Fálkinn


Fálkinn - 21.02.1966, Page 26

Fálkinn - 21.02.1966, Page 26
n^n SKARTGRIPIR trúlofunarhringar HVERFISGÖTIJ 16 SÍMI 2-1355 TRÚLOFUNAR H R I N G A R ULRICH FALKNER GULISM LÆKJARGÖTU 2 2. HÆÐ Framleitt einungis úr úrvals gleri. — 5 ára ábyrgð. t’antið tímanlega. KÖRKB2KJAIM H.F. Skúlagötu 57 — Símar 23200. Atm — Komdu útí. Veiztu ekki að það er hættulegt að sitja undir tré þegar eldingar eru. — Auðvitað veit ég livaða dagur er í dag. Það er laugar- dagur. — Maðurinn hefur slæma tilhneigingu til að ræða stjóm- mál við ókunnuga menn. — Jón, kvartaðirðu við ösku- kallinn hvað hann hefur hátt á morgnana? Kæri Astró! Ég er mjög forvitin um framtíð mína, og eins um það hvernig þér finnst að skapgerð mín sé. Ég er oft ógurlega skapbráð, lagast það nokkuð? Heldur þú að ég eigi eftir að giftast og hvernig verður þá hjónabandið? Það er eins og ég fæli alla stráka frá mér, þó lít ég ekkert illa út. Ég hef áhuga á að komast til útlanda. Heldurðu að það geti orðið á næst- unni? Ég er í skóla núna, en hvaða vinna ætli væri bezt fyrir mig? Á ég eftir að eignast börn? Með fyrirfram þökk. Adda. Svar til Öddu: Þú ert ennþá svo ung að þú getur varla haft mikla reynslu af karlmönnum. Ég held að þegar þú fullorðnast og þrosk- ast sé alls engin hætta á að þú fælir frá þér karlmenn eða aðra. Ég tel að þegar þú hef- ur lært að stilla skapsmuni þína og fágað framkomu þína þá verðir þú mjög aðlaðandi stúlka. Þú ert fædd í Ljóns- merkinu og mjög sterk í því merki og hefur þú því til að bera helztu eiginleika þess merkis. Þú ert metnaðargjörn og vilt ávallt vera fremst í flokki í hverju sem er og þér finnst eins og sjálfsagt að all- ir veiti þér athygli og þú tek- ur það nærri þér ef þér finnst þú ekki fá alla þá athygli sem þú vilt. Þar af leiðandi gæti þér hætt til, eins og ýmsu fólki sama eðlis, að vera of áberandi í framkomu klæðast áberandi áður en þú hefur þroskað smekk þinn. Vera hávær og sækjast eftir félagsskap við fólk sem er hirðulaust um framkomu sína. Þetta er mikill misskilningur. Fólk fætt í þessu merki hefur allt til að bera til að njóta aðdáunar og virðingar ef það fer rétt að. Þetta eins og kemur af sjálfu sér ef það reynir að laða fram hina beztu eiginleika sína óg þeir eru vissulega fyrir hendi. Þú ættir að kappkosta að fága framkomu þína læra kynna þér góðar bókmenntir og list- ir og yfirleitt að leitast við að vikka sjóndeildarhring þinn sem allra mest. Skapa þér sjálf- stæðan smekk í klæðnaði og kynna þér allt sem að þeirri hlið lítur. Ef þú leggur áherzlu á þessi atriði líða ekki mörg ár þar til þú hlærð að þeirri hugsun að þú hafir verið að kvarta yfir því að þú fældir frá þér stráka. En þú þarft einnig og ekki sízt að læra að umgangast hitt kynið svo að þeir komi fram við þig eins og þeim ber. Þú munt verða frem- ur ung þegar þú gengur í hjónaband og að öllum líkind- um giftast manni sem verður þó nokkuð eldri en þú. Þú munt ekki" eignast mörg börn varla meira en tvö. Því þótt ljósmerkingar séu mikið gefn- ir fyrir börn og skilji þau vel þá eiga þeir venjulega fá börn. Þú munt eiga eftir að ferðast mjög mikið og ekki er ólíklegt að þú eigir eftir að vera búsett erlendis meiri part ævinnár. 26 FÁLKINN

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.