Fálkinn


Fálkinn - 09.12.1963, Side 54

Fálkinn - 09.12.1963, Side 54
LITIA SAGAIM EFTIR WILLY BREIEMMOLST PÁFUMN í KLÍPF Þessi dagur hófst eins og aftrir venjulegir dagar í Vatí- kaninu.En hann átti eftir að verða talsvert afbrigðilegur, áður en lauk. Þetta byrjaði með því, að bandaríski auðjöfurinn Bill Naggels strunsaði, ljóm- andi af sjálfsöryggi, upp hinn fagurlega skreytta stiga, sem lá upp til ríkisráðsins og íbúð- ar páfans. Hvernig hann komst framhjá svissnesku lífvörðun- um í aðalinnganginum, sem lokaður var þar að auki með sterklegri bronzhurð, væri vissulega gaman að vita, en hvað er það, sem frekir Banda- ríkjamenn komast ekki fram- hjá? Hann fór inn eftir löng- um súlnagangi, prýddum mar- mara, og komst inn í forsal nokkurn, þar sem einn af kar- dínálum páfans stóð álútur yfir einhverjum latneskum bókum. Bill Naggels klappaði á öxlina á honum og sagði: — Er páfinn heima? — II papa? Non ancore, sig- nore. Qual ’é il suo cognome? Bill Naggels dró nafnspjald upp úr brjótsvasanum og lagði það í hendi kardínálans. Sá horfði á það í öngum sínum og talaði einhver ósköp sem Band jríkjamaðurinn skildi ekki orð í. — La prego d’aspattare due minuti. Kardinálinn skundaði brott, stuttum, hröðum skrefum, og var bersýnilega taugaóstyrkur. Bill Naggels beið í nokkrar mínútur. Ekkert gerðist. Þá missti hann alveg þolinmæð- ina og æddi rakleitt í átt til hinna háu dyra með messings- klæddu hurðunum, sem voru að vinnuherbergi páfans. Hann opnaði þær — og sá í sömu mund hvar kardínálinn kom þjótandi á eftir honum, með marga aðra kardínála í hala- rófu á eftir sér. Þeir böðuðu höndunum í allar áttir og hróp- uðu heiJmikið, en Bill Naggels skildi ekkert, hvað þeir voru að segja. Hann flýtti sér inn fyrir og læsti á eftir sér. Kardínálarnir reyndu árang- urslaust að opna dyrnar. Þetta var alveg makalaust. Að ryðj- ast svona inn til Hans allra hæsta Heilagleika. Þetta hafði aldrei nokkur maður vogað sér að gera fyrr. Banifacius kardín- áli, sá sem hafði tekið við nafn- spjaldi Bill Naggels, velti því vandlega fyrir sér ,og þeir urðu sammála um það, kardí- nálarnir, að þetta hlyti að vera einhver af þessum hræðilegu Bandaríkjamönnum, þessum skelfiiegu mönnum, sem ekkert vissu hvað virðing, háttvísi, eða bara yfirleitt sæmileg hegðun, var. Ræningi var maðurinn tæplega, en hvað í ósköpunum vildi hann þá Hans Heilagleika? Bonifacius beygði sig niður og kíkti gegnum skráargatið. Bandaríkjamaðurinn stóð við skrifborð páfans með kúlu- penna í hendinni og reyndi, ber- sýnilega árangurslaust, að fá páíann til þess að skrifa undir eitthvað. Bonifacius hætti að kíkja og lagði í þess stað eyrað að skrá- argatinu. Þá heyrði hann greini- lega neitandi rödd páfans. — No! No! No! signore! Það þýðir ekkert að tala um það! No e poi no! Rödd páfans varð sífellt hærri og hærri, eftir því sem hann neitaði Bandaríkjamann- inum oftar, en hann lét ekki slá sig út af laginu og reyndi stöðugt að sannfæra páfann með miklum orðaflaumi. Bonifacius nagaði sig örvænt- ingarfullur í handarbökin. Hin- ir kardinálarnir nöguðu sig einnig örvílnaðir í handarbök- in Allir nöguðu sig örvænting- arfullir í handarbökin. Hvað gátu menn lika gert annað? Nú heyrðist hávaði að innan. Bonifacius kíkti aftur í gegn um skráargatið. Þessi bandvit- lausi Bandaríkjamuður var far- inn að elta páfann kring um skrifborðið og veifaði skjali sínu fyrir framan augu hans. No e poi no, signóre! sagði páfinn örvæntingarfullur við hinn ágenga Bandaríkjamann, ég fellst aldrei á það! Aldrei! Lasciami tranquillo! Hinn æðisgengni eltingar- leikur kring um skrifborðið hélt áfram. dýrmætar postu- línsstyttur duttu á gólfið og brotnuðu mélinu smærra. Páf- inn hrópaði örvæntingarfullur á hjálp, Bandaríkjamaðurinn gat króað hann af úti í horni og hrópaði, að hann skyldi taka þessu rólega og reyna að slappa af, reyna að líta skynsamlega á málið og skrifa svo undir eins og skot, en páfanum tókst að slíta sig lausan ,og eltingarleik- urinn hélt áfram um herbergið. í hvert sinn, sem vitlausi Bandaríkjamaðurinn velti ein- hverju um inni, lokaði Boni- facius augunum örvæntingar- fullur. Þetta var hræðilegt, það versta, sem nokkru sinni hafði komið fyrir. Allir nöguðu sig örvænting- arfullir í handarbökin, allir beindu augum til himna og all- ir fóru hásum rómi með latn- neskar bænir. Hvað gátu menn gert annað? En svo varð allt hljótt þarna inni. Bonifacius ætlaði einmitt að fara að kíkja enn einu sinni inn um skráar- gatið, þegar hurðin var rifin upp og Bill Naggels kom æð- andi út. — Þessi gamli, þrjózki asni! fnæsti hann og leit með fyrir- litningarsvip á páfann, sem sat samanhnipraður í stól sínum, gersamlega útkeyrður. Svo strunsaði hann brott og hristi höfuðið og yppti öxlum. Nokkr- ir kardínálar ætluðu að fara að veita honum eftirför, en hættu við það. Það lá meira á því að komast að, hvað hefði eig- inlega verið á seyði. Bonifacius náði strax í vatns- skál og baðaði enni páfans var- lega upp úr köldu vatni. And- artaki síðar var páfinn orðinn nægilega hress til þess að geta sagt frá atburðum. — Þetta var alveg hræðileg- ur maður, þessi Bandaríkja- maður! Hann bauð mér fimm milljónir dollara fyrir að skrifa undir það, að í öllum kirkjum heims skyldi hætt að segja Amen í messulok, en í þess stað skyldu prestarnir alltaf enda á: „Notið Shell benzín!“ Willy Breinholst. 54 FALKINN

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.