Fálkinn - 21.02.1966, Blaðsíða 9
ungra Nígeríumanna til starfa
á hinum ýmsu sviðum þjóð-
félagsins, og skipulagt framtíð-
arstörf þeirra; sem sagt hjálp-
að þeim til að hjálpa sér sjálf-
um. Það kom í ljós, að NH gat
veitt ómetanlega aðstoð í skipu-
lagningu heilbrigðismála, og
einnig veitt góða aðstoð við
uppbyggingu kennslumála í
hinum ýmsu héruðum Nígeríu.
Þegar fenginn var grundvöll-
ur fyrir starfinu í Nígeríu, var
tekið til óspilltra málanna.
Fyrst var tekið til við endur-
skipulagningu Rauða Kross
félags Nígeríu. Ungur Nígeríu-
maður, Saidu Mohammed, var
ráðinn framkvæmdastjóri fé-
lagsins, en Mohainmed var ný-
kominn aftur til Nígeríu frá
Sviss, þar sem hann var í skóla
á vegum UNESCO og Alþjóða
Rauða Krossins. Mohammed
og starfslið hans, mest allt sjálf-
boðaliðar, tóku síðan höndum
saman við Isaksen og Kallen-
ius við uppbyggingu félagsins
í hverju einasta héraði Nígeríu.
Á síðastliðnu ári var lögð
áherzla á kennslu í heilbrigðis-
málum. Sett var í gang her-
ferð gegn óþrifnaði í sambandi
við kennsluna. Herferðin var í
fimm þáttum, unnin í sam-
starfi við blöð, útvarp og sjón-
varp. Hver þáttur stóð í einn
mánuð. Sá fyrsti hét „Segðu
flugum stríð á hendur“,
„Hreinn matur — góð heilsa“
og fleira.
Rauða Kross deildin í Lagos
jSetti upp heimili fyrir munaðar-
laus börn, sem rekið hefur ver-
;ið með góðri hjálp frá Norska
,Rauða Krossinum. Þá voru sett-
,ar upp mjólkurgjafastöðvar
,fyrir bágstadda í mörgum hér-
>.uðum. Þessar stöðvar dreifðu
jþurrmjólk, sem send var frá
Finnlandi, en stöðvarnar voru
reknar á svipaðan hátt og þær,
sem Rauði Kross íslands stóð
fyrir í Alsír fyrir nokkrum ár-
um.
Þau verkefni, sem hér hafa
verið talin upp, eru þau sem
,nú þegar er búið að skipu-
leggja og vinna hafin við. Aftur
móti eru verkefni þau, sem
ennþá eru á biðlista, næstum
því óþrjótandi.
! Rauði Kross íslands hefur
fjölda verkefna til að vinna að
hér heima. Reykjavíkurdeild
R. K. I. hefur t. d. gefið börn-
um, sem ekki hafa fengið tæki-
færi til sumardvalar í sveit,
kost á að dvelja í sumarbúðum
Rauða Krossins í Biskupstung-
um og í Grímsnesi. Þá má ekki
gleyma sjúkrabifreiðum Rauða
Krossins, sem annast flutning
Framh. á bls. 37.
FULLUR BILL AF MAT!
Börn frá æskulýðshreyfingu Nígeríu taka á móti matvælum frá _Rauða
Krossinum (efri mynd). Það er þurrmjólk í kassanum sem telpan er að
fá drengnum. En íslenzki Rauði Krossinn hefur farið víðar í Afríku. Hann
sendi matvæli til Aisír fyrir nokkrum árum, skömmu eftir að 'þeir Alsir-
búar öðluðust sjálfstæði. Á neðri myndinni athugar innfæddur starfsmaður
RK hreinlætisástandið í þorpi einu í Nígeríu. Hann er að rannsaka hvort
telpurnar litlu hafi þvegið sér nógu vel um hendurnar! Myndin á hinni
síðunni: Dr. Jón Sigurðsson borgarlæknir, forseti R. K. I. ásamt öðrum
fulltrúum á alþjóðaþingi í Genf.
FÁLKINN 9