Fálkinn - 26.04.1965, Side 23
• Jón Gíslason
Framh. af bls. 21.
óþægindi af ungfrúnni, þvi
hún ásækti sig mjög á nóttum
í hús sitt. Hann kvaðst oft hafa
ávítað hana og eitt sinn í meira
lagi, og hefði hún þá ætlað að
hárreita hann, og reiddist hann
þá svo, að hann barði hana.
Segist Wulf hafa séð marbletti
á Schwartzkopf eftir þessa at-
burði.
Leið svo fram á vetur, þar
til Schwartzkopf kom næst til
fundar við Wulf landfógeta.
Segir hann svo frá þeirri heim-
sókn hennar: „Nokkru síðar
(þ. e. veturinn 1724) kom jóm-
frúin enn til mín, og kvartaði
undan því að hafa verið veik,
og greip sóttin hana svo æsi-
lega, að brjóst hennar og líf
þandist svo, að henni fannst
þau myndu springa, og sagði:
„Guð gaf, að ég fór að selja
upp, og það svo ákaft, að ég
jafnaði mig ekki af því í viku.“
Af hverju vildi jómfrúnni þetta
til? hlaut ég að spyrja, og
sagði hún mér það þá, en ég
man nú ekki, hvort það var
af mat eða drykkjarföngum."
í marzmánuði 1724 kom jóm-
frúin enn á ný til Wulfs land-
fógeta og bar sig allaumlega
og var „hjartanlega aum og ör-
vilnuð“. Hún kvaðst vera
mjög illa haldin og hafa engan
frið út af tilhugsuninni, að um
sig væri setið. Gat hún mjög
um veikindi sín um haustið og
jafnframt hefði hún orðið þess
áskynja, að sveini Páls Vídalíns
lögmanns og Sigurði nokkrum
Gamlasyni, hefði verið boðið
íé til að koma sér fyrir kattar-
nef. Einnig varð hún þess vör,
að maður að nafni Skæringur
Jónsson dvaldi nótt eina um
haustið í herbergi Marenar
Jaspersdóttur, og verið þar við
eiturbyrlun eða einhverja ó-
lyfjansgerð, er sér var ætluð.
í þetta sinn tjáði hún landfó-
geta, að svo væri komið hög-
um sínum, að hún væri í svo
mikilli örvilnan, að hún kvaðst
varla myndi lifa þetta af öllu
lengur og myndi fyrirfara sér.
Wulf reyndi á allan hátt að
tala um fyrir henni og hugga
hana, og að svo búnu hvarf
hún frá honum,
Leið svo fram yfir miðjan
apríl. En 20. apríl varð
Schwartzkopf aftur veik, og
23. eða 24. maí sendi hún enn
á ný eftir Wulf landfógeta.
Þegar hann kom á fund henn-
ar, var hún mjög illa haldin,
hafði hún klukkustrenginn
bundinn um úlnliðinn, er hún
notaði til að hringja, er hún
æskti eftir hjálp eða aðstoð,
því svo var hún máttfarin í
fingrum og höndum, að hún
hafði ekki afl til að að taka í
hann með öðru móti. Sagði hún
honum þá hiklaust, að þær
mæðgur hefðu gefið sér eitur í
mat. Greindi hún svo frá, að
seint að kvöldi hins 19. apríl
hefðu sér verið sendar þrjár
vöflur, og var mikill sykur á
tveim hinna efstu, að því að
henni sýndist, og borðaði hún
þær, en sú neðsta var sykur-
laus, og lét hún hana verða
eftir óhreyfða. í því bili, er
hún var að greina landfógeta
frá þessu, kom Maren Jespers-
dóttir vinnukona inn, og spurði,
hvort ekki hefði verið hringt,
en svo var ekki.
Þegar Maren var snúin til
baka, greindi Schwartzkopf
frá því, að þegar einhver kæmi
inn til sín, sem sjaldan bar
við, væri um sig setið og stað-
ið á hleri. Hélt hún að þessu
loknu áfram sögu sinni.
Þegar hún hafði lokið við
að borða vöfflurnar, hefði hún
orðið syfjuð, og gekk hún því
til rekkju sinnar. Þegar hún
var háttuð, þembdist brjóst
hennar og líf mjög og þrengdi
að hjartanu, svo að hún bjóst
við dauða sínum hið bráðasta.
„Síðan gaf guð þá gæfu, að ég
seldi upp, og það svo æsilega,
að það hélzt alla nóttina. Síðan
varð ég svo máttfarin, að ég
varð að vera rúmföst, og eftir
það virðist mér alltaf vera
fiðringur í fingrum, höndum
og tám.“
Miðvikudaginn 3. maí var
henni borinn grautur, og „virt-
ist mér það óvenjulegt, hvað
var mikill kanell og sykur á
honum, og greip mig grunur
út af því. Ég tók svo með fingr-
inum og bragðaði á því, sem
átti að vera sykur, en fann
ekki af því neitt sætubragð.
Bað ég því Marenu Jespers-
dóttur, að hún vildi hjálpa mér
að torga grautnum, því hann
væri svo mikill. Ég hugsaði
sem svo, að ef eitthvað væri
að honum, myndi hún ekki
neyta neins af honum. En þar
eð hún hjálpaði mér til við
grautinn, óttaðist ég ekkert.
Síðan gekk Maren á burt, og
upp úr því varð ég geysilega
veik og hélt, að hjartað myndi
þeytast út úr kroppnum. Ég
fór að selja ákaft upp, og hélzt
Framh. á bls. 26.
PHILIPS
JAFNGÓÐ FYRIR TÓN OG TAI
GERÐ FYRIR BATTERÍ
OG VENJULEGAN STRAUM - llo/22o
SPÓLURNAR SETTAR I
MEÐ EINU HANDTAKI - (MAGASIN)
HANDHÆG - ÞÆGILEG - SKEMMTILEG
SKOLAVORÐUSTIG 8 SÍMI 18525
FALKINN
23