Fálkinn


Fálkinn - 26.04.1965, Síða 25

Fálkinn - 26.04.1965, Síða 25
kyssir hana og ... kyssir hana og ... SJÓSKÍÐAÍÞRÓTTIIM eða vatnsskíðaíþróttin er skemmtilegt „sport“, en hún er líka nokk- uð dýrt „sport“. En Margréti og Antony munar ekki svo mikið um að kaupa sér eitt skíði eða svo, og bátinn geta þau fengið lánaðan, hvenær sem þau langar til að bregða sér á sjóskíði. Það var einmitt í fyrra sem hún Margrét brá sér á sjóskíði í fyrsta sinn, og þá voru þessar myndir teknar af henni. En sjóferðin tókst ekki betur til en svo, að Margrét féll og sökk í hafið, en náðist þó fljót- lega upp aftur. Það var enginn annar en Antony sjálfur sem dró hana upp, og sést sú athöfn á minni myndinni. Stóra myndin er aftur á móti tekin rétt áður en óhappið vildi til. kyssir hana og ... IMÝSTÁRLEG RÓMANTÍK í SÆIMSKRI KVIKIUYIMD Staður: Utan við Málmey. Hinn ljóshærði og herðabreiði Jarl Kulle syndir til hinnar dökkhærðu og fögru Christinu Schollin. Jarl dregur að sér andann, grípur Christ- inu járngreipum — og kyssir hana. Christina sekkur og Jarl sekkur. Á hafsbotni liggur kvikmyndatökumað- urinn Rune Eriksson og kvikmynd- ar sænskt ástarlíf frá nýju sjónar- horni. Þessi neðansjávarrómantík er þáttur í nýrri kvikmynd sem Svíar eru að gera eftir sögu Olle Lansberg, „Kæri Jón“. Það hefur frétzt frá Svíþjóð, að aldrei hafi svo margir skemmt sér svo vel við kvikmynda- upptöku fyrr, enda má segja að allir þátttakendur séu „sokknir í sjó nið- ur.“ Ennfremur fréttist, að upptaka sú, sem meðfylgjandi ljósmyndir sýna, hafi tekizt í fyrstu tilraun, en það er sjaldgæft um svo vandasöm atriði. Kvikmyndatökumaðurinn var yfir sig hrifinn af ,,mótívunum“ og lét hrifningu sína óspart í ljós, um leið og hann kom úr djúpinu. Og nú er ekkert annað fyrir íslenzka aðdáendur sænskra ástarlífsmynda en bíða með öndina í hálsi... að bíða með óþreyju . . . að bíða þolin- móðir eftir fyrrnefndri kvikmynd. FALKINN 15

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.