Fálkinn


Fálkinn - 21.02.1966, Síða 18

Fálkinn - 21.02.1966, Síða 18
ÞÓTT leikfélagið Gríma hafi ekki mörg starfsár að baki, og mest allt starf sem unnið er á hennar vegum sé unnið í frí- stundum frá tímafreku starfi verður ekki annað sagt en hún hafi skilað athyglisverðum árangri. Það var hún sem kynnti fyrir reykvískum leikhúsgestum Max Frisch og Jean Genet, sem báða hefur borið hátt í leikhúsheiminum undanfarin ár og eru vel kunnír nú leikhúsgestum hér. Þá hefur Gríma einnig kynnt innlenda höfunda, Halldór Þorsteinsson, Odd Björnsson og Erling E. Halldórsson. Gríma tók upp þá nýbreytni hér sem sumir hafa kallað lesflutning. Að þessu sinni kynnir Gríma fyrir leikhúsgestum spánverjann Arrabal. Hann er rúmlega þrítugur, skrifar leikrit sín í París á máli þarlendra. Hann er af mörgum talinn einn ath yglisverðasti höfundurinn í hópi ungra leikskálda í dag. Það er leikrit hans Fando og Lis sem Gríma sýnir. Þá sýnir Gríma einnig Amalíu eftir Odd Björnsson. Leikendur í Fando og Lis eru fimm: Fando: Arnar Jónsson, Lis: Margrét Guðmundsdóttir, Mitaro: Flosi Ólafsson, Nam- ur: Sigurður Karlsson og Toso: Karl Guðmundsson. í Amalíu er aðeins ein persóna, þ. e. Amalía, en leikendur fimm: Arnar Jónsson, Bríet Héðinsdóttir, Kristín Magnús, Karl Guðmundsson og Stefanía Sveinbjarnardóttir. Leikstjóri er Gísli Alfreðsson. Leikmynd er eftir Þorgrím Einarsson. Úr Fando og Lis: Fando: Sjáið hvað hún er falleg.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.