Fálkinn - 21.02.1966, Side 20
■
■■■■■:■ .;■„
Þlí
HEFUR OF
LfTIO KAUP
— Við höfum ekki efni á
því
— Og þetta segir þú, sem
hefur alla þessa heimilispen-
inga.
— Viltu kannski taka við?
Ég skal bara segja þér eitt:
ÞÚ HEFUR OF LÍTIÐ KAUP!
— Þvættingur! Líttu á Palla
og Betu! Eiga þau ekki bíl, og
það þótt þau hafi miklu minna
úr að spila en við! Ég veit ná-
kvæmlega hvað það er, sem
okkur vantar. FJÁRHAGS-
ÁÆTLUN!
— Fjárhagsáætlanir eyði-
leggja sambúðina. Og það veit
ég að minnsta kosti upp á hár,
að peningarnir verða ekki
fleiri, þótt við höfum bókhald!
Hér skulum við gera hlé.
Þennan leikþátt þekkja allir.
Hann hefur verið endurtekinn
svo oft. Ef til vill líka heima
hjá einhvsrjum, sem þér þekk-
ið? Peningar hafa því miður
átt sök á ótöldum heimiliserj-
um, jafnvel ekki óhugsandi að
stöku skilnaður hafi af hlotizt.
Höfum við nokkurn tíma reynt
að komast að því, hvers vegna
sumar fjölskyldur virðast
spjara sig miklu betur en við,
þrátt fyrir að þær hafa sömu
tekjur eða jafnvel öllu minni?
Hefur okkur dottið í hug, að
kannski hafi Palli og Berta
gert fjárhagsáætlun?
Fyrir nokkrum árum fór
fram skoðanakönnun _ í Ame-
ríku (sem er land skoðana-
kannana) hjá fjölskyldum sem
staðhæfðu að afkoma þeirra
væri slæm, enda þótt þær
hefðu allar góðar miðlungs
tekjur. Allir fullyrtu, að þeir
hefðu of lítið kaup og að öll
vandamál yrðu leyst sam-
stundis, ef þeir aðeins fengju
ca. 25% launahækkun. Fáum
árum síðar voru sömu fjöl-
skyldurnar heimsóttar. Efna-
hagurinn var jafn bágborinn,
þrátt fyrir það, að allir fengu
töluvert meira en 25% launa-
hækkun. Það hafði enn sann-
azt, að slæmur fjárhagur er
ekki alltaf í hlutfalli við tekj-
urnar.
Margar eru þær þrætur og
önnur leiðindi, sem unnt hefði
verið að komast hjá, ef hjónin
hefðu komið sér saman um
skynsamlega fjárhagsáætlun.
Það er mikið hægt að læra af
því að grandskoða fjárhags-
áætlun náungans, en sárasjald-
an neinn hagur í því, að gera
nákvæma eftirlíkingu af henni.
Sú áætlun sem einni fjölskyldu
finnst mjög skynsamleg getur
öðrum virzt hreint og beint fá-
ránleg og síður en svo hag-
kvæm. Og áreiðanlegt er það
allavega, að skynsamleg fjár-
hagsáætlun er ekki fólgin í
löngum og þurrum talnaröðum.
Þegar hjónin hafa komið sér
saman um það, til hvers tekj-
unum skuli varið, eru þau búin
að finna skynsamlega fjárhags-
áætlun
í mörgum nútima hjónabönd-
um er konan fjármálaráðherra
heimilisins. Það er hún, sem í
einu og öllu ber ábyrgð á efna-