Fálkinn - 21.02.1966, Blaðsíða 24
Gigli
syngur
dægurlög
f ár eru 75 ár liðin frá fæðingu Benjaminó
Gigli, eins frægasta tenorsöngvara síðari
tíma, en hann er eins og mönnum er kunn-
ugt, dáinn fyrir nokkrum árum. Þar með
er ekki sagt að nafni hans verði ekki haldið
á lofti af eftirkomendum. Eitt af barnabörn-
um hans, sem heitir eftir afa sínum er nefni-
lega orðinn einn af vinsælustu dægurlaga-
söngvurum Ítalíu og álitið er að ekki muni
líða nema nokkrir mánuðir þar til plötur
hans verða komnar á markað um alla Evrópu.
Hér á myndinni er hann á æfingu með föður-
sínum, sem er hinsvegar sonur hins eina og
sanna Giglis.
24 FÁLKINN
Boðflenna
Roger Hanston heitir maðurinn lengst til vinstri hér á myndinni.
Hann vann sér það til frægðar í Madrid fyrir skemmstu, að koma óboð-
inn í fínt kokkteilboð diplomata þar á staðnum. Þegar átti að stöðva
hinn óvelkomna gest við útidyrnar, lýsti hann því skýrt og skorinort
yfir að hann væri í rauninni engin boðflenna, heldur ambassador Rhodesíu
á Spáni og ennfremur kynnti hann hinn einkennisbúna fylgissvein sinn,
sem hermálafulltrúa við sendiráð sitt. Gesturinn olli uppsteit og upp-
lausn í „partíinu“ og sómakærir diplómatar gengu út í mótmælaskyni
við komu hins sjálfskipaða ambassadors Ian Smiths. Á myndinni er
sendiherra Guatemala að ganga út, en boðflennurnar horfa með athygli á.
UNGUR PRESTUR
Hann er ekki hár í loftinu pattinn með barðastóra hattinn á mynd-
inni hér til vinstri og ekki er hann síður fullorðinslegur í bænastöðu
sinni við hlið föður síns á hinni myndinni. Reyndar heitir sá stutti
Marió og er prestur — 7 ára gamall. Maríó er japanskur Buddhaþrestur
og helgar líf sitt góðgerðarstarfsemi. Hann betlar í þágu góðs málefnis
og innan skamms mun hann fara til Bandaríkjanna og reyna að safna
þar fé fyrir nýju musteri. Faðir hans, sem er með honum á myndunum,
er einnig prestur við hið 400 ára gamla Amida musteri á norðaustur
Japan.