Fálkinn


Fálkinn - 27.09.1965, Blaðsíða 15

Fálkinn - 27.09.1965, Blaðsíða 15
Dr. Helgi P. Briem, amhassador. — Kanntu boð'orðin tíu? — Ja, ég held ég kunni þau enn. Helgi fer með boðorðin í réttri röð og bætir svo við: — En viltu hafa annað boð- orðið með? Lúther sleppti því nefnilega, en hlutaði aftur á móti tíunda boðorðið sundur svo að rétt tala kæmi út. En annað boðorðið hjá Moses var á þá leið að gera ekki mynd af neinu því sem skapað er á himni eða á jörðu. Og við þetta halda Múhameðstrúar- menn enn. — Fyrst þú kannt boðorðin svona vel, ferðu þá daglega eftir þeim? Ég verð að játa að ég fer ekki eftir ’ eim öllum og fellst ekki á að það sé alltaf synd- samlegt að brjóta. Ég á þar við boðorðið um hvíldardaginn. Meining þess var þannig að maður mætti bókstaflega ekk- ert gera á hvíldardögum. Þegar á dögum Krists var þetta boð- orð orðið svo mikil spennitreyja að Gyðingaþjóðin virtist frem- ur hafa orðið til vegna þess en það vegna hennar. Enda braut sjálfur Kristur það þegar hon- um sýndist, t. d. þegar hann sagði: „Tak sæng þína og gakk.“ — Þú ert þá ekki skilyrðis- laust á móti því að boðorðin séu brotin? — Nei, ekki þótt brotið sé á móti bókstafnum. Eiginlega finnst mér boðorðin tíu vera heldur gamaldags framsetning siðrænnar breytni og hugar- fars. Ég hallast fremur að boð- skap Krists um að „elska ná- ungann eins og sjálfan sig“ og „það sem þú vilt að mennirnir geri yður skuluð þér og þeim gera.“ Boðorðin eru upprunalega til orðin til þess að vernda Gyð- ingaþjóðina fyrir reiði guðs. Gyðingatrúin þekkti eiginlega ekki einstaklings siðgæði (sem verður að miða við meiningu og aðstæður). Hún hafði eins konar heildar siðgæði, siðgæði fyrir þjóðina í heild eða fyrir ættina. í gamla daga var þetta eins hjá okkur. — Þú reynir þá fremur að miða þitt líf við kenningu Krists en boðorðin? — Já, ég tek ekki boðorðin hvert fyrir sig. Það er einhvern veginn orðið sjálfsagt að stela ekki og drýgja ekki hór. Þetta er orðið að siðrænu lífsviðhorfi. Og það var margt merkilegt í okkar fornu drengskaparhug- myndum, þótt þar væri mórall- inn settur fram í öðru formi en hjá Gyðingum. Magnús Kjartansson. ritstjóri — Spurningin er, Magnús, kanntu boðorðin tíu? — Ég held ég kunni þau ékki, geti ekki farið með þau orðrétt í réttri röð, en efni þeirra þekki ég, hvað í þeim felst. — Viltu fara með nokkur sem þú manst? — Minnisstæðast er mér: þú skalt ekki stela, og ættum við að hafa það hugfast hér á þessu landi. Svo er: Þú skalt ekki mann deyða, heiðra skaltu föður þinn og móður, þú skalt ekki drýgja hór, og ef ég man rétt eru einhver sem mæla gegn ágirnd. Fleiri hirði ég ekki um að rifja upp. — Reynirðu að lifa eftir boð- orðunum? — Það er ekki svo að maður hafi þau fyrir mælikvarða á daglegt líf svona vitandi vits. En hinar kristnu siðgæðishug- orðunum eru af þessum toga spunnar. Nægir að tilfæra þar útlistun hans á 8. boð- orðinu: Þú skalt eigi bera 'ljúgvitni gegn náunga þín- um. Hvað er það? Svar: „Vér eigum að óttast og elska Guð, svo að vér eigi ljúgum ranglega á náunga vorn, svíkjum hann, baktöl- um hann né ófrægjum, held- ur afsökum hann, tölum vel um hann og færum allt til betri vegar.“ Með það í huga, sem hér að framan greinir, leyfi ég mér að setja fram eftirfar- andi niðurstöðu: Boðorðin hafa svo langt sem þau ná fullt gildi. Þau eru öll túlkun á vilja Guðs — eða ákveðnum lífslögmál- um, ef einhver vill fremur orða það þannig — og það leiðir til meiri og minni ó- heilla að virða þau að vett- ugi. Rísa gegn anda þeirra. Rúmsins vegna tæpi ég rétt á tveim dæmurn. Vér höfum fullan skilning á gildi hvíldardagsins. Und- anfarna áratugi hefur þeim dögum verið fjölgað og reynt að tryggja þá með ýmsu móti af hálfu löggjafans. Margir kunna aftur á móti að draga í vafa að nokkur ástæða, hvað þá nauðsyn, sé til að halda hvíldardaginn heilagan. En er það ekki einmitt eitt af vaxandi áhyggjuefn- um þjóðfélagsins, hvað marg- ir nota helgarnar til þess að „fara á túr“ og jafnvel til að vinna spellvirki? Mundu ekki fáir mæla gegn því í fullri hreinskilni, að öllum væri hollt að sitja einhverja stund við fætur meistarans á hverjum helgidegi, hvort heldur þeir gerðu það í ein- rúmi heima fyrir, eða úti í náttúrunni, eða þá í ein- hverjum helgidómi? Næsta boðorð hljóðar svo: Heiðra skaltu föður þinn og móður þína. Þeim postulum fer sí fækk- andi, sem halda því fram að helzt ekkert megi banna börnum. Þau eigi að ala sig upp sjálf. Allar skýrslur um afbrot sýna, að ýmiss konar heimilisböl eru ósjaldan or- sök þess að unglingar fara villur vegar. Þetta sýnir að syndir feðr- anna koma niður á börnun- um, eins og vikið er að í sambandi við boðorðin í 5. Móse 5. Réttur skilningur þess er að öllum er í öllu farsælast að lúta lögmálum lífsins: Hlýðnast vilja Guðs, að því leyti sem vér fáum skilið hann. — Þar er Kristur oss hin mikla fyrirmynd. FÁLKINN 15

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.