Fálkinn


Fálkinn - 21.02.1966, Blaðsíða 25

Fálkinn - 21.02.1966, Blaðsíða 25
Prinsessa með iálilækjur Auminginn hún Irena prinsessa, systir Konstantíns Grikkjakóngs! Hún er undirlögð af ljótum fílapenslum og ekki nóg með það, þeir hafa lagzt á hennar konungbornu sál. Hún hefur með öðrum orðum komplexa, rétt eins og grófgerða bóndadóttirin í lágreistu hreysi einhvers staðar í ríki hennar. Og það er ekki að sökum að spyrja. Enginn prins er fáanlegur til að líta hana ástar-, eða girndarauga. Stóri bróðir hefur nú aumkast yfir systur sína og boðið henni með sér til London, þar sem hann ætlar að reyna að hjálpa henni að komast yfir sálflækjurnar og væntan- lega að koma henni á framfæri við hinn hásnobbaða brezka aðal. Clinrcliillvindill cftir söngtímann Bandaríkjamenn hafa löngum gert grín að vindlareyking- um dansks kvenfólks. En sá hlær bezt sem síðast hlær, því að nú eru bandarískar konur smám saman að taka upp vindlareykingar í staðinn fyrir sígarettuna, sjálfsagt með tilliti til krabbameinshættunnar. Það eru einkum smá- vindlar, sem kvenfólkið reykir en leikkonan Marilyn Max- well lætur sig ekki muna um að kveikja í raunverulegum Churchill vindli. Hún gengur um þessar mundir í tíma hjá hinum þekkta söngkennara Poul Thomsen í Hollywood og það var hann, sem taldi hana á að reyna stærri sortina. Nú reykir hún einn á dag, en ekki fyrr en eftir söngtíma. A myndinni er kennarinn að kveikja í vindlinum fyrir hinn fræga lærisvein og verður ekki betur séð, en hún sogi reykinn að sér með velþóknun. NÚ ER VANDALÍTIÐ AÐ VIÐHALDA UNGU ÚTLITI □□ AUKA Á FEGURÐ SÍNA EINFALDLEGA MEÐ ÞVÍ AÐ NDTA SNYRTIVÖRURNAR FRÁ: REYNIÐ ÞESSAR HEIMSFRÆGU GÆÐAVÖRUR OG SANN- FÆRIST UM ÁHRIFAMÁTT ÞEIRRA FÁST í FLESTUM LEIÐANDI SNYRTIVÖRUVERZLUNUM SIMYRTIVÖRUR HF. HEILDVERZLUN SÍMI. 11020 - 11021

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.