskremi og upp-
götva að fyrir utan stend-
ur elskan hann Grímur en
ekki hún Sigga vinkona
mín.
Forstjórinn minn heitir
nefnilega Grímur.
Þess vegna var ég mitt í
dásamlegum draumi, þegar
dyrabjallan hringdi klukkan
eitt að nóttu til.
Og þegar ég segi að
draumurinn hafi verið dá-
samlegur, þá meina ég dá-
samlegur. Það er ekkert
jafn andstyggilegt og að vera
vakinn einmitt þegar mann
dreymir elskuna sína. Og
það einmitt þegar eitthvað
er að ske.
En eitthvað varð ég að
gera. Ekki gat ég látið vekja
nágrannana. Ég bý nefnilega
1 blokk og einu sinni, þegar
hann Grímur var að fara
lrá mér heyrði ég þrjár
hurðir opnast.
Hann Grímur hefur ekki
þorað að heimsækja mig
síðan, því það birtust þrjú
kvenmannsandlit í dyrun-
um.
Og ein þeirra var vinkona
konunnar hans Gríms.
Þetta gat svo sem verið
eitthvað alvarlegt. Það er
aldrei að vita, hvað getur
skeð í blokk.
Kannski var kviknað í.
Ég smeygði mér í slopp
og fór til dyra.
„Hver er þar?“ kallaði ég
út um skráargatið. „Ef það
er einhver, sem ég þekki,
ekki, þá opna ég bara alls
ekki.“
„Það er ég,“ sagði karl-
mannsrödd fyrir utan dyrn-
ar og ég þekkti á svipstundu
að þetta var elskan hann
Grimur, sem ég kalla minn
svona í laumi.
Ég flýtti mér að opna.
„Grímur,“ sagði ég stein-
hissa, „hvað er að?“
„Ástin min,“ sagði Grím-
ur og ég sá að skallinn á
honum var orðinn blár af
kulda.
„Elsku hjartað mitt,“
hrópaði ég. „Komdu inn og
hitaðu þér.“
»Ég vissi að þú myndir
ekki bregðast mér yndið
mitt,“ sagði Grímur og ég
sá að hann var hátt uppi.
Þess vegna lét ég hann
setjast við ofninn í eldhús-
inu og setti kaffiketilinn í
samband meðan ég rauk
fram á bað, reif úr mér rúll-
urnar, þurrkaði af mér and-
iitskremið og málaði á mig
augnabrúnir með titrandi
hendi.
Hvað hafði skeð?
Ég hljóp fram í eldhús.
„Segðu mér hvað hefur
skeð elskan mín?“ sagði ég.
„Hvernig stendur á því, að
þú kemur hingað um há-
nótt án þess að gera boð á
undan þér fyrst.“
Ég vissi nefnilega ekki
betur en hann ætlaði að vera
heima hjá kerlingunni allt
kvöldið. Þau áttu von á gest-
um.
„Það — það er hún Sigríð-
ur,“ stundi hann. „Ég er
skilinn við hana elskan mín.
Ég gat e^ki haldið þetta út
lengur. Ég er farinn írá
henni og kominn aftur til
þín.“
Ég vissi svo sem alltaf að
hann Grímur er alveg óður
af ást á mér og að kerlingin
hans er hreinasta skrímsli,
sem alls ekki skilur hann
og aldrei hefur gert það.
Ég vissi líka alltaf, að
hann kvæntist henni bara
vegna þess að pabbi hennar
átti fyrirtækið, sem Grímur
er forstjóri fyrir, og kerling-
arálkan erfði allt saman.
Það er ekki auðvelt fyrir
menn eins og hann Grím
minn að fá nýja stöðu, ann-
ars væri hann löngu skilinn
og kvæntur mér. Ég veit, að
menn eins og hann, sem
alltaf hafa verið forstjórar
og komnir eru yfir fimmtugt
geta ekki allt í einu farið að
vinna sem sendlar hjá Ríkis-
skip.
„Ertu skilinn við hana
Sigríði?"
„Já,“ sagði hann. „Ég er
skilinn við hana,“
Og hann tók drjúgan teig
úr kaffibollanum. Það lá við
að hann stykki upp á eld-
húsborðið.
„Guð minn góður,“ öskr-
aði hann og bunan stóð út
úr honum. „Hvaða eitur er
þetta? Er þetta kaffi?“
„Uss elskan," sagði ég.
„Þú hefur gott af að fá þér
kaffisopa. Við þurfum að
ræða málin alvarlega og þú
þarft að láta renna ögn af
þér fyrst.“
Ég á við að það er eitt að
elska hann Grím sem for-
stjóra fyrir stóru fyrirtæki
og vera einkaritari hans upp
á stórfé.og annað að elska
sendil hjá Ríkisskip.
Ég hef alltaf verið mikið
gefin fyrir að hafa það gott
um dagana og ég gat ómögu-
lega hugsað mér að fara að
lifa sultarlífi. Stúlka á
mínum aldri (ég varð 35
ára fyrir viku) verður að
hugsa um framtíðina og
hjónaband er ekki allt.
Mig langar vitanlega til
að giftast, en aðeins ef því
fyigir öryggi. Það er nefni-
lega öryggið, sem er fyrir
öilu.
Þetta var vitanlega allt
annað mál, ef hann Grímur
fengi helminginn á móti
kerlingunni, en henni var
svo sem trúandi til að hafa
gert við hann kaupmála.
Einmitt á meðan ég var
að velta því fyrir mér,
hvernig bezt væri að ganga
til verks, hringdi síminn.
Ég leit á Grím.
„Ég skal svara,“ sagði
Grímur og tók undir sig
stökk. Ég rétt gat gripið í
handlegginn á honum áður
en hann reif símann.
„Nei, þú svarar ekki,“
sagði ég og ég lagði mikla
áherzlu á ekki.
„Þetta er hún Sigríður,“
sagði Grímur. „Ég sagði
henni að ég væri að fara til
þín.“
„Uss,“ sagði ég og tók
símtólið upp og gerði mitt
bezta til að láta sem ég
væri nývöknuð.
„Halló,“ sagði ég.
„Afsakið, að ég skuli
hringja svona seint,“ sagði
rödd, sem ég kannaðist af-
skaplega vel við.
Þetta var reyndar Sigríð-
ur konan hans Gríms.
Hún kynnti sig til mála-
mynda og ég reyndi að lát-
ast vera steinhissa.
„Ekki vænti ég að maður-
inn minn sé staddur hjá
yður?“ spurði kerlingarálk- #
an alveg bláköld.
Hvað hélt manneskjan
eiginlega að ég væri? Ein-
hver gála eða hvað? Ekki
nema það þó að bera það
upp á mig að ég hafi hjá
mér um hánótt karlmann og
það meira að segja kvæntan
mann — hennar mann!
„Nei,“ sagði ég. „Hvernig
dettur yður annað eins í
hug?“
„Æi, við skulum ekki vera
með nein látalæti," sagði
kerlingarálkan. „í fyrsta
lagi játaði Grímur allt fyrir
mér í kvöld og í öðru lagi
býr bezta vinkona mín á
næstu hæð fyrir neðan
yður.“
„Jæja,“ sagði ég bara.
„Mig langar til að segja
við yður fáein orð,“ sagði
Sigríður.
„Finnst yður ekki full
framorðið til þess?“ spurði
ég, því fátt vildi ég sfcður,
26 fXlkinn