Fálkinn - 27.09.1965, Blaðsíða 25
Framh. á bls. 37.
LJÓSMYNDIR:
BJARNLEIFUR BJARNLEIFSSON
TEXTh
VILMUNDUR GYLFASON
gekk einn þeirra fram og kynnti næsta lag með
Vínardrengjakórsrödd. Sannarlega óvenjulegt
Undir slíkum kringumstæðum. Síðan léku Akur-
eyrarbítlarnir nokkur lög og alltaf voru undir-
tektirnar samar. Þessir piltar mega vera ánægð-
ir með árangur sinn, bæði var framkoma þeirra
lil fyrirmyndar og svo voru þeir óvenju vel til
# fara, og penir til höfuðsins. Að lokum gekk
kynnirinn fram: Og að síðustu leikum við
Hel-l-Ip. En ekki stóð þetta heima. því vissulega
vildu hinir átta hundruð aðdáendur þeirra fá
eitt aukalag.
Næst komu fram reykvísk bítlahljómsveit sem
kallar sig Tempó. Jókst þá hávaðinn um allan
hclming, og andstætt fyrirrennurum þeirra á
sviðinu slengdust þeir fram og til baka, og var
helzt að sjá á einum gítarleikaranum að hann
þyrfti að losa sig við eitthvað. Heldur var klæða-
burður fjögurra þeirra óásjálegur, og hár þeirra
ósnoturt. en aðspurðir sögðu þeir þetta vera það
sem aðdáendur þeirra vildu, og væri því at-
vinnurógur að fetta frekar fingur út í þetta.
Og aðdáendur áttu þeir greinilega marga. ef
dæma á eftir undirtektum áheyrenda. Tónflutn-