Fálkinn - 21.02.1966, Blaðsíða 8
RAUÐI Kross íslands hefur í
samvinnu við Rauða kross
félögin í Finnlandi, Noregi og
Svíþjóð rekið fræðslu- og hjálp-
arstarf á sviði heilbrigðismála
í Nígeríu s.l. tvö ár. Aðstoðar-
starf þetta hefur verið nefnt
„Nordic Action in Nigeria“ og
er liður í aðstoð alþjóða Rauða-
krossins við þróunarlöndin.
Danski Rauði Krossinn taldi
sig ekki geta tekið þátt í starfi
þessu, þar sem DRK rekur
spítala í Leopoldville í Kongó
með fé, sem lagt er fram af
danska ríkinu.
Ástæður fyrir því að Nígería
varð fyrir valinu voru margar,
— meðal annars þessar:
1. Rauði Kross Nígeríu var
lítt skipulagður til hjálp-
arstarfa og félagafár, og
hafði félagið farið fram á
aðstoð við Alþjóða Rauða
Krossinn.
2. Heilbrigðisþjónusta lands-
ins var í molum, og
kennsla í heilbrigðismál-
um lítil sem engin meðal
almennings.
3. Nigería er viðskiptaland
Norðurlandanna.
4. fbúar Nígeríu eru fjórði
hluti allra Afríkubúa.
Undirbúningsstarf Nígeríu-
hjálparinnar hófst í september
1964, en þá var meðal annars
gengið frá því að Finnski Rauði
Krossinn hefði yfirumsjón með
framkvæmdum og sæi um yfir-
færslu peninga og nauðsynlegt
skrifstofuhald. Framkvæmda-
stjóri FRK, Kai J. Warras, sem
jafnframt er framkvæmdastj.
hjálparstarfs Alþjóða Rauða
Krossins við þróunarlöndin,
var kjörinn forstöðumaður Ní-
geríuhjálparinnar, en hann
starfar í nánu sambandi við
kollega sína, þá Olof Stroh
frá Sænska Rauða Krossinum,
Haakon Mathiesen frá Norska
Rauða Krossinum og Ólaf
Stephensen frá Rauða Krossi
íslands.
Að undirbúningsstarfi loknu
hóf fulltrúi félaganna, major
Vidkunn Isaksen frá Noregi,
starf sitt í Nígeríu. Isaksen,
sem er major í norska flughern-
um fékk sérstakt leyfi frá her-
þjónustu til að starfa fyrir
Nígeríuhj álpina.
Starf Isaksens var í fyrstu
mjög erfitt, þar sem illa gekk
að fá viðkomandi yfirvöld í
Nígeríu til samstarfs við Rauða
Krossinn. En brátt tók viðhorf-
ið að breytast, og í dag má
sjá að honum hefur orðið veru-
lega ágegnt í starfi sínu. Frá
og með 1. janúar s.l. kom svo
Gunnar Kállenius frá Sænska
Rauða Krossinum í viðbót, en
hann hefur ágæta reynslu í
skipulagsmálum, bæði að heim-
an og erlendis frá, svo að NH
hefur nú tvo ágæta liðsmenn
í Nígeríu. Enda er nú svo kom-
ið, að Rauði Kross Nígeríu
starfar nú á sæmilega vel
skipulögðum grundvelli, og
hefur orðið töluvert ágengt
með margs konar kennslustörf-
um og upplýsingastarfsemi í
samstarfi við heilbrigðisyfir-
völd landsins.
Til gamans má geta, að full-
trúi R. K. í. á alþjóðaþingi
Rauða Kross félaganna, sem
haldið var í Vínarborg s.l.
sumar hitti þar fulltrúa Níge-
ríu að máli, og voru þeir fullir
áhuga fyrir Nígeríuhjálp nor-
rænu félaganna, og töldu þeir
NH hafa nú þegar unnið ómet-
anlegt gagn í Nígeríu. Þeir létu
í ljós þá von, að NH gæti hald-
ið áfram af jafnmiklum krafti
fram til ársins 1968, en þá ætti
að vera búið að þjálfa það
mikið af Nígeríumönnum til
starfa, að þeir gætu haldið
áfram starfinu með þeirra eigin
starfskröftum.
Fulltrúi íslands á þinginu
Davíð Sch. Thorsteinsson, var
mjög hrifinn af þeim áhuga
sem virtist vera fyrir hendi
hjá hinum fjölmörgu fulltrúum
fyrir þróunarlandahjálp Rauða
Krossins, og þá sérstaklega hin-
um mikla áhuga Nígeríufull-
trúanna, sem virtust vita
óvenjulega mikið um Island og
íslendinga — vegna NH.
Hvað hafa svo þessir full-
trúar íslands, Finnlands Noregs
og Svíþjóðar starfað í Nígeríu?
Fyrstu mánuðunum var eytt
nær eingöngu í það, að skipu*
leggja framtíðarstarfið í sam-
ráði við stjórnarvöldin. Isaken
ræddi fram og aftur við for-
ráðamenn í Lagos um það,
hvernig Rauði Krossinn gæti á
sem hagkvæmastan hátt veitt
nauðsynlega aðstoð við þjálfun
8
FALKINN